Víkurfréttir - 30.11.2022, Síða 4
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Verið velkomin í nýja og glæsilega
gleraugnaverslun
Margir geta varla hugsað sér jólin
án þess að vera með bók í hönd.
Stefanía Gunnarsdóttir, forstöðu-
maður Bókasafns Reykjanes-
bæjar, segir jólatímann alltaf vera
skemmtilegan á bókasafninu enda
sé mikið um að vera á safninu í
kringum jólin. „Allar jólabækurnar
koma í hús og lesendur spenntir
að fá nýju bækurnar í hendurnar.
Einnig njótum við þess að margir
nemendur eru að nýta sér aðstöðu
safnsins til að lesa undir próf á
þessum tíma.“
Í kringum aðventuna er safnið
skreytt og jólabókaflóðið hefst, auk
þess býður bókasafnið upp á fjöl-
breytta viðburði í aðdraganda jóla.
„Við reynum að hafa flesta viðburði
í lok nóvember eða byrjun desember
vegna þess að okkur finnst mikil-
vægt að fólk geti notið aðventunnar
og tekið því rólega,“ segir Stefanía.
Á síðustu árum hefur skapast sú
hefð að bókasafnið bjóði upp á jóla-
sýningu í Átthagastofu safnsins. „Í
ár verður Jóla-kósý en þar má finna
jólahús, jólatré og pakka og flottar
skreytingar með amerísku ívafi,“
segir Stefanía.
Þá vil hún minna á að öll börn í
Reykjanesbæ geta fengið frí bóka-
safnskort sem má nálgast á safninu.
„Við minnum á að lestur góðra bóka
er á við bestu núvitund. Við eigum
öll bókasafnið saman, það er okkar
hlutlausa og trausta rými þar sem
allir eiga sinn stað. Ef bæjarbúar vilja
fylgjast með því sem er að gerast í
bókasafninu, minnum við á vef-
síðuna okkar og samfélagsmiðla. Og
auðvitað hvetjum við alla til þess að
njóta aðventunnar með bók. Gleðileg
bókajól,“ segir Stefanía að lokum.
Jólasýningar DansKompaní hafa
vakið mikla lukku síðustu ár. Nú
verður sagan um Pólarhraðlestina
sögð í leik, söng og dansi á hátíðar-
sýningu DansKompaní þann 3.
desember næstkomandi í Andrews
Theater. Á Instagram-síðu Dans-
Kompaní segir að sýningin verður
sú stærsta til þessa en nóg verður
af metnaðarfullum dansatriðum.
Þá verða haldnar tvær sýningar,
annars vegar kl. 11 og hins vegar kl.
16:30, og er miðaverð 3.200 krónur.
Miðasala fer fram dagana 30. nóv-
ember til 3. desember, nánari upp-
lýsingar um tímasetningar og stað-
setningu hennar má finna á miðlum
DansKompaní.
Jólatíminn er skemmtileg-
astur í bókasafninu
DansKompaní með hraðlest til Norðurpólsins
Jóladagskrá Bókasafns Reykjanesbæjar:
1. desember kl. 18:00.
Christmas fun – Heimskonur/
Women of the world
Heimskonur hittast og halda sinn
árlega jólahitting í Bókasafni Reykja-
nesbæjar. Boðið verður upp á vöfflur
og kakó.
1. desember kl. 20:00.
Bókakonfekt 2022
Á Bókakonfekti Bókasafnsins í
ár koma rithöfundarnir Úlfar Þor-
móðsson, Sigríður Hagalín Björns-
dóttir og Jóhann Helgason og lesa
upp úr nýútkomnum bókum sínum.
Einnig verður boðið upp á tónlistar-
atriði með frá Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar. Viðburðurinn er styrktur
af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
2.–16. desember.
Þitt nafn bjargar lífi | Aðgerðakort
Amnesty International
Bréfamaraþon gengur út á það
að senda stjórnvöldum, sem brjóta
mannréttindi, bréf og þrýsta um leið
á umbætur. Einnig eru þolendum
mannréttindabrota sendar stuðn-
ingskveðjur og þannig minnt á þeim
hefur ekki verið gleymt. Tilbúin bréf
til stjórnvalda verða til staðar í Bóka-
safni Reykjanesbæjar. Bréfamara-
þonið stendur til 16. desember og
eru allir hvattir til að kíkja við og
kynna sér málið.
2.–23. desember.
Umhverfisvæn innpökkunarstöð
Öllum er velkomið til að nýta til
að pakka inn gjöfum fyrir jólin. Við
hvetjum ykkur til að huga að um-
hverfisvænum aðferðum við inn-
pökkunina með því að endurnýta
gömul dagblöð, fjölpóst og bækur
sem gjafapappír. Allt efni á staðnum.
1.–31. desember.
Jóla-kósý í Átthagastofu Bóka-
safnsins
Þar má finna jólahús, jólatré og
pakka og flottar skreytingar með
amerísku ívafi. Sýningin er opin á
opnunartíma safnsins. Sjón er sögu
ríkari!
Kertatónleikar
Karlakórs Keflavíkur
Karlakór Keflavíkur getur nú á ný boðið upp á sína margrómuðu Kertatónleika
á aðventunni. Á söngskránni eru falleg jólalög úr ýmsum áttum þannig að allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Að þessu sinni mun barnakórinn Regnboga
raddir, undir stjórn Freydísar Kneifar Kolbeinsdóttur og Arnórs Vilbergssonar,
leggja karlakórnum lið. Einsöngur verður í höndum félaga úr karlakórnum.
Komið og njótið notalegra tónleika í ljúfri jólastemmningu.
Tónleikarnir verða haldnir í Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 6. desember og
fimmtudaginn 8. desember og hefjast kl. 20:00 bæði kvöldin. Stjórnandi er Jóhann
Smári Sævarsson, óperusöngvari, og undirleik annast Sævar Helgi Jóhannsson.
Miðasala fer fram á Tix.is og við innganginn. Forsala hjá kórmeðlimum og með skilaboðum
á fésbókarsíðu Karlakórs Keflavíkur. Miðaverð 3.900 kr. Miðaverð í forsölu 3.500 kr.
Góður stuðningur
frá Oddfellowfólki
Oddfellowfólk á Suðurnesjum af-
henti nokkra styrki nú á aðvent-
unni til góðra málefna á Suður-
nesjum.
Oddfellowstúkan Eldey, stúka nr.
18 styrkti Fjölsmiðjuna á Suður-
nesjum, Hjálpræðisherinn í Reykja-
nesbæ og Krabbameinsfélag Suður-
nesja. Oddfellowstúkan Njörður,
stúka nr. 13, Oddfellowstúkan Jón
forseti, stúka nr. 26, Oddfellow-
stúkan Eldey, stúka nr. 18 og Odd-
fellowbúðirnar Freyr styrktu sam-
eiginlega Velferðarsjóð Suðurnesja.
Myndirnar voru teknar í vikunni
þegar styrkirnir voru afhentir.
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM