Víkurfréttir - 30.11.2022, Qupperneq 6
Heiðursmaðurinn Dúddi Gísla
Það er eitt sem er ekki hægt að
stöðva og það er tíminn. Tíminn
líður áfram og núna þegar þessi
pistill kemur þá er desember við
það að ganga í hönd.
Nóvember hefur verið nokkuð
góður fyrir sjósókn frá Suður-
nesjum, þótt reyndar gerði frekar
leiðindakafla núna í um viku og
bátarnir, sem eru í Sandgerði á línu,
gátu lítið róið. Þeir hafa nú reyndar
náð að róa síðustu dagana í nóv-
ember og fiskað vel. Ef við lítum
á bátana sem hafa verið að róa frá
Suðurnesjum þá er þetta svona:
Margrét GK með 93 tonn í fjórtán
róðrum, Sævík GK með 94 tonn í
þrettán róðrum, Jón Ásbjörnsson
RE 51 tonn í tíu róðrum; Hópsnes
GK 32 tonn í sjö róðrum, Katrín
GK með 20 tonn í fimm róðrum og
Daðey GK 61 tonn í ellefu róðrum.
Allir að landa í Sandgerði nema
Daðey GK var með nokkra róðra í
Grindavík.
Í Grindavík er heimabáturinn
Dúddi Gísla GK kominn en hann
byrjaði nóvember á Skagaströnd og
kom síðan suður – og kannski það
merkilegasta við það var að hann
byrjaði veiðar utan við Sandgerði
og landaði þar um fimm tonnum.
Dúddi Gísla GK er mjög sjaldséður
bátur í Sandgerði því hann heldur
sig að langmestu leyti í Grindavík.
Reyndar er þetta nafn, Dúddi
Gísla, nú komið frá Sandgerði og
mjög þekkt þar. Nafnið kemur frá
skipstjóra og hafnarstarfsmanni í
Sandgerðishöfn sem hét Þórhallur
Gíslason. Þórhallur, eða Dúddi
Gísla, var skipstjóri á bátum frá
Sandgerði og mikill aflakóngur, var
t.d. aflahæstur í Sandgerði 1961,
1962, 1963 og 1965. Þess má geta
að árið 1961 var Dúddi aflahæstur í
Sandgerði á bátnum Hamar GK 32
með 976 tonn í 83 róðrum og var
þá næstaflahæstur yfir allt landið,
þá var Gullborgin VE aflahæst.
Kannski er það merkilegast við
þennan afla hjá Dúdda Gísla, á ver-
tíðinni árið 1961, að þá réri Gullborg
VE á línu og netum í Vestmanna-
eyjum en Hamar GK, undir skip-
stjórn Dúdda Gísla, var á línu alla
vertíðina frá Sandgerði.
Á vertíðinni 1964 voru tveir
aflahæstu bátarnir á vertíðinni frá
Sandgerði, þar sem Sigurður Sig-
urðsson, skipstjóri á Náttfara ÞH,
var hæstur og þar á eftir kom Dúddi
Gísla GK á Sæunni GK, báðir með
um 1.200 tonna afla.
Eftir að skipstjórn Dúdda Gísla
lauk þá vann hann lengi sem hafn-
arvörður og leiðsagði þeim skipum
og togurum sem það þurftu inn
til Sandgerðis, enda þekkti hann
innsiglinguna og höfnina eins og
handarbakið á sér.
Inni á Þekkingarsetrinu í Sand-
gerði, á annarri hæð, er stór og
mikill skjöldur sem ég vann fyrir
börn Dúdda Gísla en ég safnaði
saman öllum skipstjórum, bátum
og afla á vertíðum frá 1941 til 1991
og ef þið eigið leið í Sandgerði þá
hvet ég ykkur til þess að fara í Þekk-
ingarsetrið þar á efri hæðina og
skoða þennan skjöld.
Kanski eru menn hundleiðir á
því að ég sé alltaf að skrifa þetta
en sagan er nú bara þannig að
ein bestu fiskimið landsins eru á
stóru svæði utan við Sandgerði og
skjöldurinn ber þess merki, því að
oft var það nú þannig að skipstjórar
sem voru hæstir í Sandgerði voru
oft á tíðum aflahæstir yfir Ísland
á vetrarvertíðum og þessi mikli
heiðursmaður, Dúddi Gísla, átti svo
sannarlega þátt í því.
aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Í fyrsta skipti vinna nem-
endur sjálfir að því að
draga úr einelti á netinu
Það er óhætt að segja að mörgum hafi brugðið við að hlusta á Eirík Guðna Ásgeirsson, rannsóknar-
lögreglumann og sérfræðing í tölvurannsóknum, á málþingi Menntaskólans á Ásbrú (MÁ) um sam-
skipti á stafrænum miðlum sem fór fram í síðustu viku. Eiríkur Guðni fór yfir hvaða afleiðingar
óæskilegrar framkoma og samskipti geta haft.
Eiríkur Guðni og Alda Hrönn Jó-
hannsdóttir, yfirlögfræðingur, hófu
málþingið með erindinu: „Fótspor
inn í framtíðina – hvað geri ég og
hvað skil ég eftir?“ Erindið var
flutt fyrir fullum sal af nemendum
og starfsfólki MÁ ásamt námsráð-
gjöfum úr öðrum skólum á Suður-
nesjum. Að sögn þeirra Eiríks Guðna
og Öldu Hrannar var þetta að öllum
líkindum í fyrsta skiptið sem slíkt
málþing hefur verið haldið í fram-
haldsskóla hér á landi.
Málþingið er samstarfsverkefni
starfsfólks MÁ, nemendafélagsins
Örgjörvans og Lögreglunnar á Suð-
urnesjum. Fulltrúar MÁ leituðu til
embættisins í haust um að koma að
málþinginu. Að sögn þeirra Eiríks
Guðna og Öldu Hrannar var mikil-
vægt að fá tækifæri til að eiga samtal
við nemendur um alvarleika ofbeldis,
eineltis og annars konar neikvæðrar
hegðunar á stafrænum miðlum því
það hefur veigamikið forvarnargildi
í för með sér. „Lögreglan er ánægð
og þakklát fyrir að hafa fengið að
hitta þennan flotta nemendahóp og
ræða þetta mikilvæga málefni. Frá-
bærar viðtökur frá salnum á meðan
á erindinu stóð og algjörlega magn-
aður hópur sem var ófeiminn við að
spyrja og taka þátt.“
Að erindi loknu tóku nemendur
MÁ til sinna ráða og völdu fjórar
spurningar til að vinna með í vinnu-
hópum. Starfsfólk sammældist um
það að þetta væri vinna nemenda,
þeirra hugmyndir og gáfu þeim frelsi
til að velja og vinna með spurning-
arnar án nokkurra fordóma eða inn-
grips. Starfsmenn voru ritarar og
hópstjórar en að öðru leyti var um-
ræðan algjörlega nemenda. Spurn-
ingarnar voru eftirtaldar:
1. Hvernig eiga nemendur í MÁ að
haga sér í samskiptum á netinu?
2. Hvað er neteinelti og hvernig
áttu að bregðast við því?
3. Hvernig ætlum við sem skóli að
bregðast við óviðeigandi hegðun
á netinu?
4. Hver er þín tillaga að texta í
sáttmála MÁ um betri samskipti
á netinu?
Að þingi loknu fékk nemendaráð Ör-
gjörvans og hagsmunafulltrúi nem-
enda niðurstöðu umræðna afhenta
og munu vinna áfram með hana í
samvinnu við starfsmenn skólans.
Ingigerður Sæmundsdóttir, for-
stöðumaður MÁ, sagði að erindi
lögreglunnar hefði verið sláandi og
margt komið sér á óvart í umræðum
milli nemenda og lögreglu. „Nem-
endur voru mjög hreinskilnir og áttu
opið og gott samtal við lögregluna
sem svaraði þeim af virðingu og fróð-
leik. Það var svo margt sagt og rætt á
þessum klukkutíma og ég efast ekki
um að þau hefðu getað haldið áfram
að ræða við lögfræðinginn og rann-
sóknarmanninn miklu lengur.“
Að sögn eins nemanda sem tók
þátt í vinnuhóp var mikil ánægja
með þingið af hálfu nemenda
skólans: „Við gátum sagt svo margt
sem skiptir okkur máli og það var
gott að fá skólann til að hlusta á það
sem við höfum að segja.“
Geir Finnsson, kennari og félags-
málafulltrúi skólans, var fundarstjóri
á þinginu og kvaðst afar ánægður
með daginn: „Fréttir undanfarin
misseri af alvarlegum afleiðingum
neteineltis hafa vegið þungt á okkur
öllum og því var frábært að geta átt
þetta opinskáa samtal við nemendur.
Það skiptir máli að veita nemendum
tækifæri og traust til að láta rödd
sína heyrast um mikilvæg mál sem
þessi því það hefur marktæk áhrif.
Ég hvet aðra skóla til að gera slíkt
hið sama.“
Kertatónleikar Karlakórs Keflavíkur
Karlakór Keflavíkur getur nú á
ný boðið upp á sína margrómuðu
Kertatónleika á aðventunni. Á söng-
skránni eru falleg jólalög úr ýmsum
áttum þannig að allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi. Að þessu
sinni mun barnakórinn Regnboga-
raddir, undir stjórn Freydísar Kneifar
Kolbeinsdóttur og Arnórs Vilbergs-
sonar, leggja karlakórnum lið. Ein-
söngur verður í höndum félaga úr
karlakórnum. Komið og njótið nota-
legra tónleika í ljúfri jólastemmningu.
Tónleikarnir verða haldnir í
Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
6. desember og fimmtudaginn 8.
desember og hefjast kl. 20:00 bæði
kvöldin. Stjórnandi er Jóhann Smári
Sævarsson, óperusöngvari, og undir-
leik annast Sævar Helgi Jóhannsson.
Miðasala fer fram á Tix.is og við
innganginn. Forsala hjá kórmeð-
limum og með skilaboðum á fés-
bókarsíðu Karlakórs Keflavíkur.
Miðaverð 3.900 kr. Miðaverð í for-
sölu 3.500 kr.
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM