Fréttablaðið - 03.02.2023, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Guðrún Jóhanna hefur ávallt verið talsmaður náttúrulegra viðgerðarmeðferða á húð og í andliti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Stjörnurnar eru duglegar að mæta í
Intraceuticals súrefnismeðferð fyrir
rauða dregilinn eða hvíta tjaldið.
MYNDIR/AÐSENDAR
Guðrún Bergmann kom í Intraceuticals súrefnismeðferð og var hissa á hvað
árangurinn af henni var góður.
Hér má sjá húðina á Steini Karlssyni fyrir háræðameð-
ferð. Hann segir háræðaskemmdir hafa valdið sér
ertingu og óþægindum.
Hér má sjá húðina á Steini eftir háræðaslitsmeðferð.
Guðrún kallar hann reglulega mesta og stærsta lista-
verkið sem hún hefur framkvæmt til þessa.
in felur hvorki í sér skurðaðgerð
né að húð sé rofin með nálum.
Þetta er mjög áhrifarík aðferð til
að gera við húð, bæta náttúrulegar
rakabirgðir hennar og minnka
línur og hrukkur í andliti án þess
að svipbrigði í andliti breytist.
Virku efnin eru frostþurrkuð á
mjög vísindalegan og háþróaðan
hátt og innsiglaðar í vönduðum
ampúlum. Meðferðarkúrinn
kemur svo af stað ákveðnu
endurnýjunar- og yngingarferli í
húðinni, sem viðhaldið er daglega
með húðvörum frá Intraceuticals
milli meðferða,“ segir Guðrún
Jóhanna.
Árangurinn kom Guðrúnu
Bergmann á óvart
Árangurinn af Intraceuticals
súrefnismeðferð kom Guðrúnu
Bergmann, rithöfundi og heilsu-
og lífsstílsráðgjafa verulega á
óvart. „Ég átti ekki von á svona
miklum breytingum eftir einungis
tíu skipti, enda í fyrsta sinn sem
ég fer í svona framhaldsmeðferð
með húðina. Ég mæli eindregið
með henni fyrir þá sem vilja
náttúrulega meðferð til að styrkja
húðina og draga úr djúpu línun-
um,“ segir Guðrún Bergmann.
Hægt er að lesa um upplifun Guð-
rúnar á gudrunbergmann.is.
Heilbrigð sjálfsmynd
Með Intraceutical súrefnismeð-
ferð er innri fegurð og ljómi húðar
dreginn fram á náttúrulegan og
heilbrigðan hátt. „Þau sérkenni
sem gera okkur svo einstök á
sinn fallega hátt eru undirstrikuð
en ekki afmáð,“ segir Guðrún
Jóhanna.
Hollywood-stjörnurnar
nota súrefnismeðferð
„Intraceuticals súrefnismeð-
ferð er vinsæl hjá stjörnunum í
Hollywood, enda fara þær flestar
í svona meðferð til að fá lyftingu
í húðina, áður en mætt er á rauða
dregilinn. Margir aðalleikarar í
nýjustu bíómyndunum fara líka
reglulega í Intraceuticals súr-
efnismeðferðir meðan á tökum
stendur. Má þar nefna leikara í
stórmyndum eins og Elvis (2022)
og í framhaldsþáttunum The
Crown. Einnig er vinsælt að fara
í súrefnismeðferð, til dæmis fyrir
brúðkaup eða myndatöku brúð-
hjóna. Margar af bestu spa-með-
ferðarstöðum heims bjóða einnig
upp á þessa meðferð.“
100 prósent hreinar og náttúru-
legar húðvörur frá Intraceuticals
Intraceuticals húðvörurnar eru
100% hreinar og náttúrulegar, án
allra parabena og rotvarnarefna.
„Í öflugum viðgerðarmeðferðum
skiptir öllu máli að vera með 100%
hreinar og náttúrulegar húð-
vörur, án ofnæmisvaldandi efna.“
Guðrún segist sjálf vera með mjög
viðkvæma húð vegna rósroða og
skrifhúðar og hefur því leitað að
hreinustu húðvörunum á hverjum
tíma, þar sem hún þolir ekki nein
aukaefni. „Intraceuticals húð-
vörurnar voru því algjör himna-
sending fyrir mig. Þær henta
öllum húðgerðum, sér í lagi þeim
sem eru með viðkvæmni í húð,
rósroða, skrifhúð, exem og fleira.
Sérhæfð lína er fyrir blandaða út í
feita húðgerð og húð með bólur,“
segir hún.
Húðvörurnar innihalda hágæða
hýalúronsýru með hárri, miðl-
ungs- og lágri sameindaþyngd.
„Hýalúronsýruhvelin fylla í línur
og mynda einnig verndarhjúp um
stofnfrumurnar. Þær innihalda
100 prósent hrein náttúruleg
stein- og snefilefni ásamt víta-
mínum og öðrum virkum efnum
sem stinna og þétta húðina og
efla náttúrulegar varnir hennar.
Þær vinna gegn óbundnum stak-
eindum sem eiga stóran þátt í
öldrunarferli húðar og hindra að
þær nái að rjúfa efnasamband heil-
brigðra húðfrumna, kollagens og
elastíns.
Lípó amínósýrur stuðla að sam-
runa kollagens í húð ásamt því
að mynda örfínan hjúp um virku
efnin. Með háþróaðri örtækni, sem
er flutningsleið virku efnanna inn
í húðina, er húðinni skömmtuð
næring jafnt og þétt yfir allan
daginn. Það gerist þegar sýrustig
húðar breytist og hún þarfnast
meiri næringar og raka. Þá leysa
sýrustig og náttúrulegu fituefni
húðar upp hjúpinn sem geymir
forðann.“
Glæsilegir tilboðspakkar
og ókeypis skoðunartími
Snyrtistofan Hafblik býður upp
á ókeypis skoðunartíma. „Starfs-
fólk okkar metur þá hvað hentar
hverjum og einum miðað við húð-
gerð, ástand húðar og óskir við-
skiptavinar. Stórkostlegir tilboðs-
pakkar eru svo í boði út febrúar
með 100.000 til 180.000 króna
afslætti,“ segir Guðrún Jóhanna.
Lausn við háræðaskemmdum
Snyrtistofan Hafblik býður einnig
upp á frábæra háræðameðferð
þar sem notast er við hljóðbylgjur
til að þurrka upp blóðprótínið í
skemmdum háræðum í andliti.
Guðrún Jóhanna segir þetta
vera hárnákvæma og árangurs-
ríka aðferð því hverri æð er fylgt
eftir punkt fyrir punkt. „Engin
áhrif verða því á annað en bara
skemmdu háræðarnar í húðvefn-
um. Yfirleitt tekur það þrjú skipti
að loka skemmdum háræðum
endanlega og eru 4–6 vikur látnar
líða á milli meðferða. Ef það þarf
fleiri en þrjár meðferðir greiða
viðskiptavinir ekkert eftir þriðju
meðferð. Ekki mega líða meira en
6-8 vikur milli meðferða á sama
meðferðarsvæði.“
Háræðaskemmdir eftir rósroða
Háræðaskemmdir í andliti valda
fólki iðulega mikilli vanlíðan og
segist Guðrún þekkja það vel af
eigin raun, því hún þjáðist af mjög
svæsnum rósroða frá því hún var
rétt um þrítugt. „Það hafði í för
með sér að háræðar skemmdust og
skildu eftir sig mikil lýti og óþæg-
indi. Við sem vorum með hár-
æða skemmdir höfum flest farið í
endalausar laser-meðferðir með
takmörkuðum árangri. Hljóðbylgj-
urnar byggjast á hárnákvæmri
tækni og því er árangurinn ótví-
ræður. Ég fór sjálf í gegnum þetta
viðgerðarferli þegar ég fór í sérnám
til Belgíu til að læra þessa tækni og
batinn hefur haldist fullkominn
í meira en sjö ár. Okkur langar
að bjóða viðskiptavinum upp á
tilboð á háræðaslitsmeðferðum út
febrúar, en hægt er að kynna sér
verð og aðrar upplýsingar á vefsíðu
okkar, snyrt.is.“
Mælir hiklaust með
háræðaslitsmeðferð
„Meðferðin tókst frábærlega og
árangurinn er sjáanlegur, á því er
enginn vafi,” segir Steinn Karlsson,
sem er einn af fjölmörgum sem
hafa fengið lausn á sínum vanda á
Snyrtistofunni Hafbliki.
Upp úr tvítugu fóru að myndast
háræðaskemmdir í andliti Steins
sem jukust með árunum. Áður en
hann sá auglýsingu um meðferðina
hjá Snyrtistofunni Hafbliki hafði
hann íhugað lasermeðferð. „Mér
fannst slík meðferð vera fullmikið
vesen og því varð ekkert úr henni.
Ég ákvað að kíkja til Guðrúnar
hjá Hafbliki eftir hvatningu frá
eiginkonunni. Eftir hverja meðferð
var ég smá rauður og aumur en ég
notaði krem samkvæmt ráðlegg-
ingum og var því yfirleitt nokkuð
fljótur að jafna mig.“
Steinn segist því hiklaust geta
mælt með meðferðinni. „Þegar
maður hefur mikið af háræða-
skemmdum eins og ég var með
valda þær bæði ertingu og
óþægindum. Meðferðin mín tókst
virkilega vel, enda kallar Guðrún
mig reglulega mesta og stærsta
listaverkið sem hún hefur gert
fram að þessu,“ segir Steinn. n
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðu Hafbliks, snyrt.is. Snyrti-
stofan Hafblik er staðsett að
Hlíðarsmára 9, 201 Kópavogi.
Tímabókanir eru í síma 893-0098.
Margir aðalleikarar
í nýjustu bíómynd-
unum fara líka reglulega
í Intraceuticals súrefnis-
meðferðir meðan á
tökum stendur. Má þar
nefna leikara í stór-
myndum eins og Elvis
(2022) og í framhalds-
þáttunum The Crown.
Guðrún Jóhanna
2 kynningarblað A L LT 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGUR