Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 27. janúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Ætli Viktoría taki við af föður sínum
og verði drottning? FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Herman Lindqvist hefur starfað
sem fréttaritari sænska ríkisút-
varpsins erlendis í áratugi en hann
verður áttræður í apríl. Hann var
í viðtali í sunnudagsþætti sænska
útvarpsins um liðna helgi þar sem
hann ræddi stríðið í Úkraínu og
konungsveldið í heimalandinu.
Herman býr nú í Varsjá og fylgist
vel með stríðinu í Úkraínu og hefur
miklar áhyggjur af því að stríðið
eigi eftir að breiðast út til fleiri
landa.
Herman er vel metinn rithöfund-
ur og einn helsti sérfræðingur Svía
um sænsku konungsfjölskylduna.
Hann hefur skrifað metsölubækur
og gert sjónvarpsþætti um sögu Sví-
þjóðar. Þá hefur hann samið bækur
um konungsfjölskylduna og verið
einkakennari Viktoríu prinsessu og
systkina hennar. Bækur hans hafa
verið fáanlegar hér á landi. Herman
sagði í þættinum að konungdæmið
í Svíþjóð myndi hverfa með Vikt-
oríu prinsessu sem mun taka við
af föður sínum Karli Gústafi. Sömu
sögu segir hann um önnur konung-
dæmi á Norðurlöndum.
Tuttugu ár í viðbót
„Ég tel að til lengri tíma litið muni
þetta þurrkast út. Þeim mun fleiri
hjónabönd þar sem hinir konung-
bornu giftast alþýðufólki og eignast
alþýðleg börn, þá þurrkast þetta
út,“ segir hann. Þegar hann er
spurður hversu lengi hann telji að
konungdæmið muni lifa, svarar
hann: „Í mesta lagi 20 ár í viðbót.“ n
Kóngaveldi sem
er að deyja út
Þóra Rós segir enga leið að lýsa yndislegri orkunni sem fólk upplifir eftir jógatíma með orðum. Hana sé einungis hægt að upplifa. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skildi loks frasann blóð, sviti og tár
Þóra Rós Guðbjartsdóttir, jógakennari og listdansari, fann hugarró, styrk og vellíðan í jóga.
Hún segir tvennt mikilvægast í að tileinka sér úr jóga í daglegu lífi: öndun og jafnvægi. 2