Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 27.01.2023, Blaðsíða 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „Ef fólk ætti að tileinka sér eitthvað eitt úr jógafræðunum er það að reyna á jafnvægið alla daga. Við eigum að geta klætt okkur úr og í sokka og skó án þess að setjast. Ég verð líka að nefna öndunar æfingar og að anda til dæmis fjórum sinnum inn og út um nefið. Rann- sóknir sýna að neföndun styrkir ónæmiskerfið og í Breath, bók James Nestor sem byggir á rann- sóknum, er talað um að við eigum í raun ekki að nota munninn til að anda.“ Þetta segir Þóra Rós Guðbjarts- dóttir, jógakennari og listdansari. Þóra Rós hefur starfað við jógakennslu síðastliðin fimmtán ár, í stúdíói sínu 101 Yoga og hjá Hreyfingu. Hennar fyrsta upplifun af jóga var í Madríd á Spáni. „Mér fannst það róandi og þegar álagið var hvað mest hjá mér í dansinum hjálpaði að fara í jóga- tíma. Ég byrjaði fimm ára í dansi og árið 2007 fór ég til Mexíkó til að stunda fjögurra ára listdansnám við Puebla Perfoming Art School. Þar tók ég þátt í öllum helstu keppnum, sýningum og viðburð- um, ferðaðist með dansflokknum um Mexíkó og bjó einnig á Spáni og í London. Í dansheiminum er rosaleg samkeppni, maður þarf stöðugt að sýna sig og sanna, og þar skildi ég loksins merkingu frasans „blóð, sviti og tár“. Ég var líka í órafjarlægð frá fjölskyldu og vinum sem gerði þetta stundum erfitt,“ segir Þóra Rós. Jóga veitir almenna vellíðan Orðið jóga þýðir sameining og á uppruna sinn á Indlandi. „Í dag er jógaheimurinn orðinn risastór og listinn endalaus með mýmörgum jógaheitum eins og kundalini, hatha, nidra, asthanga, vinyasa, núvitund, hugleiðslu, hugarró, djúpum teygjum, hot jóga, infra jóga, kakó retreat, andlegu ferðalagi og öndunar- æfingum. Ég skil vel að fólki þyki það flókið enda finnst mér við stundum missa sjónar á því hvað skiptir raunverulegu máli þegar við tölum um jóga,“ segir Þóra sem útskrifaðist sem jógakennari frá Yogashala og Yoga Nidra árið 2015. „Ég hef einnig lært um jóga og áfallastreitu, og skapandi hug- leiðslu sem kennsluaðferð. Jóga og hugleiðsla hafa átt hug minn allan síðastliðin sjö ár og ég er alltaf að læra eitthvað nýtt og bæta við mig tólum og tækjum tengdum andlegri og líkamlegri heilsu. Mér finnst mestu skipta að fólki líði vel í líkama sínum og sé meðvitað um líðan sína, sál og huga. Jóga kemur jafnvægi á taugakerfið með því að virkja heilataugina, eða svokallaða flökkutaug sem er hluti af parasympatíska taugakerfinu okkar. Með því að virkja hana með öndunaræfingum og jógaæfingum eflist geta líkamans til að bregðast við streitu. Þannig hjálpar jóga og hugleiðsla okkur að finna jafnvægi á milli streitu og hvíldar, og veitir vellíðan,“ útskýrir Þóra Rós. Með nýfæddan son í jógakennslu Þegar Þóra Rós var í þann mund að ljúka jóganáminu varð hún ólétt að elsta syni sínum. „Mig langaði alltaf að eignast eigið fyrirtæki og fannst heillandi hugmynd að reka jógastúdíó í miðbænum. Við maðurinn minn ákváðum að slá til og leigðum lítið rými á Njálsgötu 26 sem var þá leiguíbúð en við breyttum í jóga- verslun og jógastúdíóið 101 Yoga. Þar kenndi ég alla tímana sjálf og sá um allan rekstur, en þurfti f ljótt að ráða inn fleiri jógakennara því fljótt varð 101 Yoga vinsælasti staðurinn með drop-in jógatíma fyrir ferðamenn,“ segir Þóra Rós. Nafnið 101 Yoga átti sér rætur í staðsetningu stúdíósins í miðbæn- um en í merki stúdíósins var einn- ig táknmynd sem sýnir að Þóra Rós leggur mikið upp úr því að hver og einn iðkandi fái persónulega þjónustu og einstaka upplifun. „Ég byrjaði að kenna þegar sonur minn var aðeins eins mánaðar og til að byrja með hélt ég ágætu jafnvægi í kennslunni. Síðan fékk maðurinn minn vinnu á Akureyri og þá varð mjög krefjandi að reka stúdíóið ein með nýfætt barn. Ég man eftir jógatímum þar sem ég mætti með strákinn sofandi í vagninum og kenndi hádegisjóga, gaf honum að drekka beint eftir tíma, tók svo aftur á móti við- skiptavinum og skipulagði enn fleiri námskeið og tíma. Það gat verið dálítið mikið og enginn tími aflögu til að sinna sjálfri mér. Þetta gekk því ekki svona til lengdar, eins mikið og mér fannst skemmtilegt og gefandi að kenna. Við tókum því ákvörðun um að flytja norður árið 2016 og ég lokaði stúdíóinu á Njálsgötunni,“ greinir Þóra Rós frá. Setti sjálfa sig í fyrsta sæti Þóra Rós segist hafa átt í erfið- leikum með að finna jafnvægi eftir að móðurhlutverkið tók yfir. „Ég missti dálítið sjónar á því sem drífur mig áfram sem Þóru, en ekki móður eða jógakennara. Ég fór því að stunda jóga og hugleiðslu á hverjum degi en ákvað að kenna ekkert í að minnsta kosti ár. Það hjálpaði mikið til að styrkja mig líkamlega og andlega,“ segir Þóra sem kemur úr mikilli hlaupafjöl- skyldu. „Við höfðum ákveðið að hlaupa hálft maraþon í Amsterdam 2016. Það gaf mér kraft til að vera úti í náttúrunni og mér þótti gott að hafa eitthvað til að stefna að. Mér fannst óskaplega skemmtilegt að hlaupa með strákinn minn í vagn- inum og upplifa kyrrð og fegurð Akureyrar. Ég eignaðist svo yngri strákinn 2019 og tók þá ákvörðun um að gefa sjálfri mér meiri tíma og vera óhrædd við að segja nei ef vinna eða afþreying hentaði mér ekki. Ég setti mér líka ný hlaupa- markmið sem var að hlaupa Lauga- veginn árið 2020, 55 kílómetra og enn með barn á brjósti. Laugavegs- hlaupið er það skemmtilegasta og erfiðasta sem ég hef gert, fyrir utan að fæða börnin mín, og kom mér mest á óvart að hlaupið reyndi mun meira á andlegu hliðina en þá líkamlegu.“ Mæður þurfa hvatningu Líðan mæðra er Þóru Rós hug- leikin. „Það er svo margt sem gerist hjá mæðrum sem ekki er hægt að útskýra, en ég held að aðrar mæður tengi vel við hormónaflæðið, sveiflukennt skap og lítinn svefn. Þannig var það alla vega hjá mér og er enn,“ segir Þóra sem í dag er þriggja barna móðir. „Sjálf hef ég upplifað stundir þar sem ég hef ekki trúað að ég hafi það sem til þurfi eða ég sé hreinlega ekki nógu góð. Ég þekki líka vel afsakanir eins og „Ég hef ekki tíma í þetta“ og „Ég get þetta ekki“. Ég hitti iðulega mæður með ákveðna sýn á lífið og sem vilja láta drauma sína rætast, hvort sem það eru líkamleg markmið, að koma list sinni á framfæri, fara aftur í nám, sækja um vinnu eða hvað sem er, en sökum tímaskorts, svefnleysis, þreytu og þrekleysis láta þær ekki verða af því. Það er vegna þess að við gleymum of oft að hlúa að sjálfum okkur. Sem mæður þurfum við hvatningu sem færir okkur drifkraft og þor til að taka fyrstu skrefin í átt að draumum. Við höfum nefnilega allt sem þarf til að láta drauma okkar rætast; við þurfum bara virkja neistann og vita hvernig,“ segir Þóra Rós. Hún reynir að lifa eftir heimspek- inni á bak við jóga á hverjum degi. „Jóga hefur kennt mér að hugur- inn ræður öllu og að við stjórnum því hvað hann hugsar og segir. Þess vegna megum við ekki gleyma að næra hugann en líka að leyfa honum að vera stundum kyrrum í stað þess að mata hann endalaust á afþreyingu og áreiti. Það snýst ekki um að hætta að hugsa heldur leyfa hugsunum okkar að koma og fara, og veita þeim ekki athygli í smá stund. Það færir okkur hugarró og þar hjálpar jógaöndun við ein- beitinguna.“ Hvernig líður mér í dag? Að mati Þóru eru Íslendingar harð- dugleg þjóð. „Við lifum í hröðu samfélagi og allir reyna að gera sitt besta í vinnunni, ræktinni, útiverunni og með fjölskyldunni. Við viljum helst gera allt og vera með í öllu en á sama tíma eigum við það til að gleyma að huga að andlegu heilsunni og það getur komið fram í formi veikinda, meiðsla, depurðar og fleiru,“ segir Þóra. Hún segir andlega og líkamlega heilsu haldast í hendur og að hægt sé að hlúa að andlegu hliðinni með ýmsum leiðum, svo sem jóga, hlaupum, hreyfingu, útiveru og hugleiðslu. „Á hverjum degi ættum við að spyrja okkur þessara spurninga: „Hvernig líður mér í dag?“ og „Á hverju þarf ég að halda?