Fréttablaðið - 27.01.2023, Síða 17
Reksturinn er ekki
alltaf dans á rósum.
Ég geng í öll verk sjálf,
held utan um lagerinn og
bókhaldið og tek við-
skiptaákvarðanir.
Magnavita-námið
hefur farið mjög
vel af stað í samstarfi við
Opna háskólann í HR og
félagið undirbýr frekari
sókn. Mikið er undir, því
fjölgun æviára fólks sem
nýtur lífsins, heilbrigt og
hraust, er mikilvægt
markmið fyrir sam-
félagið í heild.
Guðfinna Sesselja Bjarnadóttir
Guðfinna Sesselja Bjarna-
dóttir, fyrrverandi rektor
Háskólans í Reykjavík og
stofnandi og framkvæmda-
stjóri LC Ráðgjafar, hlaut
þakkarviðurkenningu FKA
við hátíðlega athöfn í gær.
starri@frettabladid.is
„Viðurkenning FKA gleður mig
mjög,“ segir Guðfinna. „Með viður-
kenningum sínum varpar FKA
ljósi á mikilvægi fjölbreytileika
atvinnulífsins. Mér verður sérstak-
lega hugsað til þeirra frumkvöðla
sem stóðu að kvennafrídeginum
á Íslandi 24. október 1975. Þá var
ég stödd á Lækjartorgi ásamt 25
þúsund manns og þakkaði í hug-
anum þessum hugrökku konum
fyrir að greiða götuna fyrir allar
konur á Íslandi. Næstum hálf öld
er liðin síðan þá og mörgu hefur
miðað í jafnréttisátt. Þó eigum við
enn gríðarlega langt í land.“
Hún segir það mikinn heiður
að komast á lista þeirra kvenna
sem hafa hlotið sömu viðurkenn-
ingu undanfarin ár. „Ég horfi með
aðdáun til allra þeirra sem á undan
fóru, bæði þeirra sem hlotið hafa
viðurkenninguna og annarra sem
vörðuðu leiðina.“
Guðfinna var fyrsti rektor
Háskólans í Reykjavík (HR) og
gegndi þeirri stöðu í tæp níu ár. Þar
áður rak hún eigið ráðgjafarfyrir-
tæki sem upphaflega hét LEAD
Consulting en heitir nú LC Ráðgjöf.
Þar hefur hún starfað eftir að
tveggja ára þingmennsku hennar
lauk 2009.
Afdrifaríkt verkefni
Árið 1996 útskrifaðist Guðfinna
með BA-próf í sálfræði frá Háskóla
Horfi með aðdáun til þeirra sem á undan fóru
Guðfinna Sess
elja Bjarnadóttir
var fyrsti rektor
Háskólans í
Reykjavík. Hún
hlaut þakkar
viðurkenningu
FKA í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Gracelandic er einstakt
kvenfatamerki sem byggir á
sjálfbærum lífsstíl og ein-
faldleika. Eigandi merkisins,
Grace Achieng, hlýtur hvatn-
ingarviðurkenningu FKA og
segir þau einstakan heiður.
jme@frettabladid.is
„Vörulína Gracelandic byggir á
einfaldleika og praktík og gerir
konum kleift að líða vel, líta vel út
og að taka samfélagslega ábyrgð.
Línan er hönnuð þannig að hægt
sé að raða fatnaði og fylgihlutum
saman eftir eigin höfði, smekk og
tilefni. Hún byggir undir persónu-
legan stíl í stað þess að ýta undir
þörfina fyrir að eiga fullan skáp af
fötum fyrir ólík tilefni,“ segir Grace
Achieng, eigandi og framkvæmda-
stjóri Gracelandic netverslunar.
Grace er fædd og uppalin í Kenía
og lagði stund á markaðsfræði við
háskóla í Mombasa áður en hún
flutti til Íslands árið 2010.
Draumar geta ræst
„Það er heiður að hljóta hvatn-
ingarviðurkenningu FKA. Hún
sýnir að allt sem ég hef lagt á mig
hefur verið þess virði. Ef kona af
afrískum uppruna, með tak mark-
aða íslenskukunnáttu, getur látið
drauminn rætast á Íslandi eru
ungum stelpum og konum í þessu
samfélagi allir vegir færir.
Þetta snertir mig dýpra en ætla
má. Ég minnist þess þegar ég sat
sem lítil stelpa fyrir framan húsið
mitt í Kisumu í Kenía og fylgdist
með fólki ganga fram hjá, í fínum
fötum sem móðir mín hafði ekki
efni á. Mig dreymdi um svona fín
föt þegar ég yrði eldri. Í kvenna-
skólanum í Kisumu sparaði ég
peninginn sem ég fékk fyrir mat og
í rútuna, keypti notuð föt á flóa-
markaði og seldi skólafélögunum.
Ég vissi þarna að ástríða mín væri
að láta konur líta vel út og líða vel.
Í stuttu máli sagt þýðir þetta að
draumar geta svo sannarlega ræst.
Gracelandic hefur verið draum-
ur minn síðan ég var sex ára, þegar
frænka mín gaf mér kjól sem ég
dáðist að. Gracelandic er tilfinning.
Ég gleymi því aldrei hvernig mér
leið þegar ég klæddi mig í kjólinn.
Hann gaf mér ofurkraft og ég fann
það að ég var til og ég mátti vekja
athygli. Ef til vill er það erfitt fyrir
þau sem hafa alltaf getað keypt
föt, að átta sig á því hve mikil áhrif
fötin sem við klæðumst, hafa á
sjálfsmynd okkar og vellíðan. Þetta
er tilfinningin sem ég leitast eftir
að veita viðskiptavinum mínum.“
Stökk út í óvissuna
Þegar Grace flutti til Íslands vildi
hún starfa við tískugeirann, en fékk
enga slíka vinnu. Hún gafst þó ekki
upp á draumnum. „Ég keypti mér
saumavél og efni og byrjaði að læra
fatasaum á netinu. Einnig fór ég á
námskeið þar sem ég lærði meðal
annars að sníða. Þetta hjálpaði
mér að koma flíkunum sem ég
hannaði á framfæri og árið 2015
saumaði ég mína eigin línu fyrir
tískusýningu,“ segir Grace.
Árið 2020 stofnaði Grace Grace-
landic með lítið annað á milli
handanna en ástríðu og ákafa. „Ég
fór í námskeið í vefsíðugerð hjá
Udemy og YouTube varð minn besti
vinur. Einnig tók ég námskeið hjá
Promennt og gerði markaðsrann-
sóknir. Ég aflaði mér upplýsinga
um tískuiðnaðinn og lærði um
sjálfbæra tísku og „slow fashion“.
Svo tók ég námskeið í því að stofna
tískufyrirtæki.“
Næsta skref var að finna fram-
leiðanda í miðjum Covid-faraldri.
„Það var ógnvekjandi að treysta
einhverjum sem ég þekkti ekkert
fyrir aleigunni. En ég setti allt sem
ég átti í þetta og það borgaði sig.“
Mikil en gefandi vinna
„Það er mikil vinna að reka hönn-
unarmerki á Íslandi, sérstaklega
þegar maður er í því einn og reiðir
sig ekki á fjárfesta við fjármögnun.
Ég ákvað það snemma, því ég vil
stýra hönnuninni og fyrirtækinu
sjálf. Ég vil taka þátt í að byggja
upp fyrir komandi kynslóðir og
brjóta upp hringrás fátæktar.
Reksturinn er ekki alltaf dans á
rósum. Ég geng í öll verk sjálf, held
utan um lagerinn og bókhaldið og
tek viðskiptaákvarðanir. Ég skrifa
líka mitt eigið blogg og vitna einn-
ig töluvert í aðra. Ég reiði mig líka
á teymi fólks sem ég vinn ýmist
með eða útvista verkefnum til.
Þetta er svo ótrúlega gefandi að
ég myndi ekki vilja hafa þetta öðru-
vísi. Ég ræð líka tíma mínum sjálf
og get unnið nánast hvaðan sem er.“
Vekur athygli
Gracelandic laðar að sér áber-
andi viðskiptavini sem klæðast
f líkunum við ýmis tilefni. „Eliza
Reid forsetafrú klæddist Grace-
landic þegar Friðrik, krónprins
Danmerkur, mætti á Bessastaði.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir utanríkisráðherra gerði
það einnig þegar hún hitti forseta
Bandaríkjanna, Joe Biden. breska
Vogue-tímaritið hefur fjallað
um okkur oftar en einu sinni og
vakti athygli á hönnunarmerkinu
erlendis. Ég stefni á að gera
Grace landic að alþjóðlegu fata-
merki og er rétt að byrja,“ segir
Grace. n
Nánari upplýsingar um Grace
landic og vörurnar má finna á
gracelandic.com.
Veðjaði á ástríðuna og draumurinn rættist
Grace ákvað
það snemma
að reiða sig ekki
á fjárfesta við
fjármögnun.
Hún vildi stýra
hönnuninni
og fyrirtækinu
sjálf, taka þátt
í að byggja upp
fyrir komandi
kynslóðir og
brjóta upp
hringrás fá
tæktar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Íslands. Hún lauk síðar MA-prófi í
sálfræði frá West Virginia Univer-
sity í Bandaríkjunum og doktors-
námi í atferlisfræði frá sama skóla,
með áherslu á stjórnun.
Í doktorsnáminu vann hún
meðal annars ráðgjafarverkefni
með verkfræðideild háskólans
samhliða rannsóknum í atferlis-
fræði. „Nokkur verkefni voru afar
lærdómsrík á Bandaríkjaárunum
þar sem ég vann meðal annars
verkefni fyrir GE, Pratt & Whitney
Aircraft Engines, One Valley Bank
og Regions Financial Corporation.“
Að námi loknu, árið 1991,
stofnaði Guðfinna ráðgjafar-
fyrirtækið LEAD Consulting og
átti fyrsta verkefnið eftir að vera
afdrifaríkt. „Það vann ég fyrir One
Valley Bank en verkefnið stóð yfir
í fjögur ár. Bankinn vann til fjölda
verðlauna fyrir verkefnið sem
snerist um stefnumiðaða stjórnun,
innleiðingu stefnunnar, liðsheild,
verkefnastýringu og öflugar eftir-
fylgni-leikfléttur.“
Meðal verðlauna voru National
Organizational Excellence Award
1993 sem AQP veitti einu þjónustu-
fyrirtæki í Bandaríkjunum á ári.
„Þessi verðlaun ásamt fleirum
urðu til þess að ekki þurfti mikið
að auglýsa LEAD Consulting.
Verkefnin í kjölfarið urðu því mörg
hver viðamikil og spennandi.“
Einblínt á uppbyggingu
og nýsköpun
Á vormánuðum 1998 tók Guð-
finna við starfi rektors HR sem
hún segir hafa verið ótrúlega
spennandi og skemmtilegt verk-
efni. „Þar sem ég var fyrsti rektor
skólans einkenndist starfið eðli-
lega af uppbyggingu og nýsköpun.
Skólanum voru sett skýr leiðarljós
og framtíðarsýn sem að mestu
hefur gengið eftir. Sýnin var að
HR yrði árið 2020 einn af þessum
litlu háskólum í heiminum sem
væri alþjóðlega viðurkenndur
fyrir framúrskarandi kennslu og
rannsóknir.“
Samkvæmt úttekt Times Higher
Education hafa draumar hennar
um HR ræst. „Skólinn var árið 2020
til dæmis í fyrsta sæti allra háskóla
heims varðandi tilvitnanir í rann-
sóknir, þannig að árangurinn er í
raun framar vonum. Árangurinn
er að mínu mati vegna skýrrar
stefnu, starfsfólks, stúdenta, bak-
hjarla skólans, erlends samstarfs
og þess andrúmslofts og aðbún-
aðar sem hefur tekist að skapa
innan skólans.“
Þriðja æviskeiðið spennandi
Guðfinna verður 66 ára síðar á
árinu og gerir sér vonir um að eiga
mörg ár eftir á vinnumarkaði. „Ég
hef sem dæmi, ásamt Benedikt
Olgeirssyni og Sigríði Olgeirs-
dóttur, stofnað félagið Magnavita
eða „magnað líf“. Tilgangur félags-
ins er að fræða fólk og upplýsa
um hvernig fjölga má spennandi
og heilbrigðum æviárum fólks á
þriðja æviskeiði. Magnavita-námið
hefur farið mjög vel af stað í sam-
starfi við Opna háskólann í HR
og félagið undirbýr frekari sókn.
Mikið er undir, því fjölgun æviára
fólks sem nýtur lífsins, heilbrigt og
hraust, er mikilvægt markmið fyrir
samfélagið í heild og fyrir hvern
og einn einstakling og fjölskyldur
þeirra.“ n
ALLT kynningarblað 3FÖSTUDAGUR 27. janúar 2023