Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 16
Helsti munurinn á að vinna hér á Akureyri og úti í Svíþjóð er að hér er allt persónu- legra. Mér þykir mjög vænt um það. Hér fylgi ég sjúklingnum eftir í gegnum allt ferlið. Vilborg Jónsdóttir Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Árið 2023 er fermingarár GoRed á Íslandi, fjórtánda árið runnið upp. Megináhersla okkar nú er kon- urnar sem sinna sjúklingum með hjarta- og æðasjúkdóma; sinna eftirliti og forvörnum og standa að greiningu og meðferð bæði innan og utan spítala. Lesa úr rann- sóknum og sinna andlegu hliðinni sem er órjúfanlegur hluti ferilsins hjá öllum þeim sem greinast með hjartasjúkdóm. Við fáum innsýn í daglegt líf fagaðila á hjartadeildum og á læknastofum utan spítala sem og á landsbyggðinni. Sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar, lífeinda- fræðingar og hjartasérfræðingar, að ógleymdu viðtali við sálfræðing sem sinnir handleiðslu og eftir- fylgni við hjartasjúklinga. Ferlið sem hefst þegar maður greinist með sjúkdóm getur verið nokkuð flókið og í reynd er ekki útilokað að þær aðstæður skapist að allir sem rætt er við í blaði árs- ins eigi snertiflöt við einn og sama sjúklinginn í gegnum hans feril í heilbrigðiskerfinu. Samvinna allra sem hér er rætt við er einstök enda hafa allar sama markmiðið. Með sjúklinginn í öndvegi vinna þær að bata og stuðningi við sjúklinginn sjálfan og hans nánustu aðstand- endur. Þetta eru konurnar sem standa hjarta okkar næst. Helga Margrét Skúladóttir formaður Rannveig Ásgeirsdóttir verkefnastjóri Konurnar sem standa hjarta okkar næst Helga Margrét Skúladóttir formaður og Rannveig Ásgeirsdóttir verkefnastjóri. Vilborg Jónsdóttir lýkur sér- námi í hjartalækningum frá Sahlgrenska háskólasjúkra- húsinu í Gautaborg nú í febrúar. Undanfarna mánuði hefur hún unnið á Sjúkra- húsinu á Akureyri og sér framtíðina fyrir sér þar. Vilborg segir að ástæða þess að hún valdi að sérhæfa sig í hjarta- lækningum sé að þær eru fjöl- breytt sérgrein. „Sjúklingahópurinn er breiður, þetta eru bæði ungir og gamlir sjúklingar en hjartasjúkdómar eru gríðarlega algengir,“ útskýrir Vilborg. „Í starfinu sinni ég bæði lang- vinnum og bráðum hjartasjúk- dómum. Mér finnst skipta máli að hafa þessa fjölbreytni í starfinu.“ Vilborg nefnir einnig að henni þyki áhugavert hve mikið af rann- sóknum hafi verið gerðar á mein- gerð og orsökum hjartasjúkdóma. „Rannsóknirnar gera það að verkum að mikið er um fram- farir í hjartalækningum. Hjarta- lækningar eru líka fjölbreyttar að því leyti að þær eru ekki bara tölvuvinna, starfið er líka verklegt. Það er margt gert með höndunum, við setjum inn gangráða og lesum af gangráðum, ómskoðum og skoðum myndir,“ segir hún. Síðustu ár hefur Vilborg unnið á Sahlgrenska háskólasjúkrahús- inu í Gautaborg þaðan sem hún lýkur sérnámi sínu nú í febrúar. Undanfarna mánuði hefur hún þó verið heima á Íslandi þar sem hún starfar við hjartalækningar á Sjúkrahúsinu á Akureyri. „Mér finnst líklegt að ég verði áfram hér á Akureyri eftir útskrift. Ég kom hingað norður til að prófa mig áfram og sjá hvort börnin yrðu glöð og það virðist allt ganga,“ segir hún en Vilborg kemur frá Siglufirði og hefur starfað á Sjúkrahúsinu á Akureyri áður. „Sérnámið sem ég er að klára núna úti í Svíþjóð tekur 7,5 ár. Ég tók part af því á Íslandi áður en ég fór út. Eftir fimm ár varð ég sér- fræðingur í lyflækningum en svo tekur tvö og hálft ár til viðbótar að verða sérfræðingur í hjarta- lækningum,“ útskýrir hún. Nánari samskipti Það er alltaf nóg að gera á hjarta- deild, hvort sem það er á Akureyri eða úti í Svíþjóð að sögn Vilborgar. Hún segir þó margt ólíkt við að vinna á stóru sjúkrahúsi eins og Sahlgrenska og litlu sjúkrahúsi eins og á Akureyri „Námið úti í Svíþjóð var vinna á hjartadeild þar sem ég vann vaktavinnu. Það var alltaf brjálað að gera og hérna heima er það þannig líka. Þegar maður velur þessa starfsgrein verður maður að sætta sig við það, en maður þrífst kannski pínulítið á því líka,“ segir hún og hlær. „Helsti munurinn á að vinna hér á Akureyri og úti í Svíþjóð er að hérna er allt persónulegra. Mér þykir mjög vænt um það. Hér fylgi ég sjúklingnum eftir í gegnum allt ferlið, en í Svíþjóð eru alltaf aðrir læknar sem taka við sjúklingnum þegar maður lýkur vaktinni og maður fylgir sjúklingnum því ekki alla leið. Það sem mér finnst gott við að fylgja sjúklingnum svona alveg eftir er að ég fæ betri heildarsýn yfir hans mál. Ég næ góðu sambandi við sjúklingana og fjölskyldur þeirra og samskiptin verða nánari,“ heldur hún áfram. „Á stærra sjúkrahúsi nær maður ekki þessum sjúklingakontakt. Hérna fær maður virkilega að sjá að maður er að hafa áhrif á lífsgæði sjúklinganna og vonandi eftir lengri tíma í greininni fer maður að sjá að maður hefur líka áhrif á lífshorfur þeirra.“ Fyrirbyggjandi ráð Vilborg segir að sem læknir á hjartadeild sé hún oft beðin um ráð frá fólki um hvað það geti sjálft gert til að fyrirbyggja hjartasjúk- dóma. Hún segir að ráð númer eitt, tvö og þrjú sé að reykja ekki. „Ég bið fólk líka að kynna sér fjölskyldusögu sína til að það átti sig á hvort það er í áhættu vegna hjartasjúkdóma. Svo er aðal- málið að hreyfa sig, að komast út í náttúru og birtu og fylgjast með blóðsykrinum. Fólk þarf líka að reyna að forðast að fá sykursýki og láta kanna hvort það sé mögulega með undirliggjandi sykursýki eða háþrýsting. Þessir sjúkdómar geta verið svo lúmskir og fólk veit því oft ekki af þeim hjá sér,“ segir hún. „Það eru líka margir sem spyrja mig út í mataræði. Það getur verið erfitt að gefa einfaldar ráðlegg- ingar um það, en ef það er eitt- hvað þá hef ég bent fólki á að auka trefjarnar eins og hægt er. Svo er gott að fólk lesi sér svolítið til um mataræði og finni hvað hentar því.“ n Hjartalækningar fjölbreytt sérgrein  Vilborg hefur starfað á sjúkrahúsinu á Akureyri undanfarna mánuði en hún er að ljúka sérnámi í Svíþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN 2 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGURHJARTAÐ ÞITT 2023

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.