Víkurfréttir - 30.11.2022, Side 16
Sveitarfélagið Vogar hefur óskað
eftir tilboðum í 1593 fermetra at-
vinnuhúsnæði og byggingarrétt á
lóðinni Hafnargötu 101 í Vogum.
Verkefni þess aðila sem samið
verður við er að vinna deiliskipulag
fyrir svæðið ásamt því að full
hanna og byggja nýjar byggingar
með öllum frágangi að utan sem
innan ásamt því að ganga frá full-
búinni lóð á sinn kostnað.
Á lóðinni, sem er um einn hektari
að stærð, er 1593 fermetra atvinnu-
húsnæði sem bæjarstjórn hefur
heimilað niðurrif á. Ekki er gerð
krafa um að halda í núverandi hús
en það telst tillögum til tekna ef
hægt er nýta núverandi hús að ein-
hverju leyti eða útlit nýrra bygginga
hafi skírskotun til eldra húsnæðis og
sögu svæðisins.
Á lóðinni er spennistöð og forn-
leifar ásamt því að gert er ráð fyrir
nýju hreinsimannvirki fráveitu
sveitarfélagsins innan lóðarinnar.
Taka þarf tillit til þessara þátta við
skipulag og hönnun svæðisins.
Svæðið umhverfis lóðina ein-
kennist í dag af smábátahöfn, at-
vinnustarfsemi og íbúðabyggð. Við
val á umsækjendum verður sérstak-
lega horft til þess að hugmyndir um
hönnun, skipulag og framkvæmdir
taki mið af einkennum, ásýnd og
sögu svæðisins og að uppbygging
styðji við jákvæða atvinnuþróun í
ört stækkandi sveitarfélagi. Mikil-
vægt er að nýting reitsins taki mið
af nærliggjandi starfsemi og mikil-
vægi staðsetningar gagnvart fram-
þróun menningar- og ferðaþjón-
ustu. Í endurskoðun á aðalskipulagi
sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að
á lóðinni verði blanda af íbúðar-
húsnæði og verslunar- og þjónustu-
starfsemi. Litið er á það sem kost ef
verslun, þjónusta og önnur starfsemi
yrði jafnvel ráðandi á reitnum. Þar
sem aðalskipulagið hefur ekki öðlast
gildi ennþá er möguleiki á að breyta
skilgreiningu lóðarinnar komi fram
góðar hugmyndir um annað fyrir-
komulag lóðarinnar.
Á vef Sveitarfélagsins Voga segir
að tilboð verða metin með tilliti til
verðs, hugmynda um nýtingu lóðar-
innar, fjárhagslegrar getu og faglegs
bolmagns til að standa undir hönnun
og framkvæmd fyrirhugaðra hug-
mynda. Sveitarfélagið Vogar áskilur
sér rétt til að velja hvaða umsókn
sem er eða hafna öllum. Umsóknar-
frestur er til og með 10. janúar 2023.
Kauptilboð Sveitarfélagsins
Voga í þrjá eignarhluta í Iðndal
2 hefur verið samþykkt af selj-
anda. Kauptilboðið var gert
með fyrirvara um samþykki
bæjarstjórnar.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga
tók málið fyrir á síðasta fundi.
Bæjarráð leggur til við bæjar-
stjórn að staðfest verði kaup
sveitarfélagsins, sbr. fyrirliggjandi
kauptilboð. Með kaupunum er
stigið mikilvægt skref í að bæta
þjónustu við bæjarbúa og því
mikilvæga verkefni að koma á fót
þjónustu heilsugæslu í Vogum.
Bæjarráð samþykkir jafnframt
að vísa fyrirliggjandi viðauka við
fjárhagsáætlun 2022 til bæjar-
stjórnar og felur bæjarstjóra að
undirbúa afgreiðslu lánasamn-
ings vegna kaupanna sem jafn-
framt verður lagður fram til af-
greiðslu bæjarstjórnar.
Yfirferð á framkvæmd Fjöl-
skyldudaga 2022 ásamt full-
trúum félagasamtaka var á
fundi frístunda- og menningar-
nefndar Sveitarfélagsins Voga
á dögunum.
Fulltrúar félagasamtaka sem
tóku þátt í Fjölskyldudögum voru
gestir fundarins undir þessum
lið. Rætt var vítt og breitt um
dagskrána og framkvæmd hátíð-
arinnar. Margar góðar hugmyndir
komu fram sem teknar verða til
athugunar fyrir næsta ár.
Frístunda- og menningarnefnd
þakkar öllum félagasamtökum
sem komu að hátíðinni í ár fyrir
sitt framlag. Einnig íbúum sem
settu svip á hátíðina, m.a. með
flottum skreytingum, segir í
fundargerð nefndarinnar.
Íþróttamaður ársins
og hvatningarverðlaun
Sveitarfélagið Vogar hefur óskað
eftir tilnefningum á íþróttamanni
ársins fyrir árið 2022. Íþrótta-
maður ársins verður að vera bú-
settur í Vogum eða keppa fyrir
hönd íþróttafélags í sveitarfélaginu.
Tilnefndir íþróttamenn skulu vera
orðnir sextán ára eða eldri. Heimilt
er að nefna ungling fjórtán til
sextán ára sem keppir í flokki full-
orðinna og hefur náð það góðum ár-
angri að hann teljist á meðal þeirra
bestu í sinni íþróttagrein.
Allar tilnefningar skulu vera
rökstuddar. Íþróttamaður ársins í
Vogum hlýtur við útnefningu farand-
bikar til eins árs og bikar til eignar.
Val á íþróttamanni ársins verður til-
kynnt sunnudaginn 8. janúar 2023
við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal.
Hvatningarverðlaun sveitar-
félagsins verða einnig veitt við sama
tækifæri. Öllum íþróttafélögum og
einstaklingum í Vogum er heimilt
að tilnefna til hvatningaverðlauna.
Verðlaunin hlýtur einstaklingur eða
einstaklingar sem er framúrskar-
andi í ástundun, áhugasemi, hegðun
innan vallar sem utan og er góður
félagi og fyrirmynd annarra barna
og unglinga.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi
sendast á gudmundurs@vogar.is eða
í lokuðu umslagi á bæjarskrifstofu,
stílað á íþrótta- og tómstundafull-
trúa, fyrir 10. desember.
Óska eftir tilboðum í þróun-
arreit við Hafnargötu 101
Mikilvægt skref í
að bæta þjónustu
við bæjarbúa
Margar góðar hug-
myndir til athugunar
fyrir næsta ár
Hreinn Sigmarsson hefur sent inn erindi til skipulagsyfirvalda í Sveitar-
félaginu Vogum vegna Hlýraeldis á Keilisnesi. Skipulagsnefnd tekur vel í
erindið og óskar eftir frekari kynningu á verkefninu fyrir nefndarmönnum.
Hlýraeldi á Keilisnesi?
Það var nóg um að vera í
Vogunum á fyrsta sunnu-
degi í aðventu. Minjafélagið
var með opið í skólahúsinu
Norðurkoti sem búið var að
klæða í jólabúning. Minja-
félagið var einnig með
glæsilegan jólamarkað í
Skjaldbreið, sem er hlaða
frá 1850, og þar ríkti hinn
sanni jólaandi. Þá var kven-
félagið Fjóla með sinn
margrómaða kökubasar
þar sem borðin svignuðu
undan tertum og öðru
heimagerðu góðgæti.
Skemmtilegheit dagsins
náðu hámarki þegar kveikt
var á jólatré bæjarins. Þá söng
kór Kálfatjarnarkirkju tvö
sígild jólalög fyrir gesti sem
gafst einnig færi á að taka þátt
í söngnum. Arnór Bjarki Blom-
sterberg, sóknarprestur, fór með
stutta hugvekju.
Eftir hugvekju Arnórs voru
svo ljós trésins tendruð. Birtan
var svo mikil að hún dró að tvo
rauðklædda bræður, þá Stúf og
Giljagaur. Þeir héldu uppi stuðinu
það sem eftir lifði viðburðarins
með söng, dansi, gríni og glensi.
Myndir: Vogar.is
Fjör á fyrsta
í aðventu
Þróunarreiturinn að Hafnargötu 101. Skjáskot: vogar.is
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
VOGAR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
16 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM