Víkurfréttir - 30.11.2022, Qupperneq 23
Sveinn nýr formaður
Golfklúbbs Suðurnesja
Sveinn Björnsson var kjörinn formaður Golfklúbbs Suðurnesja en hann
tekur við af Ólöfu Kristínu Sveinsdóttur sem gegnt hefur embættinu
síðustu þrjú árin. Rekstur GS gekk vel á árinu. Aðalfundur klúbbsins var
haldinn í golfskálanum 23. nóvember og sóttu rúmlega fjörutíu manns
fundinn.
Í skýrslu stjórnar fór fráfarandi for-
maður yfir starf ársins sem var fjöl-
breytt og gekk vel. Mótahald hefur
þó oft gengið betur en veðrið var
ekki upp á það besta og kom niður
á aðsókn í mót. Kvennastarfið hefur
verið vaxandi í all nokkur ár og
blómstrar í klúbbnum.
GS tók á árinu í notkun golfhermi
í nýrri inniaðstöðu sem opnuð var
í gömlu slökkvistöðinni í Keflavík í
upphafi árs. Annar nýr golfhermir er
tilbúinn og státar GS því af tveimur
nýjum og fullkomnum hermum. Í
inniaðstöðunni er einnig aðstaða
til að slá í net og púttvöllur en Pútt-
klúbbur Suðurnesja verður með
aðstöðu í inniaðstöðu GS. Klúbb-
urinn útnefndi í haust Gísla Grétar
Björnsson sjálfboðaliða ársins en
hann hefur farið fyrir vinnu við
uppsetningu hermanna og inniað-
stöðunnar í upphafi árs.
Klúbburinn hefur fjárfest mikið í
vélum og tækjum á síðustu þremur
árum og er staðan góð í þeim efnum.
Samstarf GS við Reykjanesbæ var
gott en í sumar var skipt um þak á
golfskálanum og framundan er lag-
færing á Tjarnarkoti, sem er lítið hús
m.a. með snyrtiaðstöðu við 10. teig.
Íþróttastarfið gekk mjög vel en
yngsta afreksfólkið, þau Fjóla Mar-
grét Viðarsdóttir og Logi Sigurðsson,
náði mjög góðum árangri á árinu.
Þau unnu nokkra stóra titla og voru
valin kylfingar ársins hjá GS.
Fjárhagur klúbbsins er traustur og
rekstur ársins skilaði 4,5 milljónum
króna í hagnað. Félögum fækkaði
aðeins og tekjur minnkuðu lítillega.
Aðstæður í heimsfaraldri voru starf-
semi GS hagfelldar tvö síðustu ár á
undan.
Í máli Sveins Björnssonar sem var
einn í kjöri til formanns kom fram að
nú standi til að fara í framkvæmdir
á Hólmsvelli og horfa til framtíðar
með masterplan. Skipað hefur verið
fagráð sem mun stýra þeirri vinnu í
samvinnu við Edwin Roald, golfarki-
tekt.
Í stjórn GS fyrir komandi starfsár eru:
Sveinn Björnsson, formaður,
Karitas Sigurvinsdóttir,
Sigurður Sigurðsson,
Örn Ævar Hjartarson,
Róbert Sigurðsson,
Guðrún Þorsteinsdóttir,
Ólöf Einarsdóttir,
Gunnar Ellert Geirsson.
Auk nýs formanns þá hefur nýr
framkvæmdastjóri verið ráðinn,
Sverrir Auðunsson, en Andrea Ás-
grímsdóttir, sem gegnt hefur starfinu
í fjögur ár, sagði upp störfum á árinu.
Sveinn Björnsson er nýr formaður GS og
tekur við af Ólöfu Kristínu Sveinsdóttur.
Fjóla M. Viðarsdóttir og Logi Sigurðsson eru afrekskylfingar GS
og náðu mjög góðum árangri á árinu. VF-myndir: pket
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
Háaleitisskóli - Grunnskólakennari á miðstig
Háaleitisskóli - Kennari í Nýheima
Umhverfissvið - Verkefnisstjóri hjá byggingarfulltrúa
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Viðburðir í desember
HLJÓMAHÖLL 30. DESEMBER
Valdimar -
Áramótatónleikar
Loksins, loksins, loksins, loksins verða
hinir margrómuðu Áramótatónleikar
Valdimar aftur á dagskrá. Þessa
tónleika þekkir Suðurnesjafólk vel og
því óþarfi að fara út í smáatriði. Það
eina sem þarf að hafa hugfast er að
þetta verður stórkostlegt.
LISTASAFNIÐ Í DESEMBER
Sýningar og vinnu-
stofa í listasafninu
Tvær glæsilegar sýningar voru opnaðar
um síðustu helgi sem allir ættu að sjá.
Sunnudaginn 11. desember verður
boðið upp á vinnustofu krakkaklúbbs
Listasafns Reykjanesbæjar. Gunnhildur
Þórðardóttir heldur fyrstu vinnustofuna
en fleiri koma í kjölfarið.
Kynnið ykkur alla dagskrána
í desember á Visit Reykjanesbær
Skoðaðu viðburðadagatalið okkar á Visit Reykjanesbær til að sjá hvaða áhugaverðu
viðburðir eru framundan. Á heimasíðunni má einnig finna fjölbreyttar upplýsingar um
Reykjanesbæ og hvað er í boði fyrir bæjarbúa og gesti.
www.visitreykjanesbaer.is
Aðventugarðurinn
og Aðventusvellið
Við opnum Aðventugarðinn laugardaginn 3. desember.
Í Aðventugarðinum er leitast eftir að skapa jólalegt andrúmsloft
þar sem fólk getur komið saman, fundið fyrir jólaandanum og
gert góð kaup í jólakofunum.
Aðventusvellið er frábær viðbót við Aðventugarðinn en það
er staðsett í skrúðgarðinum í Keflavík. Þar gefst fjölskyldum
einstakt tækifæri til að upplifa saman gleðilegar stundir með
hressandi útivist og hreyfingu. Upplýsingar um svellið er að
finna á adventusvellid.is
Heimskonur koma saman og verða
í jólaskapi, Bókakonfektið verður á
sínum stað og Jóla-kósí í Átthagastofu.
Boðið verður upp á umhverfisvæna
innpökkunarstöð ásamt fjölbreyttum
viðburðum – kynntu þér málið á Visit
Reykjanesbær.
BÓKASAFNIÐ Í DESEMBER
Jóladagskrá í
Bókasafni
Aðventan einkennir desember og eru
fjölbreyttir viðburðir í boði í Reykjanesbæ.
Aðventugarðurinn fangar jólaandann
með notalegum jólailm, fallegum vörum
í jólakofunum og jólasveinum sem gleðja
börnin. Aðventusvellið opnar á sama tíma
þar sem gefst kjörið tækifæri til að stunda
skemmtilega hreyfingu. Sex stórkostlegir
viðburðir eru á dagskrá í Hljómahöll þar
sem finna má tónleika frá bæði erlendum og
innlendum aðilum sem og uppistand. Nýjar
glæsilegar sýningar hafa opnað í Listasafni
Reykjanesbæjar og í Byggðasafninu. Við hvetjum
íbúa til að eiga notalegar stundir í aðdraganda
jóla, taka þátt í jólaföndri í Bókasafninu og Duus
Safnahúsum með börnunum, sækja stórkostlega
tónleika í Hljómahöll og áhugavert Bókakonfekt
í Bókasafni Reykjanesbæjar.
Byggðasafnið verður með sérstaka
jólasýningu. Það verður hægt að taka
af sér flottar myndir í anda ársins 1900.
Þá er boðið upp á jólaföndur alla
aðventuna og geta fjölskyldur komið og
átt jólalega stund í notalegu umhverfi.
Upplýsingar á Visit Reykjanesbær.
BYGGÐASAFNIÐ Í DESEMBER
Byggðasafnið
í hátíðarskapi
Þorláksmessutónleikaröð Bubba
Morthens er ein allra langlífasta tón-
leikahefð í aðdraganda jóla. Árið
hefur verið einstaklega viðburðaríkt
hjá Bubba og mætir hann því
tvíefldur í ár. Húsið opnar kl. 19:00 en
tónleikarnir hefjast kl. 20:00
HLJÓMAHÖLL 9. DESEMBER
Þorláksmessutónleikar
Bubba Morthens
Ari Eldjárn kveður árið 2022 með
ógleymanlegri uppistandssýningu. Ari
er einn allra vinsælasti uppistandari
þjóðarinnar og hefur auk þess getið sér
góðs orðs víða erlendis fyrir gaman-
sýningar sínar. í boði verða tvær
sýningar; kl. 19:00 og kl. 22:00.
HLJÓMAHÖLL 15. DESEMBER
Ari Eldjárn -
Áramótaskop 2022
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 23