Fréttablaðið - 03.02.2023, Qupperneq 9
Karl Th.
Birgisson
Í DAG
Tveir náungar.
Á báða er deilt fyrir ákvarðanir
og þó ekki síður tímasetningar.
Guðmundur Þórður
Á Íslandi eru nokkur þúsund sér-
fræðingar sem hafa meira vit á
handbolta en Guðmundur Þ. Guð-
mundsson landsliðsþjálfari.
Þetta sama fólk sótti silfur með
íslenzka landsliðinu á Ólympíu-
leikum í Kína 2008. Þau gerðu
líka Dani að Ólympíumeisturum í
Brasilíu 2016.
Að við nefnum ekki þau sem í
millitíðinni gerðu Rhein-Neckar
Löwen að evrópskum bikarmeist-
urum 2013.
Að ógleymdum þeim sem unnu
silfur fyrir Bahrein í Asíukeppn-
inni 2018.
Í ljósi þessara afreka er eðlilegt
að þetta fólk spyrji hvað þessi
Gummi vilji upp á dekk sem lands-
liðsþjálfari.
Af öllu því sem gerðist á HM
í handbolta standa tuttugu
sekúndur upp úr.
Gummi tók leikhlé rétt fyrir
Tveir ómögulegir gaurar
hálfleikslok á móti Brasilíu og fór
yfir málin.
Brassarnir voru að valta yfir
okkur.
Aldrei slíku vant var engin skrif-
blokk uppi við, ekkert um klipp-
ingar, Júgga eða Kaíró.
Heldur svona, eftir minni, en
sumt orðrétt:
„Það vantar allt fokking spirit í
þetta! Þetta er steindautt!“
Í leikhléinu virðist þessari ræðu
hafa verið fram haldið, því að
drengirnir komu til baka og unnu
leik sem virtist vera löngu tapaður.
Mér virðist samt af þessu ójafn-
vægi að Gummi ætti að vera golf-
kennari einhvers staðar í þægilegu
loftslagi. Og alls ekki landsliðs-
þjálfari.
Eftir leikinn fékk Guðmundur
spurningar um plan B og var
greinilega enn pirraður.
Að baki spurningunni lá þanki
um tímasetningar.
Sennilega sérstaklega um Donna
– Kristján Örn Kristjánsson – sem
var stórkostlegur í þessum leik, en
hafði lítið spilað fram að því.
Hefðirðu ekki átt að nota hann
meira og miklu fyrr? Sérstaklega
í ljósi þess að Logi – æ, afsakið –
Aron (hvernig á maður að þekkja
í sundur þessar ljóskur með gelið í
hárinu?) var ömurlegur.
Ha, Guðmundur?
Ha?
Hvað er eiginlega að þér?
Aðalsteinn
Ríkissáttasemjari freistaði þess
á dögunum að höggva á hnút í
vinnudeilu hóps launafólks og
eigenda fyrirtækja.
Í ljós kom – hugsanlega fyrir-
sjáanlega – að á landinu eru anzi
margir útlærðir sáttasemjarar. Og
jafnvel enn fleiri sérfræðingar í
lögum um stéttarfélög og vinnu-
deilur. Kemur heldur ekki endilega
á óvart.
Vinnudeilur eru vitaskuld
flóknari en handbolti – eða hvað?
– og þess vegna er eðlilegt að sér-
fræðingarnir séu færri.
Enda snýst samningafræði ekki
um líkamsburði, heldur haus og
hugarfar. Eins og raunar hand-
boltinn.
Samningar eru í grunninn eins
konar leikjafræði. Eða skák, ef við
viljum kunnuglegri líkingu.
Sérfræðingarnir hafa allir
skrifað bókina „Samningatækni“
og kennt kúrsa um hana í háskól-
um víða við góðan róm.
Þau voru líka sérlega skipað
sátta- og miðlunarfólk þegar hinir
svokölluðu lífskjarasamningar
voru undirritaðir fyrir fáeinum
árum.
Þessir sérfræðingar vita, að
samningsrétturinn er tekinn af
launafólki með því að bjóða því að
greiða atkvæði um tiltekna tillögu
– samhljóða samningi sem tug-
þúsundir annarra hafa samþykkt.
Það segir sig sjálft, að fólk er
svipt samningsrétti með því að
leyfa því sjálfu að kjósa.
Sérstaklega af því að reynslan
sýnir – að mati yfirvegaðasta fólks
– að launafólk nennir sjaldnast að
greiða atkvæði um kjör sín.
Það getur hafnað tillögunni,
eins og dæmi sanna, en sérfræð-
ingarnir segja það aukaatriði.
Allt er þetta augljóst sérfræð-
ingunum, sem skrifuðu hand-
bókina og greinargerðina með
lagafrumvarpinu.
Ólíkt Aðalsteini hafa sér-
fræðingarnir hins vegar ekki þurft
að vinna fyrir húsaleigunni með
skúringum sem ungt foreldri og
hafa því umtalsvert meiri skilning
en hann á aðstæðum skúringa-
kéllínga.
Því er ennú óskiljanlegra hvers
vegna ríkissáttasemjari vill svipta
launafólk samnings- og verkfalls-
rétti með inngripi sínu og of beldi.
Ég hef saknað viðtals sem væri
sirka svona:
– Alli. Hefði ekki verið rétt
að bíða og leyfa Sólveigu Önnu
að koma inn á í seinni hálf leik
með eitt Júgga-verkfall? Og setja
þennan Benjamín þarna með
hárið í hægra hornið með klipp-
ingu og Kaíró-verkbann?
Hvað er eiginlega að þér?
Ég veit betur
Í þágu gagnsæis er rétt að taka
fram að Guðmund hef ég aldrei
hitt né talað við. Við Aðalsteinn
fengum okkur hins vegar kaffi-
bolla upp úr hádegi á föstudegi
snemma vors árið 2005. Á Sólon í
Bankastræti. Síðan hef ég hvorki
heyrt hann né séð.
Ég veit hins vegar betur en þeir
báðir hvernig á að koma Loga
í gang – eða var það Aron? – og
leysa harðvítugar vinnudeilur.
En eins og venjulega hlustar
enginn á sérfræðingana. n
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
ÚTSALA
á sýningarvörum í verslun
Borðstofuborð, borðstofustólar, eldhússtólar,
sófaborð, sófar o.fl. o.fl.10-60%
afsláttur
Ciro 3 litir
Áður 39.900
NÚ 29.900
Alison
snúnings
Áður 33.900
NÚ 27.000Sierra
nokkrir litir
Áður 25.700
NÚ 19.200
Kato svart
Áður 29.900
NÚ 19.400
Adele
Áður 39.900
NÚ 23.900
Obling 3ja sæta
Áður 129.000 NÚ 103.000
Brookliyn borðstofuborð
220x98, stækkun 2x50 cm, reykt eik – hvítuð eik
Áður 199.000 NÚ 149.000
Notthingham sófaborð
Áður 116.000 NÚ 58.000
Hill hvíldarstóll með tauáklæði
Áður 176.000 NÚ 123.000
Staturn 3ja sæta
Áður 159.000 NÚ 119.000
25%
25%
25%
25%
40%
50%
35%
30%
20%
20%
FRÉTTABLAÐIÐ SKOÐUN 93. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR