Fréttablaðið - 27.01.2023, Page 29
Í öllu falli verður
einhver látinn hverfa!
Ég er enn þá í fullu
fjöri, þótt þetta sé
kannski ekki eins
rokkað. Þetta verður
töluvert lágstemmdara
en í gamla daga.
Músíkin er lífið, að sögn
Ragnars Þórs Ingólfssonar,
formanns VR. Hann hittir
reglulega gamla vini úr hljóm-
sveitabransanum og er
kominn í nýja grúppu.
gar@frettabladid.is
„Þetta er mjög gott meðal við öllu
álaginu sem fylgir verkalýðshreyf-
ingunni,“ segir Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, sem á morgun
tekur upp tvö lög með nýju hljóm-
sveitinni Fjöllum.
Frá unga aldri hefur Ragnar Þór
verið í ýmsum hljómsveitum. „Ég
var að hitta gamla félaga sem voru
að spila saman í gamla daga fram-
sækið og metnaðarfullt rokk,“ segir
hann um nýlegan fund sinn með
meðlimum hljómsveitarinnar Los.
„Þetta er gamall vinahópur sem
reynir að hittast reglulega og rifja
upp gamla takta en síðan er ég í ann-
arri hljómsveit sem er að fara að taka
upp tvö ný lög sem væntanlega verða
gefin út með vorinu,“ segir Ragnar
Þór og á þar við hljómsveitina Fjöll.
„Við erum að fara í upptökur um
helgina að taka upp ný lög með
nýrri hljómsveit. Ég er enn þá í
fullu fjöri, þótt þetta sé kannski
ekki eins rokkað. Þetta verður tölu-
vert lágstemmdara en í gamla daga
– og vonandi aðgengilegra,“ svarar
Ragnar Þór kíminn spurður hvers
kyns tónlist verði þar á ferð.
Ragnar Þór kveðst hafa leikið á
flest hljóðfæri.
„En trommurnar eru mitt aðal.
Ég er trommari í þessari hljómsveit
og trommaði í þeim hljómsveitum
sem ég var í sem ungur maður,“ segir
hann.
Aðspurður segir Ragnar Þór lög
Fjalla ekki vera verkalýðssöngva
enda spilamennskan ekki tengd
verkalýðshreyfingunni sérstaklega.
„Ég held að þetta sé meira það
sem maður hefur ástríðu fyrir að
gera, sem er að spila,“ svarar Ragnar
Þór og ítrekar það sem hann sagði
áður um góð áhrif þess að spila á
hljóðfæri og vera í hljómsveit. „Það
er gott að dreifa huganum í áhuga-
málunum. Það gefur mér mikið.“
Ragnar Þór semur ekki lögin sem
Fjöll flytja. „Ég hef verið minnst í því
að semja en við erum saman í því
að útsetja og ég slæ taktinn,“ segir
trommuleikarinn.
Frá unglingsaldri var Ragnar Þór
í hljómsveitinni Guði gleymdir sem
síðar varð hljómsveitin Los, nefnd
eftir einu laga Guði gleymdra. Sú
hljómsveit gaf að hans sögn út sitt
fyrsta lag 1993. „Það sem Los var að
gera finnst mér alltaf stórskemmti-
legt. Þetta nýja er aðeins rólegra.“
Sú mynd sem oftast er dregin
upp af Ragnari Þór segir hann oft
litaða af togstreitu og átökum, og
Verkalýðsleiðtoginn heldur
takti og tekur upp ný lög
Góðir vinir úr hljómsveitinni Los hittast reglulega og telja í lag. Myndir/AðsendAr
Astro frá Sel
fossi var til
umfjöllunar í
Morgunblaðinu
og kvaðst leika
létt rokk, undir
áhrifum frá
Bubba Mor
thens meðal
annarra.
Ungi trommar
inn kominn í
gang.
Nýskriðnir úr
grunnskóla og
Guði gleymdir.
Meðlimir hljómsveitarinnar Fjalla. Ragnar Þór Ingólfsson annast taktinn.
toti@frettabladid.is
Lárus Blöndal, Lalli töframaður,
frumsýnir nýtt íslenskt barna-
leikrit, Magic Show með Lalla
töframanni, í Tjarnarbíói á sunnu-
daginn og telur óhætt að tala um
einstakt sviðsverk á Íslandi. Sýn-
ingin sé nefnilega f lutt án orða og
hentar þannig öllum börnum, óháð
uppruna eða móðurmáli.
„Lagt var upp með að nota
undraheim töfra og töfrabragða
til að skapa hrífandi barnaverk í
lengd sem hentar yngri leikhús-
gestum og tengir þau saman,“ segir
Lalli og bendir á að verkið sé í eðli
sínu þannig að heyrnarlaus börn
og þau sem ekki skilji íslensku fái
nákvæmlega sömu leikhússupp-
lifun og allir hinir krakkarnir.
Lalli er sjálfur í aðalhlutverkinu
en nú verður þvottabjörninn Ringó
með honum á sviðinu í fyrsta
skipti. Hann segir að saman muni
þeir heilla áhorfendur, unga sem
aldna, með gríni, gleði og töfra-
brögðum og útilokar hann ekki að
Ringó verði jafnvel sagaður í sund-
ur. Nema náttúrlega að Ringó sagi
Lalla í sundur. „Í öllu falli verður
einhver látinn hverfa!“ segir Lalli.
„Sýningin hentar svo sannarlega
allri fjölskyldunni,“ segir Lalli sem
heldur miðaverði í lágmarki til þess
að „auðvelda barnafólki að hópast í
leikhúsið og sparka duglega í verð-
bólgudrauginn í leiðinni.“
Þá bendir hann á að aðgengi að
Tjarnarbíói sé mjög gott fyrir þau
sem notast við hjólastól og notist
leikhúsgestur við NPA þurfi ekki að
greiða fyrir miða aðstoðarmann-
eskjunnar.
„Það má því sannarlega velta því
fyrir sér hvort Lalli töframaður hafi
hér búið til aðgengilegustu barna-
sýningu Íslandssögunnar og þótt
víðar væri leitað.“ n
Lalli og Ringó töfra fram einstaka barnasýningu
Sagar Lalli Ringó
eða sagar Ringó
Lalla?
Mynd/Aðsend
ef till ekki að ástæðulausu þegar
menn eru í mikilli baráttu.
„En síðan er raunveruleikinn
oft og tíðum annar. Það er að
minnsta kosti ekki þannig með
mig að það sé togstreita og leið-
indi í kring um vinina. Þeir sem
lifa og hrærast í músíkinni vita að
hún er lífið, það sem gefur lífinu
gildi og gleði.“ n
Samningar þvælast ekki fyrir Ragnari Þór þegar hann lemur húðir með Fjöllum.
FRéttabLaðið lífið 2527. janúaR 2023
fÖSTUDAGUR