Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 8
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRI: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101
Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
HALLDÓR
FRÁ DEGI TIL DAGS
Jú, auð-
vitað finnst
okkur
óþægilegt
að tala um
morð í
þessu sam-
hengi.
Formaður
samtak-
anna sagði
í ræðu
skömmu
áður en
hann tók
við starfi
forsætis-
ráðherra
að „fátækt
fólk geti
ekki
beðið“.
Þegar nokkur stjórnmálaöfl afréðu að sameinast
fyrir um aldarfjórðungi eftir að hafa séð hvernig
mátti koma Sjálfstæðisflokknum frá völdum í
Reykjavík til frambúðar þá voru í einum flokkanna
tveir miðaldra karlmenn sem töldu sig hafa höndlað
stórasannleik og heilagleiki þeirra yrði ekki virtur
að verðleikum í hinum nýja f lokki. Því gerðu þeir
það sem mönnum er tamt sem verða undir þegar
lýðræðislega er staðið að málum, þeir stofnuðu eigin
f lokk. Þeir töldu sig ekkert þurfa að fylgja meirihluta
í þeim flokki sem þeir tilheyrðu og áttu frama sinn í
stjórnmálum að þakka því að þar hafði valist til for-
ystu stelpa frá Stokkseyri sem þeir álitu sig hafna yfir
að þurfa að fylgja.
Að yfirvarpi sögðust þeir vera svo mikið á móti
Nató og hernum að þeir þyrftu að stofna um það
sérstakan f lokk. Kannski þeir hafi líka óttast lýð-
ræðið, til dæmis að þjóðin fengi að segja til um hvort
hún vildi ganga í Evrópusambandið? Eða jafnvel að
sjávarútvegurinn þyrfti að greiða það sem honum
ber í sameiginlega sjóði þjóðarinnar, en fyrst og
fremst sögðu þeir það vera af því að þeir voru svo
mikið á móti Nató og hernum.
Svo fór herinn án þess að þeir ættu nokkurn hlut
að máli og svo kom herinn eða ígildi hans aftur og þá
voru þeir komnir í ríkisstjórn og allt gerðist það með
þeirra samþykki. Svo fóru nágrannaþjóðir að banka
upp á aðild að Nató og þá gerðist f lokkurinn helsti
talsmaður þess að f leiri fengju aðild en samt voru
þeir og eru algjörlega á móti aðild Íslands að Nató að
eigin sögn.
Hin seinni ár hefur helsti tilgangur þessara
stjórnmálasamtaka verið að tryggja að Sjálfstæðis-
f lokkurinn ráði því sem hann vill en samtökin fá
það hlutverk að réttlæta út á við ákvarðanir Sjálf-
stæðisflokksins. Formaður samtakanna sagði í ræðu
skömmu áður en hann tók við starfi forsætisráðherra
að „fátækt fólk geti ekki beðið“. Síðan eru liðin mörg
ár, formaðurinn gegnir enn starfinu og fátæka fólkið
bíður enn. n
Tölum um
stjórnmálaflokk
Bolli Héðinsson
hagfræðingar
„Takk fyrir að sýna
okkur að krabbamein
er ekki dauðadómur“
Kolluna upp
fyrir mig og
vinkonu mína!
lifidernuna.is
helenaros@frettabladid.is
Laus þrátt fyrir sannanir
„Við viljum hvetja hugsanleg
fórnarlömb til að stíga fram
og tilkynna til lögreglu og við
munum sækja til saka í öllum
þeim tilfellum sem lagalegar
skyldur okkar ná til,“ er það sem
lögreglan í Manchester vildi
sagt hafa um leið og hún til-
kynnti að allar ákærur á hendur
Mason Greenwood, leikmanni
Manchester United, hefðu verið
felldar niður. Gleymum ekki
að Greenwood var ákærður
fyrir líkamsárás og tilraun til
nauðgunar. Gleymum heldur
ekki myndböndunum, mynd-
unum og hljóðupptökunni þar
sem Greenwood virtist reyna að
þvinga kærustu sína til samræðis.
Lykilvitnið hætti við
Sársauki bresku lögreglunnar
er nánast áþreifanlegur í yfir-
lýsingu vegna málsins. Eðlilega.
Það getur ekki verið ánægjulegt
að tilkynna álíka vitleysu fyrir
alþjóð: Greenwood laus allra
mála. Ástæðan er sögð vera að
lykilvitnið hafi hætt við og að ný
gögn hafi komið í ljós. „Við þessar
aðstæður ber okkur skylda til
að stöðva málið.“ Með öll þessi
sönnunargögn. Galið. Lögreglan
nýtti svo tækifærið til að ítreka
stuðning sinn við konur og
stúlkur sem verða fyrir ofbeldi.
Einmitt það. Við skulum rétt
vona að fælingarmáttur þessarar
niðurstöðu verði ekki til þess að
enn fleiri konur og stúlkur sleppi
því að stíga fram og tilkynna
ofbeldi. n
Nína Richter
ninarichter
@frettabladid.is
Ég ræddi á dögunum við jarðfræð-
ing og náttúruverndarsinna sem er
höfundur íslensku þýðingarinnar
á enska hugtakinu ecocide, sem er
vistmorð. Mjög alvarleg og stór-
felld brot gegn náttúrunni, af ásetningi.
Hún tjáði mér að í fyrstu hefði þessi þýðing
reitt fólk til reiði. Jú, auðvitað finnst okkur
óþægilegt að tala um morð í þessu sam-
hengi.
Í júní í fyrra vísuðu tólf þingmenn Pírata,
Vinstri grænna, Samfylkingar og Viðreisnar
til ríkisstjórnar þingsályktunartillögu um
að vistmorð yrði viðurkennt sem alþjóða-
glæpur. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn
hefur lögsögu í fjórum málaflokkum.
Þjóðarmorðum, glæpum gegn mannkyni,
strípsglæpum og glæpum gegn friði. Á
dögunum kom út ný skýrsla um mikilvægi
refsivæðingar vistmorða og sífellt bætist í
hóp þeirra þjóða sem lýst hafa yfir vilja í þá
átt.
Orðið náttúruverndarsinni, og tilvist þess
orðs, er merkileg. Orðið gefur til kynna að
andstæðan sé til, manneskjur sem ekki eru
á bandi náttúrunnar, sem leitast ekki við
að vernda hana. Það er skarpt kynslóðabil
þegar kemur að því hvort fólki finnist það
skrýtið. Fulltrúar kynslóða fólks með lofts-
lagskvíða sem ólust upp við jurtamjólk á
kaffihúsum eiga erfðara með að ímynda
sér að til sé fólk með slíkar skoðanir: Að
náttúran eigi engan rétt, og að við berum
ekki ábyrgð. Hún sé okkur óviðkomandi
eins og eitthvert fyrirtæki sem kemur okkur
ekki við nema þegar og ef við eigum í við-
skiptum við það.
Þessar vangaveltur eru jafngamlar teg-
undinni, um samband okkar og siðferðis-
lega ábyrgð gagnvart náttúrunni. Í tímans
rás höfum við fundið upp lagabókstafi og
alþjóðalög en frumskógur, foss eða óson-
lagið getur ekki að eigin upplagi fengið sér
lögfræðing og krafist þess að vera lýstur
sjálfstæður réttaraðili og einstaklingar bera
ekki ábyrgð þó að fyrirtæki borgi í versta
falli sektir.
Náttúran má sín lítils gagnvart hugmynd-
um mannanna og lagabreytingar af þessum
toga hafa verið seigar í gang. Það breytir
heimsmynd okkar ef refsiramminn gagn-
vart náttúruspjöllum verður endurhugs-
aður á þennan hátt. Ef vistmorð er glæpur,
lagður að jöfnu við þjóðarmorð og glæpi
gegn mannkyni, og það á elleftu stundu. n
Plássfrekjan í
náttúrunni
8 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 3. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR