Víkurfréttir - 30.03.2022, Qupperneq 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.isá timarit.is
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Akurskóli – Kennari í smíði og hönnun
Aspardalur – Búsetuúrræði fyrir fatlaða
Njarðvíkurskóli - Dönskukennsla í 7.-10. bekk
Leikskólinn Holt - Deildarstjórar
Leikskólinn Holt - Leikskólakennarar
Velferðarsvið - Starfsfólk á heimili fatlaðra barna.
Velferðarsvið – Stuðningsfjölskyldur
Velferðarsvið - Sérfræðingur í barnaverndarteymi
Starf við liðveislu
Fyrsta skóflustunga var tekin
að nýju húsnæði Skólamatar var
tekin á föstudag. Axel Jónsson og
Þórunn Halldórsdóttir, eiginkona
hans, eigendur Skólamatar, tóku
fyrstu skóflustunguna að viðstöddu
starfsfólki Skólamatar. Fram-
kvæmdir hefjast í beinu framhaldi
og stefnt er að því að húsnæðið
verði tilbúið að mestu leyti í haust.
Nýja húsnæðið er um 400 fermetra
viðbygging þar sem gert er ráð fyrir
eldhúsi á neðri hæð og skrifstofu og
matsal á efri hæð. Samhliða bygg-
ingunni munu verða gerðar breyt-
ingar á fyrra húsnæði.
Flóknari starfsemi
En af hverju er fyrirtækið að
stækka við sig?
„Fyrst og fremst er starfsemin
okkar alltaf að verða flóknari. Við
sérhæfum okkur í heildarlausnum
í matarmálum fyrir leik- og grunn-
skóla. Daglega bjóðum við upp á
morgunmat, ávaxtastund, tvírétt-
aðan hádegismat með meðlætisbar
og síðdegishressingu. En auk þess
sjáum við um að útvega mat fyrir
hverskyns uppbrotsdaga, til dæmis
nesti fyrir skólaferðalög, þorra-
smakk, rjómabollur á bolludaginn
og pylsuveislur. Þá er sífellt að fjölga
í hópi nemenda sem þurfa á sérfæði
að halda, en það eru þeir nemendur
sem vegna óþols, ofnæmis, trúar-
eða lífstílsskoðana geta ekki neitt
matar af hefðbundnum matseðli,“
segir Axel Jónsson í samtali við
Víkurfréttir.
Máltíðir Skólamatar eru undir-
búnar í framleiðslueldhúsi í Reykja-
nesbæ. Þaðan eru þær keyrðar út í
skólana þar sem eldunin fer fram.
„Hluti af þeim máltíðum sem
við bjóðum upp á eru eldaðar frá
grunni í framleiðslueldhúsinu okkar,
til dæmis lasagna, fiskibollurnar og
plokkfiskurinn. Aðrir réttir eru út-
búnir af innlendum framleiðendum
eftir uppskriftum frá Skólamat.
Stærsti misskilningurinn hjá fólki er
að það heldur að maturinn sé allur
eldaður hér í Reykjanesbæ og svo
keyrður út í skólana. Hið rétta er að
maturinn er undirbúinn í Reykja-
nesbæ og svo sér starfsfólk okkar
úti í skólunum um að elda matinn.
Starfsfólk skólanna sér einnig um
að skera niður ferska ávexti og
grænmeti fyrir meðlætisbarinn. Ný
og bætt aðstaða mun gera okkur
kleift að bæta gæði þjónustu okkar
enn frekar, meðal annars með því
að auka okkar framleiðslu og bæta
vöruframboð,“
Axel segir að þessar framkvæmdir
séu mikilvægt skref til þess að geta
áfram boðið upp á fyrsta flokks þjón-
ustu fyrir alla viðskiptavini.
„Með árunum hefur starfsemi
Skólamatar orðið sífellt flóknari og
fjölbreyttari. Nauðsynlegt er að öll
aðstaða sé til fyrirmyndar svo hægt
sé að mæta þeim kröfum sem bæði
við og viðskiptavinir gera til okkar,“
bætir Axel við.
170 starfsmenn
Starfsfólki Skólamatar hefur fjölgað
jafnt og þétt í takt við aukin umsvif
fyrirtækisins, en hjá því starfa nú um
170 starfsmenn en um 50 þeirra hafa
starfsstöð á Iðavöllum.
„Það er orðið ansi þröngt um
okkur hér í núverandi húsnæði.
Með tilkomu nýja húsnæðisins mun
öll starfsmannaaðstaða batna. Við
verðum meðal annars með stórt
og flott mötuneyti á eftir hæðinni
þar sem verður nóg pláss fyrir alla
að borða saman. Við erum, líkt og
flestir aðrir, erum búin að fá alveg
nóg af hólfaskiptingum og öðrum
samkomutakmörkunum sem við
höfum þurft að lifa við undanfarin
tvö ár. Við vorum þó svo heppin að
ná að halda árshátíð síðastliðið haust
og þá fundum við vel hversu mikil-
vægt það er að fá að hittast og hafa
gaman saman,“ sagði Fanný Axels-
dóttir mannauðsstjóri Skólamatar.
Ný verkefni og áskoranir
Jón Axelsson, framkvæmdastjóri
Skólamatar, segir að afleysingar-
þjónusta hafi aukist mikið hjá fyrir-
tækinu síðan að kórónuveirufar-
aldurinn skall á. Margir skólar og
leikskólar sem eru að upplifa tíma-
bundin vandræði með matarþjón-
ustu hafa nýtt sér þjónustu Skóla-
matar í lengri eða skemmri tíma.
„Við höfum meðal annars þjónu-
stað leik- og grunnskóla þar sem
upp hefur komið mygla og nauð-
synlegt var að flytja starfsemina í
annað húsnæði en einnig hefur verið
mikið um afleysingarverkefni þar
sem matráðar eru fjarverandi vegna
veikinda,“ segir Jón.
Skólamatur þjónustar nú leik- og
grunnskóla í níu sveitarfélögum á
suðvestur horninu. „Við sjáum að á
undanförnum árum hefur vöxturinn
verið í fjölgun leikskóla. Við finnum
fyrir áframhaldandi eftirspurn og
þessar framkvæmdir eru að sjálf-
sögðu einnig partur af því að geta
tekist á við aukna eftirspurn.“
Veturinn í vetur hefur gengið vel
að mestu en þó hefur bæði covid og
veðrið sett strik í reikninginn. „Það
er búið að vera mikið um veikindi
hjá okkur líkt og alls staðar í sam-
félaginu. Þetta hefur þó gengið ótrú-
lega vel. Við erum svo heppin að hjá
okkur starfar frábært starfsfólk sem
hefur lagt á sig mikla vinnu til þess
að láta hlutina ganga upp. Samstarf
okkar við starfsfólk skóla og leikskóla
hefur einnig verið til fyrirmyndar og
við höfum fengið ómetanlega aðstoð
frá þeim á krefjandi tímum. Við öll
sem samfélag höfum lært mikið af
fyrri bylgjum faraldursins og upp-
lifun okkar er sú að allir hafi lagst á
eitt, hvort heldur sem um ræðir nem-
endur, foreldra eða starfsmenn við
að finna lausnir á þeim vandamálum
sem upp hafa komið,“ segir Jón.
Veðrið í vetur er önnur áskorun
sem Skólamatur hefur þurft að
takast á við. „Veturinn er búinn að
vera þungur veðurfarslega. Hingað
til hefur verið mjög óvenjulegt að
Reykjanesbrautinni sé lokað vegna
veðurs en það hefur komið upp
nokkrum sinnum í vetur. Þetta hefur
eðlilega haft áhrif á okkur og skapað
auka álag á starfsfólkið okkar. En nú
eru bjartari tímar framundan og við
erum spennt fyrir komandi tímum
og hlökkum til að taka nýja aðstöðu
í gagnið. Við trúum því að nýja hús-
næðið muni hjálpa til að ná þeim
markmiðum sem við í Skólamat
höfum sett okkur fyrir komandi
framtíð,“ sagði Jón Axelsson, fram-
kvæmdastjóri Skólamatar.
Skólamatur stækkar
og starfsemin eykst
Fyrsta skóflustunga að nýju húsnæði
Skólamatar. Starfsmenn nálgast tvöhundruð.
Skólamatarfjölskyldan; Jón og Fanný
Axelsbörn, Þórunn Halldórsdóttir og Axel
Jónsson, stofnandi fyrirtækisins.
TSA verktakar óska eftir trémiðum
og iðnverkamönnum.
Upplýsingar veita Stefán í s. 896-2788
og Ari í s. 894-0354.
Einnig má senda upplýsingar á
tsa@tsa.is
ATVINNA
TSA
BREKKUSTÍG 38
NJARÐVÍK
TJÓNASKOÐUN
BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR
BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR
INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI
MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR
Bolafæti 3 – Njarðvík
Sími 421 4117
bilbot@simnet.is
4 // vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM