Víkurfréttir - 30.11.2022, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Tuttugu verslanir og þjónustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku
Víkurfrétta 2022 sem hefst 1. desember en þetta er í tuttuguasta
og fyrsta skipti sem Víkurfréttir standa fyrir þessum vinsæla skaf-
miðaleik í samvinnu við verslanir og þjónustuaðila í desember.
Fimm þúsund og sexhundruð vinn-
ingar eru í Jólalukkunni en auk þess
verða glæsilegir vinningar dregnir
út þrisvar sinnum í desember, m.a.
tvö 65“ LG UHD sjónvörp, tvö 100
þúsund króna gjafabréf, þrjú 50
þúsund og tutugu 15 þúsund króna
gjafabréf í Nettó appinu. Þá verður
dreginn út hótelgisting og kvöld-
verður fyrir tvo á Dimond Suites
á Hótel Keflavík og hótelgisting og
morgunverður á Courtyard by Mar-
riott í Reykjanesbæ. Þá má nefnda
fleiri veglega vinninga, m.a. pizzaofn
frá Nettó, háþrýstidæla frá Múrbúð-
inni og jólakonfekt frá Nóa/Síríus og
Nettó.
Margir veglegir vinningar eru
á skafmiðum, m.a. gjafabréf frá
Bláa lóninu og Retreat lúxus spa,
gjafabréf frá fjölda veitingastaða í
Reykjanesbæ, vinsælustu jólabæk-
urnar í ár, jólamatur, fimmtíu átta
þúsund króna gjafabréf frá tuttugu
verslunum og margt, margt fleira.
Vinningar eru frá yfir fimmtíu fyrir-
tækjum og aðilum á Suðurnesjum.
Jólalukkan hefst 1. desember en í
þessum vinsæla jólaleik fá viðskipta-
vinir tuttugu verslana og fyrirtækja
sem bjóða Jólalukku, skafmiða þegar
verslað er fyrir 7.000 kr. Listi yfir þá
aðila sem bjóða Jólalukku VF má sjá
í auglýsingu í blaði vikunnar.
Útdrættir verða þrisvar í des-
ember og er fólk hvatt til að fara
með skafmiða með engum vinningi
í kassa sem eru í verslunum Nettó
í Reykjanesbæ og Grindavík. Nöfn
vinningshafa verða birt í Víkur-
fréttum og á vf.is.
Fimmþúsund og sex hundruð vinningar frá fimmtíu fyrirtækjum á Suðurnesjum auk veglegra
útdráttarvinninga, m.a. tvö 65“ LG sjónvarpstæki, 25 gjafabréf í Nettó appi, 100, 50 og 15 þúsund kr. ,
gisting á Dimond Suites og á Courtyard by Marriott og háþrýstidæla frá Múrbúðinni.
Skafmiðaleikur Víkurfrétta 2022
Jólalukka
Sýningu á bátaflota Gríms
Karlssonar í Bryggjuhúsi Duus
safnahúsa verður tímabundið
lokað frá og með 28. nóvember
2022 vegna framkvæmda. Lyfta
verður sett í húsið sem mun
bæta aðgengi gesta að sýning-
unni.
Þá hefur bæjarráð Reykja-
nesbæjar samþykkt erindi þar
sem óskað er eftir að fá að nýta
fjárheimildir sem ætlaðar voru í
framkvæmdir í Duus Safnahúsum
til að styrkja gólf í Bryggjuhúsi
svo tryggja megi áframhaldandi
sýningarhald þar og aðgengi fyrir
alla.
Pólsk menningarhátíð Reykja-
nesbæjar var haldin með góðum
árangri í fimmta sinn dagana 10.
til 13. nóvember. Helsta markmið
hátíðarinnar er að hvetja íbúa af
pólskum uppruna til aukinnar
virkni og þátttöku í samfélaginu en
einn af hverjum sex íbúum Reykja-
nesbæjar hefur pólskt ríkisfang.
Annað markmið með pólsku
menningarhátíðinni er að lyfta upp
menningu þessa stóra hóps og sýna
hversu fjölbreyttur hann í raun er.
Þetta var í síðasta sinn sem
Reykjanesbær stendur fyrir hátíð-
inni með þessum hætti og afhendir
nú keflið til íbúa. Reykjanesbær
vonast eftir áframhaldandi ríkri
þátttöku íbúa í hátíðarhaldi sveitar-
félagsins, óháð aldri, uppruna, kyni
eða öðru. Menningar- og atvinnuráð
Reykjanesbæjar þakkar þeim stóra
hópi sem kom að skipulagi, undir-
búningi og framkvæmd hátíðarinnar.
Fyrir hefur legið í nokkurn tíma
nauðsyn þess að færa Þjóðbraut,
sem liggur á landi GG Bygg sem
vinnur nú að uppbyggingu Hlíðar-
hverfis II í Reykjanesbæ. GG Bygg
hefur undanfarið þrýst á það að
vegurinn verði færður. Þjóðbraut er
þjóðvegur í þéttbýli og sem slíkur á
ábyrgð og forræði Vegagerðar.
Reykjanesbæ hafa nú borist svör
frá Vegagerðinni um að Þjóðbraut
væri mögulega að detta út af lista
yfir þjóðvegi í þéttbýli vegna þess
að afli sem kemur um hafnir sem
tengjast Þjóðbraut, Keflavíkur- og
Njarðvíkurhöfn, væri undir þeim
mörkum sem Vegagerð setur sér sem
viðmið um þjóðvegi í þéttbýli.
Vegna tímapressu hefur Guð-
laugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri
umhverfissviðs, lagt til við bæjar-
yfirvöld Reykjanesbær að þau kosti
þessa framkvæmd og eigi þá kröfu
á Vegagerðina þegar tryggt verður
að Þjóðbraut verði áfram þjóðvegur
í þéttbýli, m.a. vegna uppbyggingar
við Njarðvíkurhöfn.
Hönnun liggur fyrir og farið er
eftir öllum stöðlum sem Vegagerðin
gerir til slíkra vega. Þá hefur GG
Bygg gefið sveitarfélaginu tölu í
verkið þar sem þeir eru með tæki og
tól á staðnum. Niðurstöður tilboðs
og kostnaðaráætlun var lögð fyrir
bæjarráð Reykjanesbæjar, sem hefur
samþykkt erindið og falið sviðsstjóra
umhverfissviðs og bæjarstjóra að
undirrita samninga við GG Bygg.
Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur
samþykkt umsókn BRONS 230
ehf. um rekstur veitingastaðar
að Sólvallagötu 2 í Keflavík fyrir
sitt leyti með vísan til fyrirliggj-
andi umsagna.
Umsókn BRONS 230 ehf. var
tekin fyrir í erindi Sýslumannsins
á Suðurnesjum vegna umsóknar
um leyfi til að reka veitingastað
í flokki II. Lagðar voru fram um-
sagnir byggingarfulltrúa Reykja-
nesbæjar, Brunavarna Suðurnesja
og Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
sem mælir með að Brons ehf verði
veitt leyfi til eins árs þar sem
óvissa er um grenndaráhrif.
Síðasta sinn sem Reykjanesbær
stendur fyrir pólskri menningarhátíð
Færa Þjóðbraut í Reykjanesbæ sem
er að missa titil vegna lítils afla
Brons fær leyfi
Setja lyftu í Bryggju-
húsið og styrkja gólfið
JÓLALUKKA VF Í TUTTUGASTA OG
FYRSTA SINN Í 20 VERSLUNUM
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM