Víkurfréttir - 30.11.2022, Page 10
Gervisnjór, snjósleðar og veiðivöruverslun er meðal þess sem sjá má á Hafnargötunni um þessar
mundir en uppsetning leikmyndar fyrir þættina True Detective hefur verið á fullum snúningi. Þá hefur
gatan tekið á sig nýja mynd og líkist nú götum Alaska. Paddy’s er einn af þeim stöðum sem hafa tekið
miklum breytingum í bæjarfélaginu vegna þessa en staðurinn er nú kominn í búning hamborgarabúll-
unar Qavvik’s Burger Joint.
Björgvin Ívar Baldursson, einn eig-
enda Paddy’s, segir verkefnið vera
skemmtilegt og það myndi góða
stemmningu í bænum. „Þetta er mjög
skemmtilegt, nú er búið að breyta
Paddy’s í hamborgarastað eins og sjá
má á utanverðu húsinu. Það er búið
að skipta um innréttingar og mála og
svo er búið að breyta efri hæðinni í
íbúð sem verður eitthvað notuð við
tökur,“ segir Björgvin. Aðspurður
hvað honum finnist um áhrif þátta-
gerðarinnar á starfsemi þeirra segir
hann: „Það er hluti af þessu, þetta
er samstarfsverkefni og við gerðum
samning um leigu á húsnæðinu í
rúmar þrjár vikur. Það er svekkjandi
fyrir bæjarbúa að missa af Paddy’s í
þennan tíma en þessu fylgir ákveðin
stemmning.“
En hvers vegna varð Hafnargatan
fyrir valinu?
„Ástæðan fyrir því að þau eru að
gera þetta þar er að þau voru svo
hrifin af götumyndinni á Hafnargöt-
unni. Það var pæling að taka þetta
upp annars staðar, þar sem væri
raunverulega snjór á þessum tíma,
en þau voru bara svo hrifin af götu-
myndinni akkúrat þarna. Paddy’s
varð svo fyrir valinu því þau voru að
skoða fullt af stöðum og ráku augun í
hann. Þau voru að leita að einhverju
sem gæti verið matsölustaður og
þau fengu að skoða staðinn og þetta
passaði einhvern veginn allt svo vel
fyrir það sem þau höfðu í huga. Það
er gaman að fá að taka þátt í þessu
og þetta skapar smá líf á Hafnargöt-
unni og myndar góða stemmningu í
bænum, það er alltaf gaman þegar
það er eitthvað jákvætt í gangi sem
allir eru að tala um,“ segir Björgvin.
Áætlað er að Paddy’s opni aftur í
þeim búning sem bæjarbúar þekkja
hann 9. desember en stendur til að
halda í við eitthvað af leikmyndinni?
„Við megum gera það og þetta eru
mjög drastískar breytingar en það
fer mestur tími í undirbúning og frá-
gang. Ég efast um að við höldum í
við eitthvað af þessu, samningurinn
segir að þessu verði skilað eins og
þetta var en þetta er svo sem allt
gert í góðri samvinnu við okkur og
hvernig við viljum hafa þetta.“
Hlakkið þið til að sjá Paddy’s á
skjánum?
„Mér skilst samt að meirihlutinn af
þáttunum gerist nú ekki þarna, þessi
leikmynd mun bara birtast í nokkrar
mínútur hugsa ég en það er mikið
fyrir þessu haft og verður gaman að
sjá hvernig þetta mun koma út.“
Hollywoodbragur
á Hafnargötunni
Kvikmyndaþorpið eða hjólhýsabyggðin við Ægisgötu í Keflavík.
Götumynd frá Hafnargötu í Keflavík þegar unnið var að uppsetningu leikmyndarinnar sl. laugardag. Frá því þessi mynd var tekin hefur „snjóað“ mun meira við götuna. VF-myndir: Hilmar Bragi
Hafnargata 35 er nær óþekkjanleg með nýrri framhlið.
Hafnargötunni hefur verið umbreytt á kafla og skiltin eru amerísk.
„GUNS & AMMO“ er fullbúin veiðibúð að Hafnargötu 36,
við hliðina á Sjóvá, sem er í hlutverki banka, Wells Fargo.
Rakarastofa Ragnars Skúlasonar er orðin að þvottahúsi
og hér er verið að þekja gangstéttina með gervisnjó.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
10 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM