Fréttablaðið - 03.02.2023, Síða 35
Stuð og
stemning á
Safnanótt
Við erum jörðin – við erum vatnið er margmiðlunar-
sýning eftir Heimi Frey Hlöðversson í Sjóminjasafn-
inu í Reykjavík. MYND/AÐSEND
Verkið Of hár blóðþrýstingur
eftir Sigurjón Ólafsson verður til
sýnis á sýningunni. MYND/AÐSEND
Sýningin Andardráttur á glugga var valin ein af áhuga-
verðustu sýningum ársins 2023 á Norðurlöndum af
tímaritinu Vogue Scandinavia. MYND/AÐSEND
Hljómsveitin
Kælan mikla
vann Ljóða-
slamm Borgar-
bókasafns árið
2013.
Verkið Hjartað eftir Jón Gunnar Árnason frá 1968 er til sýnis á sýningunni Viðnámi í Safnahús-
inu sem opnuð verður í kvöld á Safnanótt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Menningarþyrstir borgar-
búar ættu allir að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi á Safna-
nótt á Vetrarhátíð.
Safnanótt fer fram í kvöld, föstu-
daginn 3. febrúar, á vegum Vetrar-
hátíðar. Þá munu fjölmörg söfn á
höfuðborgarsvæðinu opna dyr sínar
og bjóða upp á skemmtilega og fjöl-
breytta dagskrá á milli klukkan
18.00 og 23.00. Íbúar og gestir á
öllum aldri geta notið dagskrár
Safnanætur sér að kostnaðarlausu
og fengið nýja sýn á helstu söfn
höfuðborgarsvæðisins. Fréttablaðið
fer yfir það sem ber helst á góma á
Safnanótt 2023. n
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
Listasafn Íslands og Safnahúsið
Tvær sýningar verða opnaðar í Listasafni
Íslands og Safnahúsinu á Safnanótt.
Sýningin Gallerí Gangur í 40 ár er yfirlits-
sýning um listamannarekna sýningar-
rýmið Gallerí Gang sem stofnað var af
myndlistarmanninum Helga Þorgils Frið-
jónssyni árið 1979 og hefur alla tíð verið
rekið á heimili hans.
Árið 2020 var haldið upp á 40 ára af-
mæli Gangsins með sýningu á verkum
þeirra erlendu listamanna sem hafa
átt verk á sýningum Gangsins í gegnum
tíðina. Að afmælisárinu loknu gáfu hjónin
Helgi Þorgils Friðjónsson og Rakel Hall-
dórsdóttir verkin sem voru á sýningunni
til Listasafns Íslands, samtals 117 lista-
verk eftir 84 listamenn frá 22 löndum
sem Listasafn Íslands efnir nú til sýningar
á. Sýningin verður opnuð í Listasafni Ís-
lands á Fríkirkjuvegi klukkan 19.00.
Sýningin Viðnám, samspil myndlistar
og vísinda, er þverfagleg sýning fyrir
börn á öllum aldri, sem brúar bilið milli
myndlistar og vísinda. Listaverkin á
sýningunni tengjast öll orðræðunni um
sjálfbærni og þeim siðferðilegu málefn-
um er tengjast þeirri vinnu sem stuðlar
að þróun í átt að frekari sjálfbærni. Verkin
gefa fólki tækifæri til að velta vöngum
yfir tilverunni, náttúrunni og öðru fólki.
Sýningin verður opnuð í Safnahúsinu við
Hverfisgötu klukkan 17.00.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Tvær nýjar sýningar verða
opnaðar í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnestanga á
Safnanótt klukkan 18.00.
Á efri hæð safnsins verða til
sýnis andlitsmyndir Sigurjóns
af fjölskyldu Einars Sigurðs-
sonar, útgerðarmanns í Vest-
mannaeyjum, og Svövu Ágústs-
dóttur undir heitinu Barnalán.
Á árunum eftir 1963 fékk Einar
Sigurjón til að gera nær tvo tugi
andlitsmynda, portretta, lág-
mynda eða heilmynda af sér
og fjölskyldu sinni.
Í aðalsal safnsins eru sýnd
lykilverk Sigurjóns frá 1938
til 1982 undir yfirskriftinni Úr
ýmsum áttum. Heiti sýn-
ingarinnar skírskotar bæði til
fjölbreytni verkanna og eignar-
halds þeirra. Þar má sjá verk úr
ólíkum efnum, svo sem gifsi,
bronsi, marmara, brenndum
leir og tré. Hluti verkanna er úr
stofngjöf Birgittu Spur til Lista-
safns Sigurjóns Ólafssonar,
sjálfseignarstofnunar sem fyrir
áratug var afhent Listasafni
Íslands, en önnur eru úr einka-
safni erfingja Sigurjóns.
Borgarbókasafn
Fjölbreytt dagskrá verður hjá Borgarbókasafninu í
Grófinni á Safnanótt.
Ljóðaslamm Borgarbókasafns fer fram klukkan
20.00 þar sem hæfileikafólk á sviði ljóð- og sviðs-
listar flytja frumsamin verk. Ljóðaslamm hefur
verið reglulegur og vinsæll viðburður á Borgar-
bókasafninu í gegnum tíðina. Þekkt skáld, tónlist-
arfólk og sviðslistafólk hafa stigið sín fyrstu skref
í Slamminu, enda er ljóðaslamm, eða Poetry Slam,
listform sem útfæra má á fjölbreyttan máta.
Ljóðaslamm felst í flutningi frumsamins ljóðs,
þar sem áherslan er ekki síður á flutninginn en á
ljóðið sjálft. Þannig telst hefðbundinn ljóðaupp-
lestur ekki til ljóðaslamms, heldur er áherslan á
ljóðaflutning sem sviðslist.
Nemendur framhaldsbrautar Klassíska listdans-
skólans sýna brot úr sviðsverkinu Flæði klukkan
21.00 sem þau hafa endurgert og aðlagað rými
safnsins. Kvöldið endar svo á því að DJ Bjarni K.
leikur fyrir dansi klukkan 22.00.
Listasafn Reykjavíkur
Sýningin Andardráttur á glugga með verkum eftir
Siggu Björgu og Ásmund Sveinsson verður opnuð í
Ásmundarsafni á Safnanótt klukkan 17.00.
Listasafn Reykjavíkur heldur áfram að kynna
ný verk starfandi listamanna í Ásmundarsafni,
þar sem þau kallast á við myndheim Ásmundar
Sveinssonar. Í þetta sinn er áherslan á þjóðsögur,
ævintýri og ímyndunarafl.
Í nýlegri yfirlitsgrein sagði tísku- og lífsstíls-
tímaritið Vogue Scandinavia sýninguna Andar-
drátt á glugga vera eina áhugaverðustu mynd-
listarsýningu á Norðurlöndum árið 2023.
Sigga Björg er kunn af hugmyndaríkum teikn-
ingum sínum, innsetningum, myndböndum og
bókverkum. Hún hefur skapað einstakan mynd-
heim þar sem fantasía, húmor og hryllingur
fara saman hönd í hönd. Í verkum sínum þræðir
hún tilfinningalífið í allri sinni óreiðu og skapar
stemningar sem nær ómögulegt er að færa í orð
en með einkennandi stílbrögðum sínum nær hún
að tjá ótrúlegustu blæbrigði.
Auk opnunar sýningarinnar Andardráttar á
glugga verða fjölmargir aðrir viðburðir á dagskrá
Listasafns Reykjavíkur á Safnanótt í Hafnarhúsi,
Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni.
Sjóminjasafnið
Margmiðlunarsýningin Við erum jörðin – við
erum vatnið eftir Heimi Frey Hlöðversson verður
opnuð í Sjó minjasafninu í Reykjavík á Safnanótt
klukkan 20.00.
Í sýningartexta Birtu Guðjónsdóttur segir
meðal annars: „Í verkinu Við erum jörðin – við
erum vatnið fáum við óvenjulega innsýn í ægi-
fögur form náttúrunnar. Ljóðræna sýn á hið
agnarsmáa í hinu risastóra, sem tækninýjungar
veita okkur. Um leið er verkið dreyminn sjónrænn
leikur við síbreytanleg form sem skapast stöðugt
í kringum okkur en við komum alla jafna ekki auga
á. Okkur er boðið í ferðalag nánast inn í efnin sjálf,
sameiningu og umbreytingarferli þeirra.“
Heimir Freyr er kvikmyndagerðarmaður, lista-
maður og margmiðlunarhönnuður á Íslandi. Hann
gerir kvikmyndir, listainnsetningar og sýndar-
veruleika-upplifanir.
Hönnunarsafn Íslands
Ný fastasýning verður opnuð í
Hönnunarsafni Íslands á Safna-
nótt klukkan 20.00 og mun
standa í þrjú ár. Á sýningunni
Hönnunarsafnið sem heimili
má finna um 200 dæmi um
íslenska hönnun en safneign
Hönnunarsafns Íslands telur í
heild um 5.000 muni frá árinu
1900 til dagsins í dag.
Sýningin er sett upp sem
grunnmynd af heimili en líkt
og á heimilum fólks má sjá þar
hlið við hlið muni frá mis-
munandi tímabilum. Húsgögn,
borðbúnaður, fatnaður, bækur
og textíll frá ólíkum tíma koma
saman og varpa ljósi á brot af
því sem íslenskir hönnuðir og
handverksfólk hefur skapað.
Heimilið er í sífelldri þróun.
Stöðugt er verið að færa til,
skipta út og breyta. Sköpun
heimilis er lifandi ferli án enda-
punkts, en heimilið er fyrst
og síðast sköpun þeirra sem
þar búa. Smekkur, sem getur
mótast af ýmiss konar áhrifa-
þáttum í lífi hvers og eins, er
það sem gefur hverju og einu
heimili sín sérkenni.
Listasafn Einars Jónssonar
Í Listasafni Einars Jónssonar á
Skólavörðuholti verður dag-
skrá tengd sýningunni Allt um
kring eftir myndlistarmanninn
Jónínu Mjöll Þormóðsdóttur
sem var opnuð fimmtudaginn
2. febrúar.
Jónína Mjöll mun bjóða
upp á þrjár leiðsagnir um
sýninguna á Safnanótt ásamt
hörpuleikaranum Sólveigu
Thoroddsen klukkan 18.30,
20.30 og 21.30.
Á sýningunni Allt um kring
teflir Jónína Mjöll fram til-
raunakenndum skúlptúrum
úr fisléttum hvítum fjöðrum.
Verk hennar eru kvenlæg í mýkt
sinni og kallast á við massíf verk
Einars. Hún sækir innblástur í
andlegar víddir og vinnur mark-
visst með hvíta litinn sem sam-
eiginlegan þráð sýningarinnar.
Jónína Mjöll lauk námi í
myndlist árið 2015 við Hoch-
schule für Künste í Bremen
og meistaranámi í myndlist
árið 2017. Hún hefur haldið
fjölda einka- og samsýninga,
meðal annars í Bremen, Köln
og Hamborg, en einnig í Japan,
Víetnam og á Íslandi.
Á sýningunni má sjá íslenska
hönnun úr safneign Hönnunar-
safns Íslands. MYND/AÐSEND
Jónína Mjöll býður upp á leiðsögn
um sýningu sína á Safnanótt.
MYND/AÐSEND
FRÉTTABLAÐIÐ MENNING 153. FEBRÚAR 2023
FÖSTUDAGUR