Fréttablaðið - 31.01.2023, Qupperneq 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Katrín er 25 ára og útskrifaðist úr
listfræði við Háskóla Íslands síð-
asta sumar og starfar nú á Gerðar-
safni í Kópavogi. Sambýlismaður
hennar, Jón Helgi Ingvarsson, er
28 ára sjúkraþjálfari hjá Sjúkra-
þjálfun Íslands í Kringlunni.
„Ég hef alltaf haft brennandi
áhuga á hönnun og listum og
myndi segja að innanhússhönnun
sé mitt stærsta áhugamál. Ég stefni
á að fara í nám erlendis en það
er draumur sem ég ætla að melta
aðeins lengur. Mér finnst svo
magnað hvað hlýleg og skemmti-
leg rými hafa góð áhrif á líðan
okkar. Mér líður best í rýmum þar
sem frumleiki, sjarmi og hlýleiki
eru í fyrirrúmi. Við tókum þessa
íbúð svolítið í gegn með góðri
hjálp, við f lotuðum, skiptum
um parkett, máluðum, settum
flísar í forstofuna og eldhúsið.
Svo skiptum við um borðplötu í
eldhúsinu, settum nýjar glugga-
kistur og skiptum um innréttingu
á baðinu,“ segir Katrín.
„Ég aðhyllist ekki neinn sér-
stakan stíl heldur kaupi ég bara
það sem mér finnst fallegt og oft
smá öðruvísi, svo finn ég bara leið
til að láta allt virka saman. Ég er
eiginlega alltaf með fersk blóm
heima, þau gefa mér svo mikið. Vil
helst ekki taka það saman hvað
ég eyði miklum pening í blóm
á mánuði. Ég er ekkert rosalega
mikil plöntumanneskja en falleg
monstera finnst mér gefa heimil-
inu skemmtilegan blæ.“
Aðspurð segir Katrín hjarta
heimilisins klárlega vera eldhúsið.
„Þar eru svo dýrmætar samveru-
stundir. Ég enda einhvern veginn
alltaf við eldhúsborðið, sama
hvort ég er að spjalla, læra eða
slaka á. Mér finnst ómissandi að
vera með góða kaffivél, góða potta
og pönnur.“
Litir í mestu uppáhaldi
Fallegir og hlýir litir prýða veggi
heimilisins. „Þegar við vorum
að velja litina á veggina þá vildi
ég hlýlega brúna og beige tóna.
Mér finnst þessir brúnu tónar svo
mikið fallegri en gráir og hvítir
sem eru kannski algengari. Mér
finnst allir litir fallegir en það eru
tveir litir sem fara rosalega í mig
og það eru rauður og grár þannig
að ég reyni að kaupa sem minnst
af þeim litum. Bleikur, appelsínu-
gulur og brúnn eru í miklu uppá-
haldi.“
Katrín hefur gaman af því að
blanda saman alls konar efnum
í húsgögnum. „Mér finnst til að
mynda mjög fallegt að blanda
saman ólíkum við. Eikar-borð-
platan og eldhúsborðið finnst
mér virka mjög vel saman þó að
viðurinn sé alls ekki eins á litinn.
Púðar og teppi gefa stofunni eitt-
hvað extra sem gerir svo mikið.“
Söfnunaráráttan er líka til
staðar. „Við erum að safna Royal
Copenhagen-stellinu og það
bætist hægt og rólega í það. Ég er
líka að safna alls konar skeljum,
kuðungum og svönum, það er
mjög skemmtilegt.“
Með loftbelg í stofunni
„Uppáhalds smáhlutirnir eru
flestallir úr Góða hirðinum eða
keyptir notaðir eins og til dæmis
bleika Smeg-brauðristin sem er í
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Litirnir á veggjunum skapa ákveðinn hlýleika og gaman er að sjá hvernig Katrín raðar ólíkum myndum saman á vegginn fyrir ofan sófann.
Skapar skemmtilega stemningu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hjarta heimilisins slær í eldhúsinu og franski glugginn skapar þessa dýpt
í rýminu. Lifandi blóm er eitthvað sem Katrín er dolfallin yfir og eyðir í.
Hlutirnir í eldhúsinu eru litríkir og gaman að sjá hvernig
Katrín blandar líflegum litum eins og brauðristinni
bleiku og appelsínugula pottjárnspottinum.
Ákveðin ró er yfir svefnherberginu og litavalið myndar
þetta rómantíska yfirbragð.Stofa og eldhús eru í sama rými og fléttast vel saman.
miklu uppáhaldi. Ég held mikið
upp á loftbelginn í stofunni, við
keyptum hann þegar við byrj-
uðum að búa saman og vorum
í íbúð með mikilli lofthæð á
Lauga veginum þar sem hann naut
sín vel. Hann fékk að koma með í
þessa íbúð og hann er alltaf jafn
skemmtilegur, þótt hann sé aðeins
farinn að gulna greyið.
Af stærri hlutunum er sófaborð-
ið úr Tekk og rattan-gólflampinn
úr Ungfrúnni góðu uppáhalds.
Stórir gluggar gefa íbúðinni
mikla birtu sem Katrínu finnst
vera svo dýrmætt. „Franski glugg-
inn, rósettan og loftlistarnir gefa
íbúðinni einnig mikinn sjarma.
Svefnherbergið er lítið og kemst
lítið annað fyrir en rúm en við
náðum að koma fyrir borðtölvu
sem er í litlu skoti í herberginu.“
Þingholtin draumastaðsetning
Þegar kom að því að velja stað-
setninguna á heimilinu réð hverfið
miklu. „Stór partur af hverju
við heilluðumst af íbúðinni var
hverfið, Laugardalurinn. Hverfið er
einstakt og ég er fædd og uppal-
in hér. Hér er maður nálægt allri
þjónustu, Grasagarðinum og fleiri
skemmtilegum stöðum. Þing-
holtin í miðbæ Reykjavíkur eru
þó ákveðin draumastaðsetning og
vona ég að við munum enda þar
einhvern tímann. Menning, listir
og skemmtileg kaffihús er það sem
heillar mest við það að búa í mið-
bænum og auðvitað stemningin.“ n
Ég aðhyllist ekki
neinn sérstakan
stíl heldur kaupi ég bara
það sem mér finnst
fallegt og oft smá öðru-
vísi, svo finn ég bara leið
til að láta allt virka
saman.
2 kynningarblað A L LT 31. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR