Víkurfréttir - 30.11.2022, Blaðsíða 24
Mundi
Vei! Kaninn er kominn aftur
og aðeins tekið við dollurum
á Hafnargötunni.
Upplifðu – Vertu – Njóttu
OPNUNARTÍMAR
Mán–Fös 12–18
Lau 11–16
Hólmgarður 2A
230 Keflavík
s. 861 7681
marionehf@gmail.com
Á Íslandi búa bara eskimóar í snjó-
húsum, var sú mynd sem margir út-
lendingar drógu upp af Íslandi fyrir
ekki svo mörgum ártugum síðan.
Nú virðist sú mynd vera að dragast
upp að nokkru leyti á ný. Suðurnesin
eru að verða að Alaska og Hafnar-
gatan okkar í Keflavík að komast á
heimskortið sem aðalgatan í Ennis,
ímynduðum smábæ í Alaska.
Hér munu semsagt miklir atburðir
gerast í þessari viku, sérfræðingar
hverfa sporlaust af yfirborði jarðar
og rannsóknarlögreglumenn sem
leiknir eru af stórleikurunum Jodie
Foster og Kali Reis munu þurfa að
kafa ofan í myrka fortíð sína til að
komast til botns í málinu skv. því
sem segir á Google. Þessu öllu fylgir
400 manna tökulið og leikarar.
Eflaust hefur það ráðið einhverju
um staðarval kvikmyndaframleið-
endanna að hér væri stærstur hluti
leikmyndarinnar til staðar á þessum
tíma ársins. Nægur snjór sem ryðja
mætti upp í skafla svo umgjörðin
væri sem líkust því sem gerist í
Alaska. En svo er ekki. Í stað snjó-
storma eru komnir sjóstormar, loka
þarf Ægisgötunni orðið reglulega
fyrir ágangi sjávar sökum hækkandi
sjávarstöðu, og virðulegir trésmiðir
með sómakennd hafa horfið frá
húsasmíðum og byggja nú í akkorði
snjóskafla svo leikmyndin verði sem
raunverulegust.
Þær breytingar sem orðið hafa á
veðurfari undanfarin ár eru orðnar
áþreifanlegar og óumdeilanlegar.
Fari svo fram sem horfir mun seðla-
bankastjóri brátt beina augum sínum
að Keflavík í stað Tenerife í leit sinni
að óviðbúnum landsmönnum taka
myndir af tánum af sér til rökstyðja
stýrirvaxtarhækkunarblæti sitt.
Það hefur verið gaman og veitt
okkur gleði að fylgjast með hvernig
leikmyndateiknarar hafa breytt
ásýnd hluta Hafnargötunnar á
nokkrum dögum, kannski ekki alveg
eins við viljum sjá hana, en eitthvað
sem okkur hefur ekki tekist að gera á
áratugum. Þeir hafa leyft sér að láta
hugmyndaflugið flögra út frá fyrir-
framgefnu handriti og búið til um-
hverfi sem hentar því sem þeir vilja
sjá. Svipað hefur verið gert á Sel-
fossi þar sem nýr taktur hefur verið
sleginn hvað varðar miðbæjarkjarna
bæjarins. Er ekki kominn tími til að
bæjaryfirvöld, fjárfestar og versl-
unarmenn við Hafnargötu skrifi sitt
handrit að því hvernig þeir vilji sjá
að aðalverslunargata bæjarins skuli
líta út í framtíðinni? Er ekki komin
tími til að Hafnargatan fái upplyft-
ingu?
LO
KAO
RÐ
HANNESAR FRIÐRIKSSONAR
Er ekki kominn tími
á að Hafnargatan
fái upplyftingu?
lindex.is