Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 7

Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 7
Það kom því okkur á óvart hvað stjórnvöld voru fljót að draga fjárveiting- arnar til baka. Orðspor skólans er frábært. Á sama tíma og Háskóla Íslands er treyst til að leiða samstarfsverkefni rannsókn- arháskóla í Evrópu neyðist hann til að draga úr rekstri vegna minni fjárveitinga úr ríkissjóði. Áskorun, segir rektor, á meðan háskólar í nágrannaríkjum gefa í hvað fjármagn varðar. Það er krapahríð á aflíðandi bíla- stæðinu framan við Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hún er kannski ekki aðeins til vitnis um umhleyp- ingasama tíð í veðri heldur og í fjárveitingum til Háskóla Íslands, helstu og stærstu menntastofnunar landsins sem rekur sögu sína allt aftur til nýlendutímans í upphafi síðustu aldar. Jón Atli Benediktsson, rektor skólans um átta ára skeið, skeiðar eftir ganginum á neðri hæð reisu- legrar byggingarinnar og klæðir sig úr regnvotri úlpunni um leið og hann vindur sér inn á rúmgóða skrif- stofuna sem er jafn traustvekjandi og slagviðrið utan glugga er ófýsilegt. Það eru tíðindi af kontór rektors, skólinn sem farið hefur með himin- skautum í áliti og orðspori á síðustu árum og leiðir rannsóknarsamstarf evrópskra háskóla, þarf að staldra við í rekstri. „Nemendum skólans fjölgaði tals- vert í heimsfaraldrinum enda var það ósk stjórnvalda að opna dyr skólans. Það er ekki einfalt að taka við tíu prósenta fjölgun nemenda á örskömmum tíma en það tókst með miklu átaki starfsfólks. Þessu fylgdu vissulega viðbótarfjárveitingar og vitað var að þær væru tímabundnar. Þrátt fyrir þessa viðbót var engu að síður mikill fjöldi nemenda við skól- ann á Covid-tímabilinu umfram fjárveitingar. Það kom því okkur á óvart hvað stjórnvöld voru fljót að draga fjárveitingarnar til baka – og 300 milljóna króna niðurskurður sem bættist við í annarri umræðu fjárlaga reyndist okkur mjög erf- iður,“ segir Jón Atli. Samræður lofa góðu Þar við bætist, segir hann, að hús- næðiskostnaður skólans er orðinn meira íþyngjandi sem nemur hátt í 300 milljónum króna á milli ára vegna nýs fyrirkomulags í hús- næðismálum. Vonir standa þó til að unnt verði að leiðrétta það. Þá er einnig 200 milljóna króna við- bótarkostnaður vegna húsnæðis þar sem starfsemi Menntavísindasviðs skólans er enn þá rekin í Stakka- hlíð á meðan verið er að undirbúa flutning hennar í nýuppgerða Sögu vestur á Melunum. „Þessar upphæðir svara til tveggja prósenta af fjárveitingu skólans sem við finnum auðvitað rækilega fyrir, ofan í annan niðurskurð,“ segir Jón Atli. Hann segir skólastjórnendur ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að ráða við þetta verkefni og að samræður við stjórnvöld lofi góðu, bæði hvað húsnæðiskostnað varðar og rekstrarfjármuni skólans. „Það er vel tekið í okkar mál- flutning af hálfu stjórnvalda,“ segir rektor og bætir við að samtalið við ráðherra málaflokksins lofi góðu. „Ég hef vitaskuld þungar áhyggjur, en hef ekki ástæðu til að ætla annað en að þetta verði leiðrétt.“ Það saki heldur ekki í þessari erfiðu stöðu að það standi skýrum stöfum í stjórnarsáttmálanum að fjármagna eigi háskóla landsins til jafns við sambærilega skóla á hinum Norðurlöndunum. „Þar er auðvitað verk að vinna, því við erum eftir- bátar þeirra skóla í fjármögnun,“ segir hann. Niðurskurður blasir við hjá Háskóla Íslands FRÉTTAVIÐTAL Jón Atli hefur verið rektor Háskóla Ís- lands í átta ár. „Doktorsbraut- skráningum hefur fjölgað úr fjórum árið 2001 í 88 á síðasta ári sem er 22-földun. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Niðurskurður í heild sinni En staðan sé einfaldlega þannig í bráð að grípa verði til hagræðingar í rekstri skólans. „Að óbreyttu sjáum við fram á niðurskurð í háskóla- kerfinu í heild sinni,“ segir rektor og bendir á að í fjármálaætlun fyrir næsta ár, 2024, sé einnig gert ráð fyrir samdrætti í fjárveitingum til HÍ sem nemi 2,2 prósentum. „Er f iðleik a r nir bla sa hvað gleggst við á stórum sviðum eins og Menntavísindasviði og Heil- brigðisvísindasviði, sem er auðvitað svolítið í mótsögn við veruleikann úti á vinnumarkaðnum sem kallar eftir f leira fólki, ekki síst í heil- brigðisþjónustunni sem glímir við manneklu. Við þurfum hjálp til að draga ekki um of saman á því sviði – og erum í samstarfi við stjórnvöld í þeim efnum,“ segir Jón Atli. En hagræðingarinnar mun sjá stað víðar? „Það má búast við að námskeið- um verði fækkað,“ svarar hann að bragði og horfir líka til starfs- mannafjölda skólans. „Við munum ekki ráða fólk í stað þess sem hættir og eins munum við draga úr kostn- aði vegna ferðalaga. Það er ekkert um annað að ræða en að skoða allan reksturinn – og þetta verður mikil yfirferð af hálfu stjórnenda og alls starfsfólks,“ segir rektor. Verður gripið til uppsagna? „Það er erfitt að segja. Ég get ekki fullyrt að svo verði á þessari stundu. En óskir um nýráðningar þarf að bera undir fjármálanefnd. Almennt verður ekki ráðið í störf hjá fræða- sviðum nema þau geti sýnt fram á að skila hallalausum fjárhagsáætl- unum fyrir yfirstandandi ár – og fræðasvið í hallarekstri, sem ekki eiga afgang frá fyrri tíð, skulu koma með tillögur um hvernig draga megi úr fjölda kennslustunda. Svo þarf að endurskoða fastlaunasamninga í stjórnsýslu og stoðþjónustu þar sem tilefni er til og samnýta störf þvert á fræðasvið,“ segir rektor og bætir við: „Það verður velt við hverjum steini.“ Ekki stór skóli á norræna vísu Háskóli Íslands ber höfuð og herðar yfir aðra háskóla landsins með tvo af hverjum þremur nemendum á háskólastigi. Nemendur skólans eru ríflega 14 þúsund, þar af um 66 pró- sent konur og 33 prósent karlar. Og þá er fjöldi starfsfólks nálega 1.800, þar af eru prófessorar, dósentar og lektorar 631. Er skólinn of stór? „Hann er ekki stór á norræna vísu, en hann er auðvitað þjóðar- skóli hér á landi og þar af leiðandi er hann breiður skóli. Vegna sér- stöðu sinnar býður hann upp á fjölda námsgreina sem hvergi eru kenndar annars staðar á Íslandi,“ útskýrir rektor og bætir því við að þjóðarháskóli geti í rauninni ekki hagað sér eftir duttlungum fjár- magns og vinsælda. „Við erum ekkert endilega að bjóða upp á greinar af því að þær skila góðum tekjum og ágóða. Það er þvert á móti okkar ábyrgð að bjóða upp á breitt námsframboð sem gagnast öllum fjölbreytileika samfélagsins og nýjum áskorunum þess. Okkar ábyrgð er mikil. Og þar af leiðandi eru einkunnarorð skól- ans í stefnu hans mjög lýsandi: Betri háskóli – betra samfélag.“ Hann segir eitt stærsta verk- efni við stjórnun skólans vera að standast samkeppni við háskóla í nágrannaríkjunum. „Nemendur eru frárri á fæti en áður,“ segir rektor og bendir á að skólar í grennd við Ísland séu f lestir hverjir að gefa í hvað fjármögnun varðar. „Við getum ekki leyft okkur annað en að vera á svipuðu róli og þeir – og það verðum við að hafa í huga þegar við tökumst á við hag- ræðingu næstu missera,“ segir hann. Orðspor skólans frábært En orðsporið verði ekki tekið frá Háskóla Íslands. „Orðspor skólans er frábært,“ segir rektor. Núna séu um 1.700 erlendir nemendur við skólann. „Fjöldi þeirra það sem af er þessari öld hefur rúmlega fjór- faldast – og það er mjög há einkunn fyrir háskóla á Íslandi,“ bætir hann við. Og skólanum sé mikill sómi sýndur í alþjóðlegu samstarfi, svo sem með því að velja rektor Háskóla Íslands í forsæti Aurora sem er sam- starfsverkefni rannsóknarháskóla í Evrópu. „Sú staðreynd að rektor minnsta háskólans í þessu samstarfi er val- inn til að leiða það vitnar auðvitað um ekkert annað en hversu frá- bæru starfsfólki Háskóli Íslands hefur yfir að ráða, en mörg okkar koma að þessu starfi,“ segir hann, stoltur í bragði. Háskólinn hefur nú í vikunni, ásamt samstarfsskólum, lagt inn umsókn um frekari fjárstuðning til Evrópusambandsins til að taka þátt í þessu samstarfsverkefni, enda sé þetta samstarf honum afar dýrmætt. Jóni Atla verður litið yfir rekt- orsskrifstofuna. „Stundum verður manni hugsað til þess sem Björn M. Olsen, fyrsti rektor Háskóla Íslands, sagði á stofnárinu 1911, í fátæku og fámennu samfélagi, en hans draum- ur var að HÍ yrði háskóli á meðal háskóla,“ rifjar hann upp. „Núna, rösk ri öld síðar, er Háskóli Íslands leiðandi á alþjóða- vísu. Það segir allt um það að orð Björns M. Olsen hafa ræst – og það sýnir okkur líka hvað mikið hefur breyst.“ Og um leið og hann horfir á krapahríðina leka niður glugg- ana á rektorsskrifstofunni, botnar hann þessa hugsun. „Við erum að uppskera. Tökum bara eitt dæmi í viðbót. Doktorsbrautskráningum hefur fjölgað úr fjórum árið 2001 í 88 á síðasta ári sem er 22-földun. Við erum að sjá að áherslan á rann- sóknarnám hér í skólanum hefur skipt þjóðina sköpum. Við sjáum þess merki víða í samfélaginu, við sköpun fyrirtækja og í nýsköpun um allt land. Og við erum byrjuð að njóta alls þess ávinnings,“ segir Jón Atli Benediktsson. n Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTIR 73. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.