Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 4
Það er skýr afstaða íslenskra stjórnvalda að gerðin verður ekki tekin upp í EES-samn- inginn án þess að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna. Úr svari utanríkisráðuneytisins Það sem þátttakendur uppskera: • Aukið sjálfstraust, sterkari sjálfsmynd og trú á eigin getu • Hugrekki til að segja sína skoðun óháð áliti annarra • Kjark til að tala um eigin líðan og annarra • Leiðir til að eignast vini, bæta samskipti og styrkja sambönd • Þor til að koma hugmyndum sínum á framfæri og hafa áhrif • Betra skipulag og skýrari markmið • Jákvætt viðhorf og kvíða/streitustjórnun Skráning á dale.is eða 555 7080 Ókeypis kynningartími dale.is/ungtfolk *Hægt er að nota frístundastyrki bæjarfélaga sem greiðslu - Youth_Ad_121322 Námskeið hefjast: 10 til 12 ára 12. júní 9.00 -13.00 átta virka daga í röð 13 til 15 ára 20. febrúar 17.00 - 20.30 einu sinni í viku, 9 skipti 16 til 19 ára 9. ágúst 18.00 -22.00 tvisvar í viku, 9 skipti 20 til 25 ára 15. febrúar 18.00 -22.00 einu sinni í viku, 9 skipti Dale Carnegie fyrir ungt fólk Forsætisráðuneytið óttast að traust erlendra stjórnvalda til þeirra íslensku skaðist ef almenningur fær að lesa um viðbrögð ESB við ósk um afslátt á losunargjöldum vegna flugs. Ísland sagt hóta neitunarvaldi ef ESB veitir ekki undanþágu. bth@frettabladid.is StjórnSýSla Forsætisráðuneytið hefur hafnað beiðni Fréttablaðsins um að fá aðgang að gögnum sem tengjast bréfi sem Katrín Jakobs- dóttir forsætisráðherra sendi Evr- ópusambandinu um kostnað við losun frá millilandaflugi. Fréttablaðið fékk upplýsingar um að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefði svarað bréfi forsætisráðherra. Með vísan til upplýsingalaga falaðist Fréttablaðið eftir svarbréfi Ursulu frá ráðuneytinu en mat ráðuneytis- ins er að ekki sé unnt að verða við beiðninni. Forsætisráðuneytið vísar til ákvæðis í upplýsingalögum þar sem segir að hægt sé að takmarka aðgang almennings að gögnum sem geymi upplýsingar um samskipti við önnur ríki eða fjölþjóðastofn- anir „þegar mikilvægir almanna- hagsmunir krefjast“. Bréfið frá Ursulu feli í sér upplýs- ingar um yfirstandandi samskipti íslenska ríkisins við önnur ríki eða fjölþjóðastofnanir. „Er það mat ráðuneytisins að verði það afhent sé hætta á að traust erlendra stjórnvalda eða alþjóða- stofnana til íslenskra stjórnvalda skaðist og að af hending bréfsins muni því torvelda téð samskipti.“ Málið virðist funheitt nú um stundir. Fréttablaðið sendi utanrík- isráðuneytinu fyrirspurn um hvort rétt væri sem fram kom í norska blaðinu Dagsavisen að íslensk stjórnvöld hefðu hótað að beita neitunarvaldi í sameiginlegri EES- nefnd fengi Ísland ekki undanþágu frá gjöldum vegna losunar frá flugi. Í svari ráðuneytisins segir að aldr- ei hafi komið til þess að EFTA-ríkin innan EES hafi þurft að hafna upp- töku ESB-löggjafar sem falli undir gildissvið hans innan samnings. „Á hinn bóginn hafa oft verið gerð skilyrði fyrir upptöku slíkrar lög- gjafar sem síðan leiða til samninga- viðræðna við ESB. Þegar aðilar eru ásáttir um með hverjum hætti við- komandi löggjöf skal gilda í EFTA- ríkjunum er svo tekin ákvörðun um að taka gerðina upp í samninginn á vettvangi sameiginlegu EES-nefnd- arinnar, en samþykki Íslands er skilyrði fyrir slíkri ákvörðun,“ segir í svari ráðuneytisins. Í svarinu segir enn fremur að ESB- ríkin og Evrópuþingið hafi náð sam- komulagi um niðurstöðu „sem tekur ekki nægjanlegt tillit til þeirra sér- stöku aðstæðna sem eru á Íslandi“ þar sem flug er eina leiðin til og frá landinu en hvorki lest né strætó. „Íslensk stjórnvöld munu halda áfram að vinna að lausnum nú þegar ESB hefur afgreitt gerðina sín megin og til álita kemur með hvaða hætti hún verður tekin upp í EES- samninginn. Það er skýr afstaða íslenskra stjórnvalda að gerðin verð- ur ekki tekin upp í EES-samninginn án þess að tekið sé tillit til íslenskra aðstæðna.“ Utanríkisráðherra hefur skipað starfshóp sérfræðinga sem mun skoða leiðir og aðlaganir við upp- tökuna sem hafi sem minnsta röskun á samkeppnisskilyrðum í för með sér. Stjórnvöld eru sögð hafa mestar áhyggjur af áhrifum fyrirhugaðrar losunargjaldtöku á framtíð Kef lavíkurf lugvallar og Ameríkuflugsins. n Neita að afhenda svarbréf frá ESB og krefjast að Ísland fái EES-sérmeðferð Harka virðist hlaupin í sam- skipti íslenskra stjórnvalda við ESB vegna los- unarskatta sem íslenska ríkið vill sleppa við. Deilan varðar einkum milli- landaflugið. fréttablaðið/ ernir tölur vikunnar | Þrjú í fréttum | 20 milljörðum króna var varið í auglýsingar á Íslandi í fyrra. 50 prósent þeirra sem taka ökupróf standast það í fyrstu tilraun. 5.000 manns munu starfa fyrir Icelandair í sumar samkvæmt áætlun félagsins. 7,8 reyndist styrkur jarð- skjálftans í Tyrklandi síðastliðinn sunnudag. 500 manns eru nú í Evr- ópuhreyfingunni sem vill þjóðaratkvæði um Evrópusambandsaðild. Sélim Sarii- brahimoglu kjörræðismaður Íslands í Ankara sagði jarðskjálft- ann í Tyrklandi á sunnudag hafa komið á mjög erf- iðum tíma. Veturinn var harður og efnahagsaðstæður erfiðar. „Þó svo að þetta sé hörmulegur atburður þá held ég að samstaðan sem ríkir milli fólksins á svæðinu og fólksins úti um allt Tyrkland sé það sterk að Tyrkir muni sigrast á þessum hörmungum,“ sagði Sélim. Sigfús Sigurðsson fisksali í Fiskbúð Fúsa hefur gaman af því að finna upp ný nöfn á fiskinn sem hann hefur á boðstólum. Langa í gyros er „Grískur harmleikur“ og nýjar gellur eru „Fresh babes“ upp á ensku. „Hákarlinn er kallaður „Jaws“. En ekki hvað?“ sagði Sigfús. „Maður er náttúrlega enn þá bara tíu ára þannig að það kemur ýmis- legt upp í þennan haus.“ Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar gagnrýndi ummæli nær- ingarfræðingsins Vilborgar Kolbrúnar Vilmundardóttur um að vísindaleg rök styddu hvorki skilgreiningu á offitu sem sjúk- dómi né notkun megrunarlyfja. „Offitu fylgir gífurlega aukin hætta á hjartabilun, lifrarskemmdum, sykursýki fullorðinna, kæfisvefni, slitgigt hjá ungu fólki og alls konar krabbameinum,“ sagði Kári og kvað Vilborgu „alveg gjörsamlega úti í mýri“. n Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra 4 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023 LAUGArDAGUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.