Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 15
FJÖLBRAUTASKÓLI SUÐURNESJA
SJÚKRALIÐABRÚ
n Kennt þrisvar í viku seinnipartinn
n Fyrir ófaglært fólk sem hefur starfsreynslu í umönnunarstörfum
n Tækifæri til þess að öðlast starfsréttindi sjúkraliða samhliða vinnu
n Námið fer af stað ef næg þátttaka næst
n Einnig er boðið upp á hefðbundna kennslu í dagskóla
Nánari upplýsingar um námið má finna á heimasíðu skólans www.fss.is
Sótt er um á www.menntagatt.is
Innritun lýkur 10. desember
Áheyrnarprufur fyrir stúlkna-
kórinn Draumaraddir, stúlknakór
Söngskóla Alexöndru, fara fram 3.
desember næstkomandi. Kórinn
er fyrir stúlkur á aldrinum átta
til sextán ára og kennt verður í
Reykjanesbæ einu sinni í viku.
Áhugasamir þátttakendur þurfa
að undirbúa eitt lag fyrir áheyrnar-
prufuna og hefjast stúlknakórsæf-
ingar strax á eftir en þær verða á
laugardögum á milli 10:30–11:30.
Kennt verður einu sinni í viku
í 12 vikur frá og með 3. desember.
Æfingarnar fara fram á Guðnýjar-
braut 21 í Reykjanesbæ. Fyrirhugað
er á dagskrá Draumaradda í vetur
að taka þátt í Nýárstónleikum Gala
í Reykjanesbæ í janúar, jólasöng í
Reykjanesbæ, tónlistarmyndbandi
við eitt lag og hátíðarsöng á alþjóða-
degi kvenna, 8. mars. Þá verður lögð
sérstök áhersla á fjölbreytta klass-
íska- og dægurlagakórtónlist.
Kórstjóri og stofnandi Drauma-
radda er Alexandra Chernyshova
sópransöngkona, tónskáld, kennari,
kórstjóri og skólastjóri Söngskóla
Alexöndru. Árið 2020 fékk hún
Menningarverðlaun Reykjanesbæjar
fyrir framlag sitt til menningarmála,
þá hefur hún einnig unnið mörg al-
þjóðleg verðlaun og keppnir fyrir
söng sinn og tónsmíðar. Á Suður-
nesjum hefur hún stýrt skólakór
Stóru-Vogaskóla og stúlknakór í
Grindavík. Áður fyrr stýrði hún
skólakórnum Spangólandi úlfar í
Hvalfjarðarsveit, Stúlknakór Norður-
lands Vestra og óperukórnum Ópera
Skagafjarðar.
Skráning í kórinn fer fram í
gegnum tölvupóstfangið alexandra-
dreamvoices@icloud.com fyrir
1. desember. Nafn og aldur þátttak-
anda sem og nafn, sími og netfang
forráðamanns þurfa að koma fram í
tölvupóstinum.
Heimasíðu Alexöndru má finna hér:
www.alexandrachernyshova.com
Áheyrnarprufur fyrir stúlknakór
Bjartmar Guðlaugsson kemur fram
á tónleikum í Stapa í Hljómahöll
þann 1. desember ásamt Bergris-
unum. Bjartmar þarf vart að kynna
fyrir nokkrum tónlistarunnanda
en lög hans og texta þekkja allir!
Bjartmar hefur gefið út sextán
sólóplötur á ferli sínum og er því af
nægu að taka.
„Hver veit nema að lög á borð
fyrir Týnda kynslóðin, Ég er ekki
alki, Súrmjólk í hádeginu, Fimmtán
ára á föstu, Járnkarlinn, Sumarliði er
fullur, Þannig týnist tíminn, Negril
eða hans nýjasta lag Af því bara
fái að hljóma í Stapa þann 1. des-
ember?,“ segir í tilkynningu.
Bergrisarnir eru: Bjartmar
Guðlaugsson, Júlíus Freyr Guð-
mundsson, Arnar Gíslason, Birkir
Rafn Gíslason og Daði Birgisson.
Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar
hefjast kl. 20:00. Miðasala er hafin
á tix.is.
Bjartmar og Bergrisarnir
í Hljómahöll 1. desember
Jólasælkeramarkaður Eldeyjar
Oddfellowsystra verður á Park Inn
hótelinu 1. desember frá kl. 17.
Ýmist góðgæti er á boðstólum,
s.s. sörur, kleinur, leiðisgreinar, jóla-
möndlur og fleira sem systur hafa
útbúið. Allur ágóði rennur til líknar-
mála.
Jólasælkera-
markaður hald-
inn á Park Inn
Félag eldri borgara á Suðurnesjum
gefur dvalarheimilum Suðurnesja
fimm hægindastóla. Þá munu þrír
þeirra koma til með að vera í dag-
dvölinni á Nesvöllum, einn í Víði-
hlíð í Grindavík og einn á Garðv-
angi í Suðurnesjabæ. Þau Guðrún
Eyjólfsdóttir og Jón Ólafur Jónsson,
formaður og varaformaður fé-
lagsins, afhentu þeim Ásu Eyjólfs-
dóttur, forstöðumanni öldrunar
og stuðningsþjónustu hjá Reykja-
nesbæ, og Kristínu Finnsdóttur,
deildarstjóra dagdvalar, hæginda-
stólana fyrr í vikunni. „Þetta er
virkilega kærkomin gjöf og kemur
til með að nýtast dagdvalargestum
mjög vel,“ segir Ása.
FEB gefur dvalarheimilum
Suðurnesja fimm hægindastóla
Íslenskir endurskoðendur óska eftir að ráða
starfsmann í bókhaldsþjónustu í Reykjanesbæ.
Helstu verkefni eru færsla bókhalds,
afstemningar og önnur tengd verkefni.
Hæfniskröfur eru reynsla af vinnu við bókhald, góð
tölvukunnátta, hæfni í mannlegum samskiptum,
og áhugi á að ná árangri í starfi. Nákvæmni og
vandvirkni nauðsynleg.
Umsóknir óskast sendar á netfangið
gudni@isend.is fyrir 9. desember.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 15