Fréttablaðið - 03.02.2023, Page 18
Liðsheild og samvinna allra
stétta skiptir miklu máli á
hjartadeild Landspítalans.
Þar starfa um 140 manns við
að stuðla að bættri heilsu og
líðan sjúklinga og aðstand-
enda þeirra.
Á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut í Reykjavík starfa um
140 manns sem allir sinna hjúkrun
hjartasjúklinga. Deildin er eina
sérhæfða hjartadeildin hér á
landi og um leið stærsta legudeild
spítalans, með 34 pláss sem alltaf
eru fullnýtt.
Meðal fjölmargra reyndra starfs-
manna hjartadeildarinnar eru
þær Bylgja Kærnested hjúkrunar-
deildarstjóri, Auður Ketilsdóttir,
sem er sérfræðingur í hjúkrun
hjartasjúklinga, Guðríður Kristín
Þórðardóttir, einnig sérfræðingur í
hjúkrun hjartasjúklinga, og Svan-
dís Bára Karlsdóttir sem er sjúkra-
liði. Saman búa þær yfir áratuga
starfsreynslu af umönnun hjarta-
sjúklinga af legudeildinni. Svandís
átti einmitt 40 ára starfsafmæli á
deildinni fyrir nokkrum dögum en
hinar þrjá hafa allar starfað þar í
rúmlega 20 ár.
„Á okkar langa og farsæla
starfsferli hefur starfið okkar
breyst töluvert, bæði þjónustan,
sjúklingahópurinn og ekki síst
starfsumhverfið,“ segir Bylgja.
„Sjúklingahópurinn hefur elst
og sjúklingum með langvinna
sjúkdóma hefur fjölgað þar sem
læknisfræðinni hefur fleygt fram í
greiningu og meðferð og fleiri lifa
af alvarlega sjúkdóma og kvilla.“
Samvinna skiptir miklu máli
Guðríður segir deildina vera afar
annasama enda sé hjúkrun sjúkl-
inga oft flókin og krefjandi en um
leið afar fjölbreytt. „Þá skiptir liðs-
heildin og samvinna allra stétta
miklu máli, sem er svo sannarlega
til fyrirmyndar á okkar vinnustað.
Traust og virðing er okkur mikil-
væg og við reynum eftir fremsta
megni að skapa það, bæði meðal
samstarfsfólks og sjúklinga og
aðstandenda þeirra.“
„Við finnum það á hverjum degi
að störf okkar skipta máli,“ segir
Svandís . „Eðli starfsins okkar er
þannig að það er oft ansi krefjandi,
ekki síður andlega en líkamlega.
Við erum að sinna sjúklingum
okkar og aðstandendum þeirra á
mjög erfiðum tímum í lífi þeirra,
jafnvel fram yfir andlát,“ bætir
Guðríður við.
En þó starfið taki oft á eru þær
sammála um að það séu mikil for-
réttindi að fá tækifæri til að gera
erfiðar aðstæður eins bærilegar
og mögulegt er. „Það gerum við
meðal annars með því að bregðast
við bráðu ástandi hjá sjúklingi
og veita meðferðir sem eru lífs-
bjargandi. Við linum þjáningar
eða leiðbeinum um leiðir til að
lifa með langvinna sjúkdóma og
eigum samskipti við sjúklingana
og aðstandendur,“ segir Auður.
Vinna náið saman
Sjúklingar á hjartadeildinni eru
á öllum aldri að þeirra sögn, eða
frá 18 ára og upp úr. „Meðalaldur
sjúklinganna er 70 ár og konur eru
töluvert færri en karlar, eða aðeins
36 prósent af sjúklingum deildar-
innar,“ segir Bylgja sem hefur stýrt
hjartadeildinni í 13 ár.
Sjúklingarnir sem leggjast inn
koma ýmist frá Bráðamóttökunni,
Hjartagáttinni, spítölum úti á
landi eða beint frá göngudeildum,
segja þær Auður og Guðríður.
Þær eru sérfræðingar í hjúkrun
hjartasjúklinga og koma bæði að
hjúkrun á deildinni auk þess að
vinna að margvíslegum verkefnum
tengdum þjónustu við hjarta-
sjúklinga, svo sem fræðslu, kennslu
og rannsóknum. „Hjartakvillarnir
og sjúkdómarnir eru ýmiss konar,
til dæmis kransæðasjúkdómur,
hjartabilun, hjartsláttartrufl-
anir, sjúkdómar í hjartalokum,
sýkingar og margt fleira,“ segir
Auður. „Sjúklingar sem gangast
undir opnar skurðaðgerðir fara á
Hjarta- og lungnaskurðdeild sem
er á 2. hæð spítalans. Samvinnan
við aðrar einingar innan hjarta-
þjónustunnar er náin, eins og
Hjartagátt, hjartaþræðingastofu,
hjartarannsókn og göngudeildir
hjartasjúklinga,“ bætir Guðríður
við.
Í starfi sínu sem sjúkraliði sinnir
Svandís fyrst og fremst umönnun
sjúklinga og þjálfun sjúkraliða-
nema á deildinni. „Þó daglegu
störfin okkar séu að mörgu leyti
ólík vinnum við náið saman og að
sama markmiði, sem er að stuðla
að bættri heilsu og/eða líðan
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
með áherslu á að virða þarfir fólks
og bæta líðan.“
Enginn dagur eins
Störf starfsfólks á hjartadeildinni
eru afar fjölbreytt og enginn
dagur eins. „Það er margt í starfi
okkar sem er þeim sem ekki starfa
í heilbrigðisgeiranum hulið,“
segir Bylgja. „Hjúkrun er mjög
fjölbreytt og erfitt að koma því
í orð hvað felst í starfinu. And-
legur stuðningur, áfallahjálp,
fræðsla, eftirlit með einkennum
og lífsmörkum sem hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar sinna eru
fremur ósýnileg eða dulin störf,
að minnsta kosti ef maður ber það
saman við til dæmis sáraskiptingar
eða lyfjagjafir,“ bæta þær Auður og
Guðríður við.
Alltaf þarf að hafa í huga að
virða þarfir fólks, sýna hlýju,
alúð og umhyggju, bætir Svandís
við. „Við aðstoðum sjúklinga við
athafnir daglegs lífs, beitum mark-
vissri hlustun og nærveru. Við
höfum það markmið að skapa gott
og gagnkvæmt meðferðarsamband
sem byggir á trausti og virðingu.“
Huga vel að sál og líkama
Þær eru sammála um að nauðsyn-
legt sé að huga vel að líkama og
sál utan vinnunnar. „Maður býr
sér til gæðastundir,“ segir Svandís.
„Hvort sem það er á formi sam-
veru með fjölskyldunni, að prjóna,
fara út að ganga, rækta garðinn og
stunda ýmiss konar félagslíf.“
Gæðastundir með fjölskyldunni
eru Guðríði nauðsynlegar. „Kósí-
kvöld yfir sjónvarpinu er vinsælt
eða að púsla saman. Síðan reyni ég
að stunda einhverja útihreyfingu
á hverjum degi, þó ekki sé nema
að hjóla í vinnuna. Sjósund virkar
fáránlega vel til að vinda ofan af
mér eftir erfiða daga eða vikur.“
Ýmiss konar hreyfing og útivist
hjálpar Auði við að hlaða batteríin.
„Svo má ekki gleyma gæðastund-
um með fjölskyldu og vinum sem
eru nauðsynlegar.“
Bylgja hefur einnig gaman af allri
útivist og að ferðast um landið. „Ég
elska að hjóla og fara á gönguskíði.
Einnig stunda ég hlaup á morgnana
með vinkonum sem er mjög nær-
andi og skemmtilegt.“ n
Finna á hverjum degi að störf þeirra skipta máli
Frá vinstri eru Auður Ketilsdóttir, Bylgja Kærnested, Guðríður Kristín Þórðardóttir og Svandís Bára Karlsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hjartadeild Landspítalans er staðsett við Hringbraut í Reykjavík. Deildin er
eina sérhæfða hjartadeildin hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hjúkrun er mjög
fjölbreytt og erfitt
að koma því í orð hvað
felst í starfinu. Andlegur
stuðningur, áfallahjálp,
fræðsla, eftirlit með
einkennum og lífsmörk-
um sem hjúkrunarfræð-
ingar og sjúkraliðar
sinna eru fremur ósýni-
leg eða dulin störf.
Bylgja Kærnested
4 3. febrúar 2023 FÖSTUDAGURHJARTAÐ ÞITT 2023