Víkurfréttir - 30.11.2022, Síða 22
Það er meira en að segja það að hlaupa hundrað hringi í kringum Keflavíkurvöll. Hver hringur
er rétt yfir fimm hundruð metrar, svo vegalengdin ein er rúmir fimmtíu kílómetrar – en það
reynir á hugann að hlaupa sama hringinn aftur og aftur.
Er þetta ekki einhver klikkun að
hlaupa svona hundrað hringi?
„Þetta er það. Það er viss geðveiki að
gera þetta en góð æfing fyrir hausinn
að koma sér í gegnum þetta,“ segir
Guðmundur þegar Víkurfréttir
spurðu hann út í hlaupið um helgina.
„Þetta gekk ljómandi vel. Ég
kláraði mína hundrað hringi, þriðja
árið í röð.“
Þetta hlýtur að reyna á hausinn.
„Það gerir það. Sérstaklega eins og
í gær [laugardag], frá því í hring 56
og þangað til að ég átti svona nítján
hringi eftir, var ég nánast einn – svo
fór fólk að mæta aftur. Þetta var í
kringum hádegi og fólk var að fara
heim til að fá sér hádegismat, sá tími
reyndi svolítið á hausinn.“
Guðmundur segist hafa verið á
hlaupum í rétt tæpa fjóra tíma. „... en
ég stoppaði nokkrum sinnum til að
næra mig og spjalla við fólk, þannig
að í heildina tók hlaupið rétt rúmlega
fjóra tíma.“
Og hver er vegalengdin þegar búið
er að taka þetta saman?
„Þetta endaði í 51 kílómetra sam-
kvæmt mælingu.“
Konan kom honum á óvart
Guðmundur Daði hefur í gegnum
tíðina safnað fyrir Píeta-samtökin
þegar hann tekur þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu en síðustu ár hefur
hann fyrst og fremst notað þetta
hlaup til að þjálfa hausinn í sér.
„Það var líka markmiðið í ár, að
þjálfa hausinn á mér, en svo þegar
ég var búinn með hlaupið þá segir
konan mín mér að hún hafi stofnað
viðburð á Facebook og gert þetta
að einhverskonar styrktarhlaupi
fyrir mig. Ég náði ágætis árangri
í hlaupunum í sumar og fór í það
núna í haust að hafa samband við
fyrirtæki og leita eftir styrkjum fyrir
framhaldið. Það skilaði nú ekki miklu
og ég fékk neikvæðar viðtökur frá
fyrirtækjunum. Þannig að konan
ákvað að koma mér svona á óvart,“
segir Guðmundur og segir að það
hafi komið flatt upp á hann hversu
vel söfnunin hafi gengið. „Ég bjóst
við að þetta yrði í mesta lagi nokkrir
þúsundkallar – en það reyndist nú
vera svolítið meira en það.“
Aðspurður um hvað sé framundan
segir Guðmundur að stefnan fyrir
næsta ár sé svipuð og þetta ár. „Það
verða sumarhlaupin hérna heima og
svo enda ég þetta með því að fara til
Berlínar og taka Berlínarmaraþonið.
Ég tók þátt í því í haust, hljóp á 2:39
og lenti í topp eina prósentinu. Ég er
helvíti sáttur með það.“
Blaðamaður hafði veitt því athygli
hve margar myndir væru af Guð-
mundi sem eru teknar á fjöllum
en hann er frá Neskaupstað, því
lá beinast við að spyrja: Eru mara-
þonhlaup þín helsta keppnisgrein
eða hefurðu verið að taka þátt í
utanvegahlaupum líka?
„Þegar ég bjó fyrir austan þá þurfti
maður ekki nema að labba út um
útidyrnar til að vera kominn upp í
fjall – þetta er aðeins öðruvísi hér
á Suðurnesjum, fer ekki alveg eins
mikið fyrir fjöllunum hérna. Hæsta
fjallið í Reykjanesbæ er sennilega
hóllinn í Innri-Njarðvík.
Ég hljóp Laugaveginn í fyrra en ég
hef fundið það, eins og núna í sumar,
að ég er meira í götuhlaupunum –
eins og er. Svo kannski eftir þrjú,
fjögur ár færir maður sig hugsanlega
eitthvað utan vegar.“
Hvað er svo framundan hjá þér?
„Tímabilið hjá mér byrjar sennilega
í janúar, þá er hlaupasería hjá FH.
Það er haldið þriðju vikuna í janúar,
febrúar og mars. Svo byrjar tímabilið
af krafti um miðjan maí. Þá byrjar
maður að keppa í þessum hlaupum
hér fyrir sunnan,“ segir hlaupagikk-
urinn að lokum en Guðmundur Daði
keppir fyrir hönd þríþrautardeildar
Njarðvíkur, 3N, enda eru þau hjónin
búsett í Njarðvík.
Viss geðveiki
en góð æfing
Hlaupagarpurinn Guðmundur Daði Guðlaugsson hljóp 100 hringi á Vetrarbrautinni kringum Keflavíkurvöll síðasta laugardag – þetta var í þriðja sinn sem hann afrekar það.
ÍÞRÓTTIR
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Á miðri leið var snúið við.
100 hringir.
Margir félagar Guðmundar frá 3N hlupu honum samferða hluta vegalengdarinnar. VF-myndir: JPK
Helena Ösp Ævarsdóttir, eiginkona
Guðmundar, og Júlía, dóttir þeirra,
hvöttu sinn mann áfram.
Guðmundur Daði kemur í mark í
Berlínarmaraþoninu síðasta haust.
Mynd af Facebook-síðu Guðmundar
sport