Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 21
Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar fyrir árið 2022, var afhent við hátíðlega athöfn í Duus Safnahúsum síðastliðinn laugar- dag. Verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf sveitarfélagsins og var þetta í tuttugasta og sjötta sinn sem Súlan var afhent. Að þessu sinni hlaut Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, verðlaunin fyrir framlag sitt til uppbyggingar og eflingar Listasafns Reykjanesbæjar. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg. Kjartan Már Kjartansson, bæjar- stjóri, afhenti Súluna fyrir hönd bæjarstjórnar og menningar- og at- vinnuráðs. Við tilefnið sagði hann hverju bæjarfélagi mikilvægt að eiga fólk sem vinnur að uppbyggingu já- kvæðra málefna í bæjarfélaginu og að bæjarstjórn Reykjanesbæjar vilji með táknrænum hætti þakka fyrir það með veitingu menningarverð- launanna. Framlag til bókmennta og lista Aðalsteinn er fæddur árið 1948, sonur Ingólfs Aðalsteinssonar, veðurfræðings og síðar forstjóra Hitaveitu Suðurnesja, og Ingibjargar Ólafsdóttur, húsfreyju. Þar sem faðir hans vann lengi fyrir Veður- stofuna á Keflavíkurflugvelli bjó fjölskyldan lengst af á Suðurnesjum, fyrst á flugvallarsvæðinu og síðan við Borgarveginn í Njarðvík. Síðar sótti Aðalsteinn sér framhalds- menntun, m.a. á sviði bókmennta og listasögu, við erlenda háskóla og hefur starfað sem listfræðingur, stundakennari í listfræði við Há- skóla Íslands og auk þess sjálfstætt sem sýningarstjóri og gagnrýnandi. Aðalsteinn hefur ritað um mynd- list á ýmsum vettvangi og komið að útgáfu hátt í fjörutíu bóka um íslenska og færeyska myndlist og menningarmál og um þrjátíu safn- rita um sömu viðfangsefni. Nýjasta bók Aðalsteins, Þingvellir í íslenskri myndlist, kemur út í haust hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi. Þá liggja ókjör af tímaritsgreinum eftir hann. Stóran hluta ævi sinnar hefur Aðalsteinn unnið á hinum ýmsu listasöfnum; Listasafni Reykjavíkur- borgar, Listasafni Íslands, Listasafni Sigurjóns Ólafssonar og á Hönnun- arsafni Íslands sem fyrsti forstöðu- maður þess. Fyrir þessar stofnanir og fleiri aðila hefur hann sett upp hartnær áttatíu sýningar auk þess að vinna að alls konar sýningarverk- efnum fyrir um það bil eitt hundrað listamenn, íslenska og erlenda. Samstarfið við Listasafn Reykjanesbæjar Samstarfið við Listasafn Reykja- nesbæjar hófst árið 2004 en Aðal- steinn var nánast frá upphafi aðal- ráðgjafi safnsins undir stjórn Val- gerðar Guðmundsdóttur, fyrrum menningarfulltrúa, sem veitti safninu forstöðu. Á síðastliðnum nítján árum hefur Aðalsteinn sett upp í það minnsta 36 myndlistarsýningar hjá Lista- safni Reykjanesbæjar, ásamt því að sitja í listráði safnsins allt til ársins 2020. Aðalsteinn hefur gætt hags- muna safnsins á vettvangi mynd- listar á Íslandi. Hann hefur verið milligöngumaður um það að safnið hefur fengið stórar myndverkagjafir eftir merka listamenn. Árið 2020 stóð Aðalsteinn fyrir sýningu og listaverkagjöf til safnsins sem telur um 250 myndverk eftir Daða Guð- björnsson. Það sama ár, fyrir tilstilli Aðalsteins, fékk Listasafn Reykja- nesbæjar veglega gjöf frá erfingjum Bjargar Þorsteinsdóttur, myndlistar- manns, sem telur um 100 grafík- myndir og nítján stór akrýlmálverk. Nú telur safneign Listasafns Reykjanesbæjar um 1.500 mynd- verk og þannig er safnið orðið eitt af stærri listasöfnum Íslands. Sú staðreynd er ekki síst Aðalsteini Ingólfssyni að þakka. Í samstarfi þeirra Valgerðar vakti safnið verðskuldaða athygli og viðurkenningu. Meðal annars var samsýning í safninu valin ein af listsýningum ársins af fjölmiðlum og fyrir tveimur árum var sýning safnsins á verkum eftir Guðjón Ketilsson valin listsýning ársins af Safnaráði. Í kjölfarið fóru að berast margar fyrirspurnir frá íslenskum og erlendum listamönnum um sýn- ingarmöguleika hér á Suðurnesjum. Fagmennsku safnastarfs Lista- safns Reykjanesbæjar má m.a. rekja til þess stuðnings sem listasafnið hefur ávallt notið frá Aðalsteini sem hefur unnið óeigingjarnt starf í þágu myndlistar í Reykjanesbæ, í um tveggja áratuga skeið. Með veitingu Súlunnar færir bæjarstjórn og menningar- og at- vinnuráð Aðalsteini þakkir fyrir áralanga vinnu og stuðning við Listasafn Reykjanesbæjar. Aðalsteinn Ingólfsson hlýtur Súluna Að þessu sinni hlaut Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, verðlaunin fyrir framlag sitt til uppbyggingar og eflingar Listasafns Reykjanesbæjar. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson Frá afhendingu Súlunnar 2022. F.v.: Guðlaug María Lewis menningarfulltrúi, Valgerður Guðmundsdóttir fv. menningarfulltrúi, Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og handhafi Súlunnar ásamt Kjartani Má Kjartanssyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar við listaverkið Súluna, sem er eftir listakonuna Elísabetu Ásberg. vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 21

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.