Fréttablaðið - 31.01.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 31.01.2023, Blaðsíða 11
Amnesty International telur að einangrunarvist sé beitt óhóflega meðal gæslu- varðhaldsfanga. Lögmaður Amnesty hvetur stjórnvöld til að breyta lögum og banna þetta verklag. Fangi sem sat í einangrun í sautján daga í fyrra segir það pyntingu. lovisa@frettabladid.is Mannréttindasamtökin Amnesty International telja að einangrunar- vist í gæsluvarðhaldi sé beitt óhóf- lega á Íslandi. Samkvæmt nýrri skýrslu samtakanna, Waking up to nothing: Harmful and unjusti- fied use of pre-trial solitary con- fine ment in Iceland, voru alls 825 einstaklingar vistaðir í einangrun á meðan þeir voru í gæsluvarðhaldi á tímabilinu 2012 til 2021. Af þeim voru 99, eða tólf prósent, lengur í einangrun en fimmtán daga. Með því að beita einangrunarvist óhóf- lega telja samtökin að íslensk yfir- völd brjóti gegn samningi Samein- uðu þjóðanna gegn pyntingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refs- ingu með alvarlegum afleiðingum fyrir sakborninga og rétt þeirra til sanngjarnra réttarhalda. Í skýrslunni bendir Amnesty á að þó svo að einangrunarvist sé ekki með öllu bönnuð samkvæmt alþjóðalögum þá kveði þau á um að beiting hennar skuli heyra til algjörra undantekninga, hún skuli vara í sem skemmstan tíma og ávallt vera háð ströngum skilyrðum. Amnesty segir að engin þessara atriða séu virt á Íslandi þar sem kröfur lögreglu um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi séu nánast ávallt samþykktar af dómurum. Sam- kvæmt rannsókninni samþykktu dómarar kröfur ákæruvaldsins um einangrunarvist í gæsluvarðhaldi í 99 prósentum tilvika á árunum 2016 til 2018. Rannsókn Amnesty International gefur til kynna að lítið hafi breyst frá árinu 2018. Bent er á að helsta réttlæting yfir- valda á beitingu einangrunarvistar í gæsluvarðhaldi sé verndun rann- sóknarhagsmuna en Amnesty Int- ernational lítur svo á að aldrei skuli beita einangrunarvist til þess eins að vernda rannsóknarhagsmuni lögreglu og segir það stríða gegn alþjóðlegri mannréttindalöggjöf um nauðsyn og meðalhóf. „Önnur og vægari úrræði eru tiltæk til að gæta rannsóknarhags- muna, eins og að aðskilja gæsluvarð- haldsfanga frá tilteknum einstakl- ingum og takmarka símanotkun,“ segir í skýrslunni. Í skýrslu Amnesty eru dregin fram gögn um gæsluvarðhald aftur til ársins 2012. Litlar breytingar hafa átt sér stað á þeim tíma. Hlut- fall þeirra sem eru í gæsluvarðhaldi og fara í einangrun er á tímabilinu aldrei lægra en 59 prósent árlega. Hæst var það 78 prósent allra sem úrskurðaðir voru í gæsluvarðhald á tímabilinu. Ef aðeins er skoðað árið 2021 Einangrunin er bara til að brjóta fólk niður. Hrannar Fossberg, fangi á Litla-Hrauni Óhófleg notkun einangrunarvistar á Íslandi Útisvæði ein- angrunarfanga á Hólmsheiði. MYND/AÐSEND Segir einangrun pyntingaraðferð Hrannar Fossberg er fangi á Litla-Hrauni og var í ágúst ákærður fyrir tilraun til manndráps og vopnalagabrot fyrir að hafa skotið að tveimur einstaklingum í febrúar í fyrra. Hann situr í fangelsi eins og stendur og afplánar eftirstöðvar dóms sem hann hlaut árið 2018. Hrannar var í einangrun í sautján daga í febrúar í fyrra í fangelsinu að Hólmsheiði á meðan lög- reglan rannsakaði brot hans. Hann var að jafnaði inni í einangrun í 23 klukkustundir á dag en átti svo að fá að fara út. Vegna veðurs reyndist það þó erfitt. „Þegar ég var í einangrun þá var ekki hægt að fara út því það var svo mikill snjór og þeir vildu ekki moka,“ segir Hrannar og bendir á að samkvæmt reglum hafi hann átt rétt á útiveru sem hann fékk ekki að njóta. „Einangrunin er bara til að brjóta fólk niður. Í mínu máli nýtti ég þann rétt til að tjá mig ekki neitt og lögreglan nýtti þá sinn rétt til að hafa hana lengri og lengri, til að skemma mig,“ segir Hrannar sem segir það hafa verið alveg skýrt frá upphafi að hann hefði ekki ætlað að tala. „En þetta er mannskemmandi. Ef þú ert ekki með sterkan huga fer þetta illa með fólk.“ Hann segir að hann telji það ekki hafa skipt máli fyrir rannsókn málsins að hann væri í einangrun. „Meðan á einangruninni stóð var lögreglan ekki í raun með neitt í höndunum til að halda mér í einangrun, og það í meira en hálfan mánuð. Ég var búinn að fara í fjórar eða fimm skýrslutökur og það var alltaf það sama. Ég ætlaði ekki að tjá mig og það sagði enginn neitt í þessu máli,“ segir Hrannar og að hann telji ólíklegt að hann hefði á nokkrum tímapunkti getað spillt rannsóknarhagsmunum og að ef hann hefði ætlað sér það hefði hann allt eins getað gert það þegar einangruninni lauk. „Einangrun er bara pyntingaraðferð og það er alveg búið að vera vitað í mjög langan tíma. Það er ekki eins og það sé búið að binda þig við stól og kveikja í kynfærunum á þér en aftur á móti þá er þessu jafnað við það. Fólk sem er óstöðugt í hausnum og er lengi í einangr- un, það er ekki sama fólkið eftir það.“ Lítið breyst frá 2008 Simon Crowther, lögmaður Amnesty Inter natio- nal, hefur unnið að skýrslunni í um ár ásamt Alison Abrahams sem sá um helstu rannsóknar- vinnu. Hann telur mikilvægt að látið verði af því að vista fólk í einangrun til að vernda rann- sóknarhagsmuni og hvetur íslensk stjórnvöld til að breyta löggjöf sinni tafarlaust. „Það hefur engin marktæk breyting átt sér stað síðustu ár og þess vegna er þessi rannsókn svo mikilvæg,“ segir Simon en tilefni skýrslunnar var það þegar sérstök nefnd Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum vakti athygli á því árið 2008 að hlutfall einangrunar- fanga væri hátt hér miðað við annars staðar. Simon telur að ástæðan fyrir því að lítið hafi breyst síðan geti verið að um sé að ræða verklag sem sé fast í menningu lögreglu, dómstóla og ákæruvalds. „Eftir að einhver er handtekinn þá er viðtekin venja hér að halda þeim frá öllum öðrum vegna verndunar rannsóknarhagsmuna. Það er orðið hluti af menningu réttarfarsins og það er mjög mikilvægt að þessu verði breytt sem fyrst,“ segir Simon og að þetta sé ekki venja erlendis. Sem dæmi sé fólk aldrei vistað í einangrun í Bretlandi og í Danmörku séu um sjö á ári í einangrun meðan á gæsluvarðhaldi stendur. Hann segir eðlilegt að takmarkanir séu meðan á gæsluvarðhaldi stendur, eins og á því hverja fólk hittir eða talar við, en telur enga þörf á því að vista fólk í einangrun. Þá gerir hann einnig miklar athuga- semdir við aðbúnað einangrunarfanga hér á Íslandi en í fangelsinu að Hólmsheiði eru gluggar skyggðir og útisvæðið þannig að ekki er hægt að sjá út. „Samkvæmt alþjóðlegum stöðlum er það alveg skýrt að fangar eiga að geta séð út. Auðvitað þarf að gæta að öryggi en þeir ættu að geta séð út og skyggðir gluggar og garður þar sem þú getur aðeins horft upp en ekki út er langt frá því að vera samkvæmt þeim.“ Hrannar FossbergSimon Crowther, lögmaður Amnesty International Fjöldi einstaklinga í gæsluvarðhaldi og einangrun n Í einangrun n Í gæsluvarðhaldi 180 160 140 120 100 80 60 40 20 0 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 20210 Mannréttindi þá má sjá að af þeim 114 sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald voru 70 í einangrun á einhverjum tíma- punkti. Að meðaltali voru þau í um viku í einangrun en lengd ein- angrunarinnar spannaði einn til 37 daga. Af þeim 70 sem voru í einangrun í gæsluvarðhaldi árið 2021 voru tveir lengur en í fimmtán daga en á öllu tímabilinu sem var til skoðunar voru 99 einstaklingar í einangrun í gæsluvarðhaldi í meira en fimm- tán daga. Í skýrslunni er einnig farið ítar- lega yfir áhrif einangrunarvistar en fjöldi rannsókna bendir til þess að einangrunarvist hafi alvarleg heilsufarsáhrif, bæði líkamleg og andleg. Einkenni fela meðal annars í sér svefnleysi, rugling, ofsjónir og geðrof. Þá segir í skýrslunni að neikvæð heilsufarsáhrif geti komið í ljós eftir aðeins örfáa daga í einangrun en á fyrstu tveimur vikum einangrunar- vistar eykst sjálfsvígshætta og líkur á sjálfsskaða. Í skýrslunni er skorað á íslensk stjórnvöld að koma af stað mikil- vægum umbótum og að láta af einangrunarvist meðan á gæslu- varðhaldi stendur. Lagðar eru fram tillögur til úrbóta sem beinast að hinum ýmsu stofnunum eins og dómsmálaráðuneyti, Alþingi, fang- elsismálayfirvöldum, lögreglu, Lög- mannafélagi Íslands og til nefnda og embætta sem sinna forvörnum. Meðal þess sem lagt er til er að lögum verði breytt og það bannað að úrskurða einstaklinga í einangr- un einungis til að tryggja rannsókn- arhagsmuni meðan á rannsókn stendur. Einnig er það lagt til að ef ekki verði látið af henni, uppfylli hún skilyrði ákvæða mannréttinda- laga. Þá er því beint til heilbrigðis- og dómsmálaráðherra að aðgangur einstaklinga, sem vistaðir hafa verið í einangrun, að læknisþjónustu sé tryggður og að sérstaklega sé hugað að andlegri heilsu þeirra. Þá er það einnig lagt til að aðstæður og aðbúnaður í fangels- inu að Hólmsheiði verði lagfærður og bent á sem dæmi að gluggar sem séu skyggðir verði fjarlægðir og venjulegt gler sett í gluggana og að tryggt verði að hægt sé að sjá út um útisvæðið en það er vel girt af með háum vegg og vírgirðingu. Því er beint til dómstólasýslunnar að þróa leiðbeiningar sem skýri slæmar af leiðingar einangrunar- vistar, hvað mannréttindasáttmál- ar segja um slíka vist og að öllum dómurum sé boðið að heimsækja einangrunaraðstöðuna á Hólms- heiði. n FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR 1131. JANÚAR 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.