Víkurfréttir - 30.11.2022, Qupperneq 20
Ljósmyndasafn Byggðasafnsins á
Garðskaga er nú opið til skoðunar
sarpur.is. Búið að setja inn um
800 ljósmyndir og upplýsingar.
Til vinstri á síðunni eru tveir val-
gluggar: öll söfn og öll aðföng. Þar
er valið Byggðasafnið á Garðskaga
og síðan ljósmyndir. Í aðalvalmynd
er svo hægt að setja inn efnisorð
t.d. Garður, Sandgerði, bíll, verslun
eða nafn á einstaklingi o.s.frv. og
smella á leita.
Byggðasafnið á Garðskaga leitar
til almennings um að fá lánaðar
gamlar ljósmyndir til að skanna og
skila eða ljósmyndir til varðveislu,
myndir sem segja frá lífinu í Garði
og Sandgerði hér áður fyrr. Hægt
er að hafa samband með tölvupósti
byggdasafn@sudurnesjabaer.is í
skilaboðum á Facebook eða í síma
425 3008.
Byggðasafnið fékk styrk frá
Safnaráði fyrir árið 2022 til
að skanna og skrá ljósmyndir í
varðveislu safnsins inn í Sarp.is.
Safnið er afar þakklátt fyrir þann
stuðning, segir í tilkynningu.
Sarpur.is er menningarsögulegt
gagnasafn sem flest söfn á Íslandi
skrá í þá muni og ljósmyndir sem
þau varðveita. Allur almenningur
hefur aðgang að Sarpi og getur
skoðað fjársjóðina sem þar eru
skráðir.
Jólaljósin verða tendruð í Suðurnes-
jabæ á Fullveldisdaginn 1. desember líkt
og síðustu ár. Dagskrá verður í báðum
byggðakjörnum, Garði og Sandgerði,
þar sem boðið verður upp á skemmti-
dagskrá í kjölfar þess að yngstu nem-
endur grunnskólanna ásamt bæjar-
stjóra kveikja jólaljós á jólatrjám.
Dagskrá:
17.00 kveikt á jólatrénu við Sandgerðis-
skóla. Skólakór Sandgerðisskóla syngur
nokkur lög. Jólaálfar verða á staðnum,
jólasveinar og heitt súkkulaði og pipar-
kökur. Glaðningur fyrir yngstu börnin.
18.00 kveikt á jólatrénu við Ráðhúsið
í Garði. Jólaálfar verða á staðnum, jóla-
sveinar og heitt súkkulaði og piparkökur.
Glaðningur fyrir yngstu börnin.
Jónatan Jóhann Stefánsson var
fæddur 15. febrúar 1943. Hann
lést á hjúkrunarheimilinu Víði-
hlíð í Grindavík 29. október síð-
astliðinn. Útförin fór fram í Foss-
vogskirkju þann 21. nóvember.
Ég sat við eldhúsborðið og
fékk mér morgunkaffi. Skyndi-
lega heyrist bílflaut fyrir utan,
þrjú flaut í röð. Ég gekk að glugg-
anum. Á miðju hlaðinu stóð bif-
reið með bílnúmerinu H. Betty.
Bílrúðan var skrúfuð niður og það
var kallað; „Er þingmaðurinn ekki
vaknaður? Þetta er nú meiri lúx-
usinn hjá þessum þingmönnum.“
Út úr bílnum steig Tani vinur
minn, kominn í kaffi. Jæja, nú er
ég með fréttir sagði hann. Svo
hófst ræðan. Mér fannst ég vera
komin á pólitískan framboðs-
fund. Ræðan bar þess vel merki
að sá sem hana flutti hafði póli-
tískt nef, eins og sagt er. Pólitíska
hjartað sló hjá Vinstri grænum,
enda maðurinn einn stofnenda
flokksins, númer sjö. Tani var ná-
tengdur stjórnmálamönnum úr
flest öllum flokkum. Sjómaður,
vélstjóri og leigubifreiðastjóri.
Hafði brennandi áhuga á stjórn-
málum og var í beinu sambandi
við forsætisráðherra, forseta Al-
þingis og þingmenn. „Sestu, þrjár
mínútur í viðbót svo er ég farinn“
og ræðan hélt áfram. Rúmum
klukkutíma síðar kvaddi hann. Síð-
degis hringdi hann svo og þá tók
við önnur pólitískt ræða; „Jæja nú
er ég með fréttir úr pólitíkinni, ég
hitti mann.“
Við Tani áttum dagleg símtöl
um árabil og enduðu þau öll á
sama veg. Hann lagði símtólið á
án þess að kveðja. Allra síðustu ár
sagði hann þó einstöku sinnum,
„ég þakka fyrir“ og lagði svo á. Það
var að sjálfsögðu ég sem átti að
þakka fyrir þessar sögustundir,
sem voru í raun list. Tilsvörin gátu
verið eftirminnileg. Eins og túrinn
með Garðari frá Patró sem stóð í
rúmar þrjár vikur. Þegar í land var
komið bauð skipstjórinn Tana að
fara í bað heima hjá sér enda þrjár
vikur langur tími baðleysis. Tani
afþakkaði kurteisilega og sagði:
„Það tekur því nú ekki það eru
bara tvær vikur eftir af túrnum.“
Leiðir okkar Tana lágu fyrst
saman þegar ég var unglingur.
Kynnin voru eftirminnileg, ég sá
þennan fyrirferðamikla og hrausta
mann í fyrsta sinn á hlýrabol
með axlabönd að gera að stórum
steinbít á miðju eldhúsborðinu.
Ég og faðir minn voru komnir í
matarboð. Honum lá hátt rómur
og sagði: „Borðaðu meira maður,
þú ert að vaxa.“ Ég þorði ekki að
leifa soðnum steinbít og afþakkaði
ábótina. Tani hafði dálæti á hefð-
bundnum íslenskum mat. Eitt sinn
hringdi ég í hann og bauð honum
í gúllas. Hann vildi þá fá að vita
hvers konar gúllas það væri, ég
lýsti þá matargerðinni fyrir honum
í stuttu máli. Þegar því var lokið
lagði hann símtólið á. Hann lét
síðan ekki sjá sig í gúllasið, enda
rétturinn með austurlensku ívafi.
Ókvæntur og barnlaus með
stórt hjarta. Æskuástin H. Betty.
Hann þekkti marga, greindur,
minnugur, sagði margar sögur og
eldaði sér kjötsúpu á jólum. Horfði
á Alþingisrásina og fékk jólakort
frá Bessastöðum á hverju ári í
tuttugu ár.
Eitt sinn ók Tani á leigubílnum
niður Laugarveginn, sá þá Ólaf
Ragnar og frú á gangi. Sveigði
bílnum að gagnstéttinni, í áttina að
þeim hjónum, skrúfaði niður bíl-
rúðuna og kallaði: „Ólafur, nú ferð
þú í forsetann.“ „Nei, Tani minn,“
sagði frúin, „það verður aldrei,
hann er svo óvinsæll.“ Tani hafði
hins vegar á réttu að standa eins
og svo oft áður í pólitíkinni. Ólafur
varð forseti og Tani fékk jólakortin
góðu.
Að endingu sat ég við rúm-
stokkinn hjá þessum góða og
trygga vini. Það var komið að leið-
arlokum. Handarbandið sem eitt
sinn var þétt og ákveðið var orðið
veikt. Ég bað fyrir Guðs blessun.
Hann lagði aftur augun í hinsta
sinn. Sáttur og hvíldinni feginn.
Þögnin var djúp og friðurinn sæll.
Hafðu þökk fyrir allt og allt kæri
vinur, ég mun sakna þín.
Guð blessi minningu Tana.
Birgir Þórarinsson
Báturinn Stafnes GK-274 við fiskverkunarhúsin í Sandgerði.
Ljósmyndasafn Byggðasafnsins
á Garðskaga komið á Sarp
Vörubíll Volvo G1747 Sigurjón Kristinsson.Jólaljósin tendruð
í Suðurnesjabæ
á Fullveldisdaginn
Jónatan Jóhann Stefánsson
– minningarorð
Áhōfnin á varðskipinu Þór skipti
á dōgunum um ōldudufl við Garð-
skaga. Landhelgisgæslan segir frá
þessu á fésbókarsíðu sinni og birtir
myndir sem Sævar Már Magnússon
tók af aðgerðinni.
Ölduduflið við Garðskaga hefur
komist í fréttirnar fyrir risastórar
öldur sem það hefur mælt. Öldu-
mælingardufl við Garðskaga
mældi ítrekað öldur yfir 30 metra
í óverðrinu sem gekk yfir landið
síðdegis þann 7. febrúar og aðfara-
nótt mánudags 8. febrúar nú í vetur.
Fyrra met í ölduhæð við Ísland var
síðan árið 1990 á sama dufli. Ein
aldan var svo kröftug að mælirinn
sló út en hann mælir mest 40 metra
ölduhæð og því óvíst hversu há sú
alda var. Heppilegt var að lágstreymt
var og sjávarstaða því hagstæð. Þetta
kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Fyrir þetta veður hafði ölduspá
gert ráð fyrir að um væri að ræða
stóran atburð sem gæti leitt til þess
að mjög háar öldur nái landgrunni.
Líkur voru á því að ölduhæð gæti
náð sömu hæðum og voru mældar
þann 9. janúar 1990 þegar Garð-
skagaduflið mældi 25 metra háa,
staka öldu, sem er sú hæsta sem
mælst hefur við strendur Íslands.
Þar sem það var lágstreymt og
sjávarstaða því hagstæð var fyrirséð
að öldur myndu ekki valda miklum
skemmdum á mannvirkjum þar sem
þær brotna langt fyrir utan grynn-
ingarnar.
Vegagerðin rekur ellefu öldumæl-
ingaduflum í kringum Ísland og
einnig vefupplýsingakerfið um veður
og sjólag, www.sjolag.is
Skipt um öldudufl við Garðskaga
– mældi risaöldur í vetur
SUÐURNESJABÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í
kirkjum nú rétt fyrir jólin en í ár verða líka tónleikar á
Suðurnesjum og er það í fyrsta sinn. Tónleikar verða í
Hvalsneskirkju 15. desember kl. 20:00.
Hópurinn hefur leikið ljúfa tónlist eftir Mozart í þrjátíu
ár og þykir mörgum ómissandi að koma úr miðri jóla-
ösinni inn í kyrrðina og kertaljósin í rökkrinu.
Hópinn skipa að þessu sinni þau Ármann Helgason,
klarinettuleikari, Eydís Franzdóttir, óbóleikari, Hildi-
gunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir, fiðluleikarar,
Svava Bernharðsdóttir, víóluleikari, og Sigurður Hall-
dórsson, sellóleikari.
Á dagskránni verða tvær af perlum Mozarts, Óbókvar-
tettinn kv. 370 og hinn margrómaði Klarinettukvintett
kv. 581. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarc-
tica leikur jólasálminn góða, Í dag er glatt í döprum
hjörtum úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Tónleikarnir eru um klukkustundar langir. Aðgangs-
eyrir er 2.500 krónur og frítt fyrir átján ára og yngri.
Miðar við innganginn.
– í Hvalsneskirkju 15. desember kl 20:00
Mozart
við kertaljós
20 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM