Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Ívar er PGA-golfkennari en þúsundir íslenskra kylfinga hafa notið leiðsagnar hans í gegnum árin. Hann tók við yfirkennara- stöðu á hinu glæsilega Mar Menor golfsvæði fyrir átta árum en það er staðsett um 100 kílómetrum frá Alicante. Áður var hann við kennslu á Campoamor þar sem hann starfaði í þrettán ár og þaðan fór hann til Marbella þar sem hann setti upp golfakademíu. Frá árinu 2014 hefur hann verið á Mar Menor. „Það má segja að gamall draumur hafi ræst þegar ég ákvað að setjast að hér á Spáni. Þegar ég var ellefu ára gamall sagði ég við mömmu þegar við stóðum úti á svölum á Benidorm: „Ég ætla að búa á Spáni þegar ég verð stór.“ Ég fór alltaf til Spánar á vorin og á haustin til að spila golf þegar ég var í landsliðinu og líkaði það ákaflega vel. Svo var það eitt árið þegar ég var mættur á flugstöðina á leið heim til Íslands. Ég var á klósettinu og hugsaði með sjálfum mér: Mig langar ekki að fara heim. Úr varð að ég eyðilagði flugmiðann, keyrði aftur til baka og fann mér húsnæði til að búa í. Ég er búinn að vera hér síðan þá,“ segir Ívar, sem keypti sér húsnæði nærri golfsvæðinu árið 1995 og býr þar ásamt sambýlis- konu sinni, Önu Moltó, og tveimur dætrum þeirra. Gaman og gefandi að kenna Ívar segir að það hafi legið nokkuð ljóst fyrir að hann myndi snúa sér að golfkennslu á einhverjum tíma- punkti. „Ég hef alltaf haft rosalega gaman af því að kenna og finnst það gefandi. Ég kenndi karate, ég var með einkatíma í vaxtarrækt, ég var að kenna hundum og svo hellti ég mér út í golfkennsluna. Ég hef alltaf jafn gaman af því að fara út á æfingasvæði og kenna fólki golf þótt ég sé búinn að gera það í 30 ár. Þú getur verið góður spilari en það þarf ekki endilega að vera að þú sért góður kennari. Ef þú getur ekki komið réttu hlutunum til skila fyrir viðkomandi aðila á ein- faldan og réttan hátt þá er betra að láta það eiga sig. Tiger Woods sagði til að mynda einu sinni í viðtali: Ef einhver vill læra golf, ekki tala þá við mig því ég er lélegasti kennari sem til er.“ Ívar hefur í gegnum árin tekið á móti