Víkurfréttir - 30.11.2022, Qupperneq 18
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
45. ÞÁTTUR
FÓLK Í SKÓLASÖGU VOGA
Hér er getið margra sem starfað
hafa lengi við skólann og látið að
sér kveða.
Sr. Stefán Thorarensen, frum-
kvöðull og stofnandi skólans 1872.
Sjá mynd og umfjöllun í þáttum 1–15,
21, 22 og 36.
Sr. Árni Þorsteinsson tók við af
Stefáni sem formaður skólanefnd-
arinnar. Hann var einnig m.a. aðal-
kennari í Norðurkotsskóla í nokkur
ár, kenndi m.a. söng og íþróttir. Sjá
þætti 18, 19, 22, 32 og 37.
Pétur Pétursson kenndi í fimm ár,
1878–1883 (enginn á undan honum
kenndi lengur en tvö ár). Pétur var
faðir Helga Pjeturs, náttúrufræðings
og heimspekings, sjá þátt 18.
Sigurjón Jónsson var kennari
1886–1898, í tólf ár, hann bjó í
Minni-Vogum. Sem trésmiður átti
hann ríkan þátt í smíði kirkjunnar
að Kálfatjörn og var einn af stofn-
endum stúkunnar Díönu 1896. Sjá
þátt 18 og 22.
Árni Theodór Pjetursson kennari
1889–1898 og kennari/skólastjóri
1910–1920, alls 19 ár. Árni var odd-
viti um skeið. Sjá þætti 18, 19 og 25.
Jón Gestur Breiðfjörð Brunna-
stöðum, kennari frá 1898 þar til
hann lést 1903, þá 28 ára. Þættir 18,
19 og 22.
Ólafur Guðjónsson kennari 1905–
1909, lést þá úr berklum. Virkur í
Ungmennafélagi Vatnsleysustrandar.
Sjá þætti 18, 22 og 30.
Kristmann Runólfsson. Kennara-
próf 1910. Kenndi hér 1909–1912,
1920–1921 og 1923–1925. Bóndi í
Hlöðversnesi frá 1923 til dauðadags
1954. Oddviti í áratug, sat einnig í
sýslunefnd og skólanefnd. Sjá þætti
19, 23, 25 og 30.
Viktoría Guðmundsdóttir kennari
og skólastjóri 1921–1952, samfleytt
í 31 ár! Veitti forstöðu stúku og
stofnaði og stýrði barnastúkunni
Ársól flest sín starfsár. Sjá þætti 25,
26, 27, 29, 30, 33 og 37.
Ingibjörg Erlendsdóttir frá Kálfa-
tjörn kenndi nokkur ár í Vatnsleysu-
skóla og Kirkjuhvolsskóla, var einnig
prófdómari. Síðan lengi kennari í
Reykjavík. Sjá þætti 23, 24 og 33.
Stefán Hallsson, kennari 1934–1945,
kenndi yngri deild, einnig söng og
íþróttir. Landsins fyrsti skólabíl-
stjóri. Listaskrifari og organisti.
Flutti ávarp og ljóð á vígsluhátíð
Stóru-Vogaskóla 1979. Sjá þætti 26,
28, 32 og 33.
Jón H. Kristjánsson skólastjóri
1952–1962 með eins árs hléi. Kennari
áður og eftir, þ.e 1946-1949 og
1970–1985, samtals 26 ár, jafnframt
skólabílstjóri um tíma. Rak um tíma
verslun í Vogum og var frumkvöðull
að gerð smábátahafnar sem við hann
er kennd (Jónsvör). Sjá þætti 28, 32
og 38.
Ellert B. Sigurbjörnsson, skólastjóri
1962–1967. Var síðar lengi yfirþýð-
andi hjá Ríkisútvarpinu og gaf út
ritið Mál og mynd, leiðbeiningar um
textagerð, þýðingar og málfar. Sjá
þætti 29 og 35.
Þórir S. Guðbergsson skólastjóri
1967–1970. Varð síðar félagsráðgjafi,
rithöfundur og frumkvöðull í öldr-
unarmálum. Sjá þátt 29 og 34.
Hreinn Ásgrímsson. Skólastjóri
1972–1985, með árs orlofi. Var í
sveitarstjórn og byggingarnefnd
Stóru-Vogaskóla, nefnd um byggingu
sundlaugar, í stjórn Hitaveitu Suður-
nesja og Fjölbrautaskóla Suðurnesja,
einn af stofnfélögum Lionsklúbbsins
Keilis. Hann veiktist og lést ári eftir
að hann lét af störfum. Sjá þætti
33–35 og 40.
Helga Sigríður Árnadóttir kenndi í
50 ár, 1955–2004, síðustu árin heim-
ilisfræði. Sjá þætti 38 og 44.
Jón Ingi Baldvinsson starfaði við
skólann 1978–2022 með árs hléi.
Smíðakennari, kennari, aðstoðar-
skólastjóri og náms- og starfsráð-
gjafi. Virkur í bæjarmálum og golf-
klúbbnum. Segir frá honum í 34., 38.,
42. og 44. þætti.
Guðmundur Þórðarson íþrótta-
kennari frá 1983, er enn í hlutastarfi.
Sjá þætti 32, 35 og 44.
Særún Jónsdóttir prófdómari
1972–1978 og virk í bæjarmálum.
Kennari 1979–1997 og 2009–2019,
alls 28 ár. Lengi ritari kennarafunda.
Meðal annars frumkvöðull kennslu
um heimabyggðina og um land-
græðslustarf skólans ásamt Höllu.
Þrjár dætur hennar hafa kennt við
skólann, Guðrún og Oktavía, kenna
þar nú. Faðir Særúnar, Jón Gestur
Ben, var lengi oddviti. Hann stóð
m.a. fyrir byggingu Brunnastaða-
skóla og frystihúss Voga hf. Sjá þætti
38, 39 og 41.
Halla Jóna Guðmundsdóttir kenndi
28 ár, 1987–2018. Meðal annars
frumkvöðull kennslu um heima-
byggðina og um skráningu göngu-
leiða í nágrenni skólans ásamt Sæ-
rúnu. Sjá þætti 39, 40, 41 og 43.
Sesselja Sigurðardóttir á Hellum
(Lella) 1976–1988, stundakennari í
handavinnu, kenndi einnig 3. bekk
einn vetur. Sjá 38. þátt.
Steinarr Þór Þórðarson kenndi
1988–2003, aðallega íslensku á
unglingastigi.
Inger Christensen 1991–2018 ýmist
sem leiðbeinandi, einkum í mynd-
list, textíl og dönsku. Vann einnig við
stuðning og þrif. Sjá þætti 41 og 43.
Bergsvein Auðunsson skólastjóri
1986–1996. Stofnaði m.a. til árs-
hátíðar nemenda, sem síðan hefur
verið haldin árlega. Sjá þætti 34 og
40.
Snæbjörn Reynisson skólastjóri
1996–2007, á miklu vaxtarskeiði
skólans þegar nemendafjöldi nær
tvöfaldaðist og byggt var við skólann
tvívegis svo flatarmálið fjórfaldaðist,
undir hans stjórn. Vann einnig að
menningarmálum sveitarfélagsins.
Sjá þætti 33 og 40.
Helgi Hólm kennari 1994–2012.
Frumkvöðull að tölvukennslu í skól-
anum. Var lengi ritstjóri tímaritsins
Faxa. Sjá þátt 41.
Helgi Már Eggertsson, smíða-
kennari 1998–2008, var einnig með
námskeið fyrir eldri borgara. Sjá þátt
38.
Kristín Halldórsdóttir leiðbeinandi
aðallega í íslensku, hún var fyrsti
stuðningsfulltrúi skólans og sum
árin almennur starfsmaður. Alls 28
ár, 1994–2022, er enn við störf.
Erna Margrét Gunnlaugsdóttir,
fósturdóttir Jóns Inga, hefur kennt
í 23 ár, fyrst sem nýstúdent 1991 og
kennari frá 1996 að undanskildum
þrem árum og er enn við störf.
Þorvaldur Örn Árnason, líffræð-
ingur, kenndi náttúrufræði við
skólann 2000–2016, sjá þætti 39
og 40.
Inga Sigrún Atladóttir kennari
2001–2010 og lengst af deildarstjóri,
forseti bæjarstjórnar 2010-2013.
Valgerður Guðlaugsdóttir, mynd-
listarkona, kenndi myndlist við
skólann í fimmtán ár, frá 2006 þar
til hún lést í ársbyrjun 2021. Sjá þátt
38.
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson, mynd-
listarmaður og maður Valgerðar,
leysti hana af í barnsburðarleyfi
2010, var síðan smíðakennari 2012–
2021. Tók svo við myndlistinni
2022. Sjá þátt 38.
Marc Portal enskukennari frá 2008
og frumkvöðull í Evrópusamstarfi
skólans. Sjá þátt 41.
Hannes Birgir Hjálmarsson kennari
frá 2009 á unglingastigi, einnig
í tölvumálum og erlendum sam-
skiptum. Blúsari með meiru. Sjá
þátt 41.
Guðbjörg Kristmundsdóttir kennari
2003–3012, fór síðan í Virk, varð svo
formaður VSFK.
Þórdís Símonardóttir, fyrsti ritari
skólans, frá 2002–2015. Þá tók Svan-
hildur Kristinsdóttir við.
Laufey Waage píanókennari og for-
stöðumaður tónlistar frá 2010 og
starfar enn. Sjá þátt 37.
Svava Bogadóttir skólastjóri 2008–
2018, kom m.a. á fót námsveri fyrir
börn með sérþarfir og Riddaragarði
fyrir nemendur með hegðunar-
vanda, hún kom á skólaþingi nem-
enda í nokkur ár. Bókasafnsvörður í
hlutastarfi eftir að skólastjórn lauk.
Sjá þátt 40.
Hálfdan Þorsteinsson aðstoðar-
skólstjóri 2012–2018, skólastjóri
2018–2021.
Hilmar Egill Sveinbjörnsson ,
kennari frá 2004, aðstoðarskóla-
stjóri 2018–2021, skólastjóri frá
2021. Hann er landfræðingur og
hefur samið landafræðnámsefni.
Virkur í bæjarmálum og í golf-
klúbbnum Keili. Sjá þátt 40.
Fyrstu formenn skólanefndar voru:
Stefán Thorarensen 1872–1886,
Árni Þorsteinsson 1886 - 1910, Sig-
urjón J. Waage 1910–1915, Sæmundur
Klemensson 1916–1921, Guðmundur
Jóhannesson 1922–1923, Sveinn
Pálsson 1923–1926, Árni Klemens
Hallgrímsson 1926–1958, í 32 ár, um
tíma í hreppsnefnd og hreppstjóri,
lengi stöðvarstjóri pósts og síma.
(þættir 30, Símon Kristjánsson á
Neðri-Brunnastöðum tók við for-
mennsku af Árna 1958, og voru
með honum Guðmundur Björgvin
Jónsson, Lyngholti (ritari) og Ey-
þóra Þórðardóttir, Ásgarði. Guðm. B
skrifaði ítarlegar fundargerðir. Símon
var formaður til 1974. Móðir hans,
Margrét Jóhannsdóttir, sá um hús-
vörslu og ræstingar skólans 1973 til
dauðadags 1985 og Símon og dóttir
þeirra, Þórdís, aðstoðuðu hana og
tóku við af henni í tvö ár.
Guðríður Anddrésdóttir, var
fyrsta konan í skólanefnd, frá 1931
til 1950. Síðan tók Eyþóra Þórðar-
dóttir, þar sæti 1958 og sat lengi. Jón
Guðnason, Landakoti var formaður
skólanefndar 1974–1985 og kenndi
jafnframt tónlist, enda organisti.
Hreiðar Guðmundsson tók við af
honum 1985. Allir fyrrgreindir for-
menn eru á mynd í Faxa 1990.
Heimildir: Sjá fyrri þætti. Einnig
byggt á samtölum við starfsfólk og
ferilskrá Ingu Sigrúnar Atladóttur.
Einnig Faxa 1990.
Langar að verða
skurðlæknir
„Mér finnst að skólinn og skólastjórnendur
ættu að hjálpa nefndum skólans meira,
eins og t.d. að hjálpa þeim að finna al-
mennilega aðstöðu til að funda eftir skóla
til að styðja við félagslíf nemenda,“ segir
Aris, eins og hún er oftast kölluð, en hún
er í auglýsinganefnd skólans.
Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Ég sakna þess að vera með bekkjar-
kerfi, allir verða mun nánari þá.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS?
Ég fór í rauninni í FS því ég nennti ekki
að keyra í bæinn á hverjum degi og
þekkti fólkið í skólanum.
Hver er helsti kosturinn við FS? Helsti
kosturinn er að maður fær að kynnast
fleirum sem búa í bæjarfélaginu sínu.
Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Félagslífið sjálft er mjög gott en mér finnst
að skólinn og skólastjórnendur ættu að
hjálpa nefndum skólans meira, eins og
t.d. að hjálpa þeim að finna almennilega
aðstöðu til að funda eftir skóla til að styðja
við félagslíf nemenda.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Betsý Ásta, ég sé
fyrir mér að hún komist langt í pólitík.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Klárlega Helena Mjöll Vilhjálmsdóttir.
Hvað hræðist þú mest? Sjórinn er ekki í
miklu uppáhaldi hjá mér, maður veit aldrei
hvað gæti verið undir manni.
Hvað er heitt og hvað er kalt þessa
stundina? Heitt: Brasilíska landsliðið.
Kalt: Brynjar Berg á Twitter.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Er ekki beint
með eitt uppáhaldslag en einmitt núna
er ég mikið að hlusta á I Came Thru með
YoungBoy.
Hver er þinn helsti kostur? Ég myndi segja
að ég væri samviskusöm og metnaðarfull.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? TikTok og Snapchat.
Hver er stefnan fyrir framtíðina? Ég stefni
á læknisfræðina og mig langar að verða
skurðlæknir.
Hver er þinn stærsti draumur? Mig langar
rosalega að flytja til Noregs og starfa sem
læknir þar.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það og af hverju?
Traust, út af því að ég er traust vinkona.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Myndi vilja verja
tíma með vini
sínum á eyðieyju
Stefán Máni myndi taka símann
sinn, vatn og Mikka vin sinn
með sér á eyðieyju. Hans
helstu áhugamál eru bardaga-
íþróttir, fótbolti og félagsstörf
og hann langar að verða hár-
greiðslumaður í framtíðinni.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Íþróttir er skemmtilegasta fagið.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna? Mikki er
líklegastur að verða frægur útaf hann er
svo vinsæll.
Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Skemmtilegasta sagan úr skólanum er
draugarnir í kjallaranum.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Mikki er fyndnastur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Uppáhaldslagið mitt er 200 með Birni.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Uppáhaldsmaturinn minn er pasta.
Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Uppá-
haldsmyndin mín er Civil War Avengers.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér
á eyðieyju og hvers vegna? Það sem ég
myndi taka með mér á eyðieyju er símann
minn, vatn og Mikka.
Hver er þinn helsti kostur? Minn helsti
kostur er að ég er góður í íþróttum.
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að
vera með restina af ævinni, hvað myndir
þú velja? Ofurkrafturinn sem ég myndi
velja er ofurstyrkur.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í
fari fólks? Besti eiginleiki í fari fólks er
jákvæðni.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Það sem mig langar að gera eftir grunn-
skóla er læra að vera hárgreiðslumaður.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Orðið sem myndi lýsa
mér er orkumikill.
FS-ingur vikunnar:
Nafn: Ágústa Aris Aradóttir
Aldur: 18 ára
Námsbraut: Raunvísindabraut
Áhugamál: Ferðast og skoða
mismunandi menningarheima
Ungmenni vikunnar
Nafn: Stefán Máni Stefánsson
Aldur: 14 ára
Skóli: Akurskóli
Bekkur: 9. bekkur
Áhugamál: Bardagaíþróttir,
fótbolti og félagsstörf
18 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM