Fréttablaðið - 03.02.2023, Blaðsíða 10
Svo setjast þeir við
stýrið á bíl og eru
margfalt betri öku-
menn en nokkurn
tímann miklu eldra
fólk.
Valdimar Örn Sveinsson, faðir
Daníels Jökuls og Adams Mána
Í einu orði sagt eru
þetta bara forréttindi.
Við eyðum alveg
gríðarlega miklum
tíma saman í þetta
sameiginlega áhuga-
mál.
Feðgarnir saman á góðri stundu en allir hafa þeir brennandi áhuga á mótor-
sporti MYNDIR/AÐSENDAR
Bræðurnir Daníel Jökull og
Adam Máni Valdimarssynir
mynda langyngstu áhöfn
sem hefur nokkurn tímann
mætt til leiks í rallý-spretti á
Íslandi og munu þeir reyna
fyrir sér á Reykjavíkurleik-
unum um komandi helgi.
MÓTORSPORT Á laugardaginn hefst
keppni í rallý-spretti á Reykjavíkur-
leikunum 2023 á kvartmílubraut-
inni í Hafnarfirði. Meðal keppenda
má finna bræðurna Daníel Jökul
sem er 16 ára gamall og Adam
Mána sem er 14 ára. Þeir mynda
langyngsta rallý-sprett sögunnar
á Íslandi og faðir þeirra, mótor-
sportökumaðurinn Valdimar Örn
Sveinsson, segir það hafa legið lengi
í loftinu að synir hans myndu feta
sömu leið og hann.
„Þetta er búið að vekja miklu
athygli síðustu tvö ár, frá því að
eldri strákurinn byrjaði að keppa.
Svo er yngri bróðir hans farinn að
taka sín fyrstu skref í þessu og þá
náttúrulega vekur þetta enn meiri
athygli,“ segir Valdimar við Frétta-
blaðið, spurður um áhuga sona hans
á mótorsporti.
„Þeir eru svona að taka sín fyrstu
skref í þessu, Adam Máni verður
yngsti aðstoðarökumaðurinn í sögu
mótorsports á Íslandi sem og yngsti
ökumaðurinn þar sem hann mun
aka þúsund kúbika bíl um helgina.
Hann er því að fara stela því meti af
eldri bróður sínum sem hefur átt
metið í tvö ár núna. Daníel var ekki
alveg nógu sáttur við það en svona
er þetta bara.“
Komnir á fullt tveggja ára gamlir
Valdimar er sjálfur með yfir tuttugu
ára feril í mótorsporti en hann byrj-
aði þó ekki eins snemma og synir
hans að þreifa fyrir sér í íþróttinni.
„Ég hef nánast keppt í öllum
greinum mótorsports, þó mest í tor-
færu og rallý en byrja þó ekki fyrr en
ég var tuttugu og þriggja ára gamall
í þessu brölti. Strákarnir mínir hafa
hins vegar verið að síðan þeir voru
tveggja ára gamlir. Þá fara þeir að
reyna fyrst fyrir sér á fjórhjólum og
mótorkrosshjólum.
Þá hafa þeir, eftir því sem þeir
urðu eldri, verið að leika sér á
þessum tækjum auk vélsleða og go-
kartbíla og byrja svo að taka þátt í
keppnum 14 ára gamlir.“
Eldri bróðirinn, hinn 16 ára gamli
Daníel Jökull, byrjaði um leið og
hann náði 14 ára aldri að keppa í
rallý, drifti og rallýkrossi. Það varð
fljótt ljóst að hann ætti fullt erindi
í mótorsport en nú þegar er hann
orðinn tvöfaldur Íslands- og bikar-
meistari í sínum flokkum. Valdimar
segir mótorsportbakteríuna hafa
gripið þá Daníel og Adam fljótt.
„Það var eiginlega ekki annað
hægt. Þeir voru með mér á öllum
keppnum alveg frá því að þeir voru
pínulitlir, þeir sýktust bara af þessu
strax og hafa alist upp við þetta alla
tíð. Þeir skrúfa sjálfir, mála bílana
sjálfir og gera sjálfir við. Sjálfur rek
ég bílaverkstæði sem tekur að sér að
mála bíla, rétta og gera við bíla og
þeir hafa því í gegnum árin verið að
sniglast hérna í kringum mig á verk-
stæðinu.“
Margfalt betri ökumenn
Óhætt er að segja að Daníel Jökull
og Adam Máni séu með ansi frá-
brugðið áhugamál frá jafnöldrum
sínum enda ekki algeng sjón að sjá
14 og 16 ára gutta komna á fullt í
mótorsporti.
Er um að ræða fullkomið áhuga-
mál fyrir krakka á þessum aldri?
„Þetta er náttúrulega alveg frá-
bært áhugamál að eiga. Ef við tökum
þetta bara fyrir í tilfelli þeirra þá
eru þeir snemma byrjaðir á mótor-
krosshjólum og fá þá strax tilfinn-
ingu fyrir því að finna jafnvægi á
hjólinu og læra að sama skapi inn
á hreyfingarnar sem þessu fylgja.
Svo setjast þeir við stýrið á bíl og eru
margfalt betri ökumenn en nokk-
urn tímann miklu eldra fólk. Þegar
þeir missa grip við akstur og fara í
smá stjórnleysi, þá ná þeir gripi á
nýjan leik sem og stjórn þrátt fyrir
að bíllinn fari þversum yfir veginn.“
Margir reka kannski upp stór
augu við að lesa að 16 ára gamall
strákur sé farinn að keppa í mótor-
sporti og sé fullfær um að aka bíl í
keppnum, og verða kannski enn
meira hissa þegar þeir átta sig á því
að hann hafi verið að þessu í tvö ár
frá fjórtán ára aldri. Regluverkið
í kringum mótorsport hér á landi
gerir það hins vegar kleift að krakk-
ar sem hafa áhuga á mótorsporti og
hafa brennandi áhuga á íþróttinni
geti spreytt sig snemma.
„Þegar að þú kemst á fimmtánda
aldursár máttu aka um á lokaðri
braut á þúsund kúbika bílum. Það
eru strangar reglur um þetta og
kröfurnar um öryggisbúnaðinn í
bílnum mjög strangar og það skilj-
anlega. En þetta er algjörlega málið
fyrir þessa krakka.
Bíða enn eftir bílprófi
Daníel var á sínum tíma alveg afger-
andi góður í körfubolta, var valinn
í afreksbúðir og f leira og setur því
alltaf markið hátt en mótorsportið
tók síðan hug hans allan og ég leyfði
honum bara að velja sína leið.“
Þrátt fyrir að Daníel Jökull og
Adam Máni hafi nú þegar fengið
smjörþefinn af því að aka um á
bíl segir Valdimar að eftirvænting
þeirra fyrir því að fá bílpróf hverfi
ekki.
„Sú eftirvænting hverfur ekkert
þrátt fyrir þessa reynslu þeirra.
Daníel Jökull er til að mynda nú
þegar búinn að kaupa sér tvo bíla, 38
tommu jeppa og svo á hann Turbo
Subaru. Þessir bílar bíða bara eftir
honum og á meðan nýtir hann tæki-
færið og stjanar við þá nánast alla
daga. Þörfin fyrir bílprófið hefur
alveg minnkað hjá þeim þegar að
þeir hafa nú þegar ekið svona mikið,
sérstaklega hjá þessum eldri sem
hefur ábyggilega ekið í alls tuttugu
keppnum og verið aðstoðaröku-
maður í rallý, en hún hverfur samt
aldrei.“
Verða frábært ökumannsteymi
Keppni helgarinnar á Reykjavíkur-
leikunum er fyrsta keppnin sem
yngri bróðirinn, hinn 14 ára gamli
Adam Máni, hefur aldur til þess að
taka þátt í og hann ætlar að leggja
bróður sínum lið og vera aðstoðar-
ökumaður hans. Valdimar hefur
fulla trú á bræðrunum sem teymi.
„Þeir verða geggjaðir saman því
áhuginn hjá þeim báðum er svo
gríðarlega mikill. Þrátt fyrir að þeir
séu ungir að árum er þekkingin sem
þeir búa yfir á þessu sviði orðin svo
gríðarlega mikil. Þeir eru með allt
á hreinu, hvernig bíllinn á að vera
uppsettur, eru góðir í að lesa nótur
og allt sem þessu fylgir.“
Forréttindi fyrir föðurinn
En hvernig tilfinning er það fyrir
þig sem föður að eiga sameigin-
legt áhugamál á borð við þetta með
sonum þínum?
„Í einu orði sagt eru þetta bara
forréttindi. Við eyðum alveg
gríðarlega miklum tíma saman
í þetta sameiginlega áhugamál
okkar, örugglega mun meiri tíma
en margur pabbinn gerir með
börnum sínum. Þeir hanga með
mér á verkstæðinu mínu, í öllum
skólafríum eru þeir þar að græja og
gera og um helgar höfum við verið
að f lakka saman og keppa. Svo er
það þannig að eftir því sem árin
líða er þessi samvera okkar ekk-
ert að fara minnka því þeir munu
alltaf vera smá háðir pabba sínum
í þessu brölti. Gallinn við þetta er
hins vegar sá að eftir því sem þeir
fara meir inn í þetta mun ég á móti
þurfa að keppa aðeins minna en það
er allt í lagi mín vegna.“ n
Ökumenn án bílprófs ná frábærum árangri
Mótorsport-
bakterían greip
bræðurna
Daníel Jökul
og Adam Mána
snemma og
hafa þeir nú
þegar sýnt
mikla færni í
íþróttinni.
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
10 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 3. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR