Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 18

Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 18
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 45. ÞÁTTUR FÓLK Í SKÓLASÖGU VOGA Hér er getið margra sem starfað hafa lengi við skólann og látið að sér kveða. Sr. Stefán Thorarensen, frum- kvöðull og stofnandi skólans 1872. Sjá mynd og umfjöllun í þáttum 1–15, 21, 22 og 36. Sr. Árni Þorsteinsson tók við af Stefáni sem formaður skólanefnd- arinnar. Hann var einnig m.a. aðal- kennari í Norðurkotsskóla í nokkur ár, kenndi m.a. söng og íþróttir. Sjá þætti 18, 19, 22, 32 og 37. Pétur Pétursson kenndi í fimm ár, 1878–1883 (enginn á undan honum kenndi lengur en tvö ár). Pétur var faðir Helga Pjeturs, náttúrufræðings og heimspekings, sjá þátt 18. Sigurjón Jónsson var kennari 1886–1898, í tólf ár, hann bjó í Minni-Vogum. Sem trésmiður átti hann ríkan þátt í smíði kirkjunnar að Kálfatjörn og var einn af stofn- endum stúkunnar Díönu 1896. Sjá þátt 18 og 22. Árni Theodór Pjetursson kennari 1889–1898 og kennari/skólastjóri 1910–1920, alls 19 ár. Árni var odd- viti um skeið. Sjá þætti 18, 19 og 25. Jón Gestur Breiðfjörð Brunna- stöðum, kennari frá 1898 þar til hann lést 1903, þá 28 ára. Þættir 18, 19 og 22. Ólafur Guðjónsson kennari 1905– 1909, lést þá úr berklum. Virkur í Ungmennafélagi Vatnsleysustrandar. Sjá þætti 18, 22 og 30. Kristmann Runólfsson. Kennara- próf 1910. Kenndi hér 1909–1912, 1920–1921 og 1923–1925. Bóndi í Hlöðversnesi frá 1923 til dauðadags 1954. Oddviti í áratug, sat einnig í sýslunefnd og skólanefnd. Sjá þætti 19, 23, 25 og 30. Viktoría Guðmundsdóttir kennari og skólastjóri 1921–1952, samfleytt í 31 ár! Veitti forstöðu stúku og stofnaði og stýrði barnastúkunni Ársól flest sín starfsár. Sjá þætti 25, 26, 27, 29, 30, 33 og 37. Ingibjörg Erlendsdóttir frá Kálfa- tjörn kenndi nokkur ár í Vatnsleysu- skóla og Kirkjuhvolsskóla, var einnig prófdómari. Síðan lengi kennari í Reykjavík. Sjá þætti 23, 24 og 33. Stefán Hallsson, kennari 1934–1945, kenndi yngri deild, einnig söng og íþróttir. Landsins fyrsti skólabíl- stjóri. Listaskrifari og organisti. Flutti ávarp og ljóð á vígsluhátíð Stóru-Vogaskóla 1979. Sjá þætti 26, 28, 32 og 33. Jón H. Kristjánsson skólastjóri 1952–1962 með eins árs hléi. Kennari áður og eftir, þ.e 1946-1949 og 1970–1985, samtals 26 ár, jafnframt skólabílstjóri um tíma. Rak um tíma verslun í Vogum og var frumkvöðull að gerð smábátahafnar sem við hann er kennd (Jónsvör). Sjá þætti 28, 32 og 38. Ellert B. Sigurbjörnsson, skólastjóri 1962–1967. Var síðar lengi yfirþýð- andi hjá Ríkisútvarpinu og gaf út ritið Mál og mynd, leiðbeiningar um textagerð, þýðingar og málfar. Sjá þætti 29 og 35. Þórir S. Guðbergsson skólastjóri 1967–1970. Varð síðar félagsráðgjafi, rithöfundur og frumkvöðull í öldr- unarmálum. Sjá þátt 29 og 34. Hreinn Ásgrímsson. Skólastjóri 1972–1985, með árs orlofi. Var í sveitarstjórn og byggingarnefnd Stóru-Vogaskóla, nefnd um byggingu sundlaugar, í stjórn Hitaveitu Suður- nesja og Fjölbrautaskóla Suðurnesja, einn af stofnfélögum Lionsklúbbsins Keilis. Hann veiktist og lést ári eftir að hann lét af störfum. Sjá þætti 33–35 og 40. Helga Sigríður Árnadóttir kenndi í 50 ár, 1955–2004, síðustu árin heim- ilisfræði. Sjá þætti 38 og 44. Jón Ingi Baldvinsson starfaði við skólann 1978–2022 með árs hléi. Smíðakennari, kennari, aðstoðar- skólastjóri og náms- og starfsráð- gjafi. Virkur í bæjarmálum og golf- klúbbnum. Segir frá honum í 34., 38., 42. og 44. þætti. Guðmundur Þórðarson íþrótta- kennari frá 1983, er enn í hlutastarfi. Sjá þætti 32, 35 og 44. Særún Jónsdóttir prófdómari 1972–1978 og virk í bæjarmálum. Kennari 1979–1997 og 2009–2019, alls 28 ár. Lengi ritari kennarafunda. Meðal annars frumkvöðull kennslu um heimabyggðina og um land- græðslustarf skólans ásamt Höllu. Þrjár dætur hennar hafa kennt við skólann, Guðrún og Oktavía, kenna þar nú. Faðir Særúnar, Jón Gestur Ben, var lengi oddviti. Hann stóð m.a. fyrir byggingu Brunnastaða- skóla og frystihúss Voga hf. Sjá þætti 38, 39 og 41. Halla Jóna Guðmundsdóttir kenndi 28 ár, 1987–2018. Meðal annars frumkvöðull kennslu um heima- byggðina og um skráningu göngu- leiða í nágrenni skólans ásamt Sæ- rúnu. Sjá þætti 39, 40, 41 og 43. Sesselja Sigurðardóttir á Hellum (Lella) 1976–1988, stundakennari í handavinnu, kenndi einnig 3. bekk einn vetur. Sjá 38. þátt. Steinarr Þór Þórðarson kenndi 1988–2003, aðallega íslensku á unglingastigi. Inger Christensen 1991–2018 ýmist sem leiðbeinandi, einkum í mynd- list, textíl og dönsku. Vann einnig við stuðning og þrif. Sjá þætti 41 og 43. Bergsvein Auðunsson skólastjóri 1986–1996. Stofnaði m.a. til árs- hátíðar nemenda, sem síðan hefur verið haldin árlega. Sjá þætti 34 og 40. Snæbjörn Reynisson skólastjóri 1996–2007, á miklu vaxtarskeiði skólans þegar nemendafjöldi nær tvöfaldaðist og byggt var við skólann tvívegis svo flatarmálið fjórfaldaðist, undir hans stjórn. Vann einnig að menningarmálum sveitarfélagsins. Sjá þætti 33 og 40. Helgi Hólm kennari 1994–2012. Frumkvöðull að tölvukennslu í skól- anum. Var lengi ritstjóri tímaritsins Faxa. Sjá þátt 41. Helgi Már Eggertsson, smíða- kennari 1998–2008, var einnig með námskeið fyrir eldri borgara. Sjá þátt 38. Kristín Halldórsdóttir leiðbeinandi aðallega í íslensku, hún var fyrsti stuðningsfulltrúi skólans og sum árin almennur starfsmaður. Alls 28 ár, 1994–2022, er enn við störf. Erna Margrét Gunnlaugsdóttir, fósturdóttir Jóns Inga, hefur kennt í 23 ár, fyrst sem nýstúdent 1991 og kennari frá 1996 að undanskildum þrem árum og er enn við störf. Þorvaldur Örn Árnason, líffræð- ingur, kenndi náttúrufræði við skólann 2000–2016, sjá þætti 39 og 40. Inga Sigrún Atladóttir kennari 2001–2010 og lengst af deildarstjóri, forseti bæjarstjórnar 2010-2013. Valgerður Guðlaugsdóttir, mynd- listarkona, kenndi myndlist við skólann í fimmtán ár, frá 2006 þar til hún lést í ársbyrjun 2021. Sjá þátt 38. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, mynd- listarmaður og maður Valgerðar, leysti hana af í barnsburðarleyfi 2010, var síðan smíðakennari 2012– 2021. Tók svo við myndlistinni 2022. Sjá þátt 38. Marc Portal enskukennari frá 2008 og frumkvöðull í Evrópusamstarfi skólans. Sjá þátt 41. Hannes Birgir Hjálmarsson kennari frá 2009 á unglingastigi, einnig í tölvumálum og erlendum sam- skiptum. Blúsari með meiru. Sjá þátt 41. Guðbjörg Kristmundsdóttir kennari 2003–3012, fór síðan í Virk, varð svo formaður VSFK. Þórdís Símonardóttir, fyrsti ritari skólans, frá 2002–2015. Þá tók Svan- hildur Kristinsdóttir við. Laufey Waage píanókennari og for- stöðumaður tónlistar frá 2010 og starfar enn. Sjá þátt 37. Svava Bogadóttir skólastjóri 2008– 2018, kom m.a. á fót námsveri fyrir börn með sérþarfir og Riddaragarði fyrir nemendur með hegðunar- vanda, hún kom á skólaþingi nem- enda í nokkur ár. Bókasafnsvörður í hlutastarfi eftir að skólastjórn lauk. Sjá þátt 40. Hálfdan Þorsteinsson aðstoðar- skólstjóri 2012–2018, skólastjóri 2018–2021. Hilmar Egill Sveinbjörnsson , kennari frá 2004, aðstoðarskóla- stjóri 2018–2021, skólastjóri frá 2021. Hann er landfræðingur og hefur samið landafræðnámsefni. Virkur í bæjarmálum og í golf- klúbbnum Keili. Sjá þátt 40. Fyrstu formenn skólanefndar voru: Stefán Thorarensen 1872–1886, Árni Þorsteinsson 1886 - 1910, Sig- urjón J. Waage 1910–1915, Sæmundur Klemensson 1916–1921, Guðmundur Jóhannesson 1922–1923, Sveinn Pálsson 1923–1926, Árni Klemens Hallgrímsson 1926–1958, í 32 ár, um tíma í hreppsnefnd og hreppstjóri, lengi stöðvarstjóri pósts og síma. (þættir 30, Símon Kristjánsson á Neðri-Brunnastöðum tók við for- mennsku af Árna 1958, og voru með honum Guðmundur Björgvin Jónsson, Lyngholti (ritari) og Ey- þóra Þórðardóttir, Ásgarði. Guðm. B skrifaði ítarlegar fundargerðir. Símon var formaður til 1974. Móðir hans, Margrét Jóhannsdóttir, sá um hús- vörslu og ræstingar skólans 1973 til dauðadags 1985 og Símon og dóttir þeirra, Þórdís, aðstoðuðu hana og tóku við af henni í tvö ár. Guðríður Anddrésdóttir, var fyrsta konan í skólanefnd, frá 1931 til 1950. Síðan tók Eyþóra Þórðar- dóttir, þar sæti 1958 og sat lengi. Jón Guðnason, Landakoti var formaður skólanefndar 1974–1985 og kenndi jafnframt tónlist, enda organisti. Hreiðar Guðmundsson tók við af honum 1985. Allir fyrrgreindir for- menn eru á mynd í Faxa 1990. Heimildir: Sjá fyrri þætti. Einnig byggt á samtölum við starfsfólk og ferilskrá Ingu Sigrúnar Atladóttur. Einnig Faxa 1990. Langar að verða skurðlæknir „Mér finnst að skólinn og skólastjórnendur ættu að hjálpa nefndum skólans meira, eins og t.d. að hjálpa þeim að finna al- mennilega aðstöðu til að funda eftir skóla til að styðja við félagslíf nemenda,“ segir Aris, eins og hún er oftast kölluð, en hún er í auglýsinganefnd skólans. Hvers saknar þú mest við grunnskóla? Ég sakna þess að vera með bekkjar- kerfi, allir verða mun nánari þá. Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS? Ég fór í rauninni í FS því ég nennti ekki að keyra í bæinn á hverjum degi og þekkti fólkið í skólanum. Hver er helsti kosturinn við FS? Helsti kosturinn er að maður fær að kynnast fleirum sem búa í bæjarfélaginu sínu. Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Félagslífið sjálft er mjög gott en mér finnst að skólinn og skólastjórnendur ættu að hjálpa nefndum skólans meira, eins og t.d. að hjálpa þeim að finna almennilega aðstöðu til að funda eftir skóla til að styðja við félagslíf nemenda. Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Betsý Ásta, ég sé fyrir mér að hún komist langt í pólitík. Hver er fyndnastur í skólanum? Klárlega Helena Mjöll Vilhjálmsdóttir. Hvað hræðist þú mest? Sjórinn er ekki í miklu uppáhaldi hjá mér, maður veit aldrei hvað gæti verið undir manni. Hvað er heitt og hvað er kalt þessa stundina? Heitt: Brasilíska landsliðið. Kalt: Brynjar Berg á Twitter. Hvert er uppáhaldslagið þitt? Er ekki beint með eitt uppáhaldslag en einmitt núna er ég mikið að hlusta á I Came Thru með YoungBoy. Hver er þinn helsti kostur? Ég myndi segja að ég væri samviskusöm og metnaðarfull. Hvaða forrit eru mest notuð í símanum þínum? TikTok og Snapchat. Hver er stefnan fyrir framtíðina? Ég stefni á læknisfræðina og mig langar að verða skurðlæknir. Hver er þinn stærsti draumur? Mig langar rosalega að flytja til Noregs og starfa sem læknir þar. Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það og af hverju? Traust, út af því að ég er traust vinkona. Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Myndi vilja verja tíma með vini sínum á eyðieyju Stefán Máni myndi taka símann sinn, vatn og Mikka vin sinn með sér á eyðieyju. Hans helstu áhugamál eru bardaga- íþróttir, fótbolti og félagsstörf og hann langar að verða hár- greiðslumaður í framtíðinni. Hvert er skemmtilegasta fagið? Íþróttir er skemmtilegasta fagið. Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Mikki er líklegastur að verða frægur útaf hann er svo vinsæll. Skemmtilegasta saga úr skólanum: Skemmtilegasta sagan úr skólanum er draugarnir í kjallaranum. Hver er fyndnastur í skólanum? Mikki er fyndnastur. Hvert er uppáhaldslagið þitt? Uppáhaldslagið mitt er 200 með Birni. Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Uppáhaldsmaturinn minn er pasta. Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Uppá- haldsmyndin mín er Civil War Avengers. Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju og hvers vegna? Það sem ég myndi taka með mér á eyðieyju er símann minn, vatn og Mikka. Hver er þinn helsti kostur? Minn helsti kostur er að ég er góður í íþróttum. Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað myndir þú velja? Ofurkrafturinn sem ég myndi velja er ofurstyrkur. Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Besti eiginleiki í fari fólks er jákvæðni. Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla? Það sem mig langar að gera eftir grunn- skóla er læra að vera hárgreiðslumaður. Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það? Orðið sem myndi lýsa mér er orkumikill. FS-ingur vikunnar: Nafn: Ágústa Aris Aradóttir Aldur: 18 ára Námsbraut: Raunvísindabraut Áhugamál: Ferðast og skoða mismunandi menningarheima Ungmenni vikunnar Nafn: Stefán Máni Stefánsson Aldur: 14 ára Skóli: Akurskóli Bekkur: 9. bekkur Áhugamál: Bardagaíþróttir, fótbolti og félagsstörf 18 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.