Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.03.2022, Síða 4

Víkurfréttir - 30.03.2022, Síða 4
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.isá timarit.is Störf í boði hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Akurskóli – Kennari í smíði og hönnun Aspardalur – Búsetuúrræði fyrir fatlaða Njarðvíkurskóli - Dönskukennsla í 7.-10. bekk Leikskólinn Holt - Deildarstjórar Leikskólinn Holt - Leikskólakennarar Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna. Velferðarsvið – Stuðningsfjölskyldur Velferðarsvið - Sérfræðingur í barnaverndarteymi Starf við liðveislu Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju húsnæði Skólamatar var tekin á föstudag. Axel Jónsson og Þórunn Halldórsdóttir, eiginkona hans, eigendur Skólamatar, tóku fyrstu skóflustunguna að viðstöddu starfsfólki Skólamatar. Fram- kvæmdir hefjast í beinu framhaldi og stefnt er að því að húsnæðið verði tilbúið að mestu leyti í haust. Nýja húsnæðið er um 400 fermetra viðbygging þar sem gert er ráð fyrir eldhúsi á neðri hæð og skrifstofu og matsal á efri hæð. Samhliða bygg- ingunni munu verða gerðar breyt- ingar á fyrra húsnæði. Flóknari starfsemi En af hverju er fyrirtækið að stækka við sig? „Fyrst og fremst er starfsemin okkar alltaf að verða flóknari. Við sérhæfum okkur í heildarlausnum í matarmálum fyrir leik- og grunn- skóla. Daglega bjóðum við upp á morgunmat, ávaxtastund, tvírétt- aðan hádegismat með meðlætisbar og síðdegishressingu. En auk þess sjáum við um að útvega mat fyrir hverskyns uppbrotsdaga, til dæmis nesti fyrir skólaferðalög, þorra- smakk, rjómabollur á bolludaginn og pylsuveislur. Þá er sífellt að fjölga í hópi nemenda sem þurfa á sérfæði að halda, en það eru þeir nemendur sem vegna óþols, ofnæmis, trúar- eða lífstílsskoðana geta ekki neitt matar af hefðbundnum matseðli,“ segir Axel Jónsson í samtali við Víkurfréttir. Máltíðir Skólamatar eru undir- búnar í framleiðslueldhúsi í Reykja- nesbæ. Þaðan eru þær keyrðar út í skólana þar sem eldunin fer fram. „Hluti af þeim máltíðum sem við bjóðum upp á eru eldaðar frá grunni í framleiðslueldhúsinu okkar, til dæmis lasagna, fiskibollurnar og plokkfiskurinn. Aðrir réttir eru út- búnir af innlendum framleiðendum eftir uppskriftum frá Skólamat. Stærsti misskilningurinn hjá fólki er að það heldur að maturinn sé allur eldaður hér í Reykjanesbæ og svo keyrður út í skólana. Hið rétta er að maturinn er undirbúinn í Reykja- nesbæ og svo sér starfsfólk okkar úti í skólunum um að elda matinn. Starfsfólk skólanna sér einnig um að skera niður ferska ávexti og grænmeti fyrir meðlætisbarinn. Ný og bætt aðstaða mun gera okkur kleift að bæta gæði þjónustu okkar enn frekar, meðal annars með því að auka okkar framleiðslu og bæta vöruframboð,“ Axel segir að þessar framkvæmdir séu mikilvægt skref til þess að geta áfram boðið upp á fyrsta flokks þjón- ustu fyrir alla viðskiptavini. „Með árunum hefur starfsemi Skólamatar orðið sífellt flóknari og fjölbreyttari. Nauðsynlegt er að öll aðstaða sé til fyrirmyndar svo hægt sé að mæta þeim kröfum sem bæði við og viðskiptavinir gera til okkar,“ bætir Axel við. 170 starfsmenn Starfsfólki Skólamatar hefur fjölgað jafnt og þétt í takt við aukin umsvif fyrirtækisins, en hjá því starfa nú um 170 starfsmenn en um 50 þeirra hafa starfsstöð á Iðavöllum. „Það er orðið ansi þröngt um okkur hér í núverandi húsnæði. Með tilkomu nýja húsnæðisins mun öll starfsmannaaðstaða batna. Við verðum meðal annars með stórt og flott mötuneyti á eftir hæðinni þar sem verður nóg pláss fyrir alla að borða saman. Við erum, líkt og flestir aðrir, erum búin að fá alveg nóg af hólfaskiptingum og öðrum samkomutakmörkunum sem við höfum þurft að lifa við undanfarin tvö ár. Við vorum þó svo heppin að ná að halda árshátíð síðastliðið haust og þá fundum við vel hversu mikil- vægt það er að fá að hittast og hafa gaman saman,“ sagði Fanný Axels- dóttir mannauðsstjóri Skólamatar. Ný verkefni og áskoranir Jón Axelsson, framkvæmdastjóri Skólamatar, segir að afleysingar- þjónusta hafi aukist mikið hjá fyrir- tækinu síðan að kórónuveirufar- aldurinn skall á. Margir skólar og leikskólar sem eru að upplifa tíma- bundin vandræði með matarþjón- ustu hafa nýtt sér þjónustu Skóla- matar í lengri eða skemmri tíma. „Við höfum meðal annars þjónu- stað leik- og grunnskóla þar sem upp hefur komið mygla og nauð- synlegt var að flytja starfsemina í annað húsnæði en einnig hefur verið mikið um afleysingarverkefni þar sem matráðar eru fjarverandi vegna veikinda,“ segir Jón. Skólamatur þjónustar nú leik- og grunnskóla í níu sveitarfélögum á suðvestur horninu. „Við sjáum að á undanförnum árum hefur vöxturinn verið í fjölgun leikskóla. Við finnum fyrir áframhaldandi eftirspurn og þessar framkvæmdir eru að sjálf- sögðu einnig partur af því að geta tekist á við aukna eftirspurn.“ Veturinn í vetur hefur gengið vel að mestu en þó hefur bæði covid og veðrið sett strik í reikninginn. „Það er búið að vera mikið um veikindi hjá okkur líkt og alls staðar í sam- félaginu. Þetta hefur þó gengið ótrú- lega vel. Við erum svo heppin að hjá okkur starfar frábært starfsfólk sem hefur lagt á sig mikla vinnu til þess að láta hlutina ganga upp. Samstarf okkar við starfsfólk skóla og leikskóla hefur einnig verið til fyrirmyndar og við höfum fengið ómetanlega aðstoð frá þeim á krefjandi tímum. Við öll sem samfélag höfum lært mikið af fyrri bylgjum faraldursins og upp- lifun okkar er sú að allir hafi lagst á eitt, hvort heldur sem um ræðir nem- endur, foreldra eða starfsmenn við að finna lausnir á þeim vandamálum sem upp hafa komið,“ segir Jón. Veðrið í vetur er önnur áskorun sem Skólamatur hefur þurft að takast á við. „Veturinn er búinn að vera þungur veðurfarslega. Hingað til hefur verið mjög óvenjulegt að Reykjanesbrautinni sé lokað vegna veðurs en það hefur komið upp nokkrum sinnum í vetur. Þetta hefur eðlilega haft áhrif á okkur og skapað auka álag á starfsfólkið okkar. En nú eru bjartari tímar framundan og við erum spennt fyrir komandi tímum og hlökkum til að taka nýja aðstöðu í gagnið. Við trúum því að nýja hús- næðið muni hjálpa til að ná þeim markmiðum sem við í Skólamat höfum sett okkur fyrir komandi framtíð,“ sagði Jón Axelsson, fram- kvæmdastjóri Skólamatar. Skólamatur stækkar og starfsemin eykst Fyrsta skóflustunga að nýju húsnæði Skólamatar. Starfsmenn nálgast tvöhundruð. Skólamatarfjölskyldan; Jón og Fanný Axelsbörn, Þórunn Halldórsdóttir og Axel Jónsson, stofnandi fyrirtækisins. TSA verktakar óska eftir trémiðum og iðnverkamönnum. Upplýsingar veita Stefán í s. 896-2788 og Ari í s. 894-0354. Einnig má senda upplýsingar á tsa@tsa.is ATVINNA TSA BREKKUSTÍG 38 NJARÐVÍK TJÓNASKOÐUN BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR Bolafæti 3 – Njarðvík Sími 421 4117 bilbot@simnet.is 4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.