Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 21
Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar fyrir árið 2022, var
afhent við hátíðlega athöfn í Duus Safnahúsum síðastliðinn laugar-
dag. Verðlaunin eru veitt þeim sem stutt hafa vel við menningarlíf
sveitarfélagsins og var þetta í tuttugasta og sjötta sinn sem Súlan
var afhent. Að þessu sinni hlaut Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur,
verðlaunin fyrir framlag sitt til uppbyggingar og eflingar Listasafns
Reykjanesbæjar. Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna
Elísabetu Ásberg.
Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri, afhenti Súluna fyrir hönd
bæjarstjórnar og menningar- og at-
vinnuráðs. Við tilefnið sagði hann
hverju bæjarfélagi mikilvægt að eiga
fólk sem vinnur að uppbyggingu já-
kvæðra málefna í bæjarfélaginu og
að bæjarstjórn Reykjanesbæjar vilji
með táknrænum hætti þakka fyrir
það með veitingu menningarverð-
launanna.
Framlag til bókmennta og lista
Aðalsteinn er fæddur árið 1948,
sonur Ingólfs Aðalsteinssonar,
veðurfræðings og síðar forstjóra
Hitaveitu Suðurnesja, og Ingibjargar
Ólafsdóttur, húsfreyju. Þar sem
faðir hans vann lengi fyrir Veður-
stofuna á Keflavíkurflugvelli bjó
fjölskyldan lengst af á Suðurnesjum,
fyrst á flugvallarsvæðinu og síðan
við Borgarveginn í Njarðvík. Síðar
sótti Aðalsteinn sér framhalds-
menntun, m.a. á sviði bókmennta
og listasögu, við erlenda háskóla
og hefur starfað sem listfræðingur,
stundakennari í listfræði við Há-
skóla Íslands og auk þess sjálfstætt
sem sýningarstjóri og gagnrýnandi.
Aðalsteinn hefur ritað um mynd-
list á ýmsum vettvangi og komið
að útgáfu hátt í fjörutíu bóka um
íslenska og færeyska myndlist og
menningarmál og um þrjátíu safn-
rita um sömu viðfangsefni. Nýjasta
bók Aðalsteins, Þingvellir í íslenskri
myndlist, kemur út í haust hjá Hinu
íslenska bókmenntafélagi. Þá liggja
ókjör af tímaritsgreinum eftir hann.
Stóran hluta ævi sinnar hefur
Aðalsteinn unnið á hinum ýmsu
listasöfnum; Listasafni Reykjavíkur-
borgar, Listasafni Íslands, Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar og á Hönnun-
arsafni Íslands sem fyrsti forstöðu-
maður þess. Fyrir þessar stofnanir
og fleiri aðila hefur hann sett upp
hartnær áttatíu sýningar auk þess
að vinna að alls konar sýningarverk-
efnum fyrir um það bil eitt hundrað
listamenn, íslenska og erlenda.
Samstarfið við Listasafn
Reykjanesbæjar
Samstarfið við Listasafn Reykja-
nesbæjar hófst árið 2004 en Aðal-
steinn var nánast frá upphafi aðal-
ráðgjafi safnsins undir stjórn Val-
gerðar Guðmundsdóttur, fyrrum
menningarfulltrúa, sem veitti
safninu forstöðu.
Á síðastliðnum nítján árum hefur
Aðalsteinn sett upp í það minnsta
36 myndlistarsýningar hjá Lista-
safni Reykjanesbæjar, ásamt því að
sitja í listráði safnsins allt til ársins
2020.
Aðalsteinn hefur gætt hags-
muna safnsins á vettvangi mynd-
listar á Íslandi. Hann hefur verið
milligöngumaður um það að safnið
hefur fengið stórar myndverkagjafir
eftir merka listamenn. Árið 2020
stóð Aðalsteinn fyrir sýningu og
listaverkagjöf til safnsins sem telur
um 250 myndverk eftir Daða Guð-
björnsson. Það sama ár, fyrir tilstilli
Aðalsteins, fékk Listasafn Reykja-
nesbæjar veglega gjöf frá erfingjum
Bjargar Þorsteinsdóttur, myndlistar-
manns, sem telur um 100 grafík-
myndir og nítján stór akrýlmálverk.
Nú telur safneign Listasafns
Reykjanesbæjar um 1.500 mynd-
verk og þannig er safnið orðið eitt
af stærri listasöfnum Íslands. Sú
staðreynd er ekki síst Aðalsteini
Ingólfssyni að þakka.
Í samstarfi þeirra Valgerðar
vakti safnið verðskuldaða athygli
og viðurkenningu. Meðal annars
var samsýning í safninu valin ein af
listsýningum ársins af fjölmiðlum
og fyrir tveimur árum var sýning
safnsins á verkum eftir Guðjón
Ketilsson valin listsýning ársins af
Safnaráði. Í kjölfarið fóru að berast
margar fyrirspurnir frá íslenskum
og erlendum listamönnum um sýn-
ingarmöguleika hér á Suðurnesjum.
Fagmennsku safnastarfs Lista-
safns Reykjanesbæjar má m.a. rekja
til þess stuðnings sem listasafnið
hefur ávallt notið frá Aðalsteini
sem hefur unnið óeigingjarnt starf
í þágu myndlistar í Reykjanesbæ, í
um tveggja áratuga skeið.
Með veitingu Súlunnar færir
bæjarstjórn og menningar- og at-
vinnuráð Aðalsteini þakkir fyrir
áralanga vinnu og stuðning við
Listasafn Reykjanesbæjar.
Aðalsteinn Ingólfsson hlýtur Súluna
Að þessu sinni hlaut Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, verðlaunin
fyrir framlag sitt til uppbyggingar og eflingar Listasafns Reykjanesbæjar.
Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg.
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Frá afhendingu Súlunnar 2022.
F.v.: Guðlaug María Lewis
menningarfulltrúi, Valgerður
Guðmundsdóttir fv. menningarfulltrúi,
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
og handhafi Súlunnar ásamt
Kjartani Má Kjartanssyni
bæjarstjóra Reykjanesbæjar við
listaverkið Súluna, sem er eftir
listakonuna Elísabetu Ásberg.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 21