“ Við þurfum að sýna sjálfum okkur mildi og samkennd, alveg eins og við þurfum stundum líka spark í rassinn til að gera hlutina. Við getum gert stuttar öndunar- æfingar, stundað hugleiðslu, lesið, skrifað í dagbók, farið yfir það sem við erum þakklát fyrir, farið í gufur, köld böð og auðvitað jóga. Að vera meðvituð um líðan okkur og kunna á okkur sjálf og vita hvað við þurfum frá degi til dags, áður en við æðum áfram í gegnum daginn. Við höfum alltaf val og með því að gera ekkert eða bara eitthvað erum við samt að velja. Ég trúi því að það sem við segjum og gerum hafi bein áhrif á líðan okkar. Af hverju þá ekki að gera eitthvað sem lætur okkur líða vel?“ veltir Þóra upp. Jóga er fyrir alla Þóra Rós hefur kennt þjóðinni jóga á skjánum, meðal annars á sjónvarpsstöðinni Hringbraut og krakkajóga á Vísi. „Mér finnst mikilvægt að yngri kynslóðin læri jóga. Nú þegar er jóga kennt í sumum leikskólum og skólum, en mér finnst að við ættum að gera betur. Það ætti að vera hluti af daglegu lífi allra að taka smá jógastund og þarf ekki að vera nema tíu mínútur á dag sem við kúplum okkur frá daglegu amstri. Í mínu tilfelli fannst mér börnin mín þurfa ró í lok dags eftir fulla ferð í skóla og boltaíþróttum. Ég sá fram á auka álag að senda þau á jóganámskeið en um leið kosti þess að kenna börnum að gera jóga með því að horfa á jógamyndbönd á meðan foreldrarnir græja kvöld- matinn. Við getum nefnilega notað tæknina til góðs og að leyfa börn- unum okkar að gera jóga í gegnum skjáinn er eitt af því,“ segir Þóra. Krakkajógaþættir Þóru á Vísi voru með jólahugleiðslu. „Ég vildi ég kenna börnunum að taka eftir því fallega sem jólin gefa okkur, að jólin snúist um kærleika og frið en ekki bara jólagjafir og jólaboð. Líka að vera góð við okkur sjálf og aðra, það skiptir máli í lífinu. Ég lærði skapandi hugleiðslu sem heild- ræna kennsluaðferð. Rannsóknir gefa til kynna að leidd hugleiðsla, jóga og öndunaræfingar stuðli að betri einbeitingu, námsfærni og auknum sjálfsstyrk, og efli sam- hug og samkennd hjá nemendum. Ég trúi því að ef börn byrja snemma að læra jóga verði þau sterkari manneskjur fyrir lífstíð.“ Það sama gildi um vinnustaði. „Ég hef kennt jóga á vinnustöð- um og oftar en ekki kemur fólki á óvart hvað jóga er einfalt og gerir mikið fyrir það, svo sem betri einbeitingu og minna stress. Það er ekki hægt að lýsa orkunni sem kemur yfir mann eftir jógatíma í orðum, bara að upplifa. Jóga eflir okkur og styrkir, og það hjálpar okkur að takast á við áskoranir lífsins, eins og að þora, því það þarf oft hugrekki til að fram- kvæma hlutina,“ segir Þóra Rós. Í jógakennslunni leggur hún áherslu á öndunaræfingar, styrk, jafnvægi og slökun. „Ég nýt þess að kenna. Fyrir utan það að kenna í Hreyfingu er ég nú að skipuleggja fjögurra vikna námskeiðið „Jóga er fyrir alla“ sem byrjar 20. febrúar. Þar setjum við tóninn á mánu- dögum með jákvæðri orku og nærum okkur andlega og líkam- lega. Ég stefni líka á nýtt nám- skeið fyrir Drífandi mæður og stofnaði hópinn Drífandi mæður á Facebook sem er vettvangur fyrir mæður sem vilja deila hug- myndum sínum, þiggja ráð, gefa ráð og hvetja hver aðra áfram. Viðtökurnar eru vonum framar, það eru alltaf að bætast við nýjar mæður og á öllum aldri, því þótt börnin séu farin að heiman þá breytast bara áskoranir mæðra.“ n Hægt er að fylgjast með Þóru Rós á 101yoga.is og 101yoga.is/krakka- yoga. Líka á Instagram @101yog- areykjavik og á Facebook @101yoga og @Drífandi mæður. Skráningar á námskeiðið Jóga er fyrir alla er á vefsíðunni 101yoga.is. Í jógakennslunni leggur Þóra Rós mikla áherslu á öndunaræfingar, styrk, jafnvægi og slökun. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við mæður höfum allt sem þarf til að láta drauma okkar rætast; við þurfum bara að virkja neistann og vita hvernig. Ég trúi því að ef börn byrja snemma að læra jóga verði þau sterkari mann- eskjur fyrir lífstíð. 2 kynningarblað A L LT 27. janúar 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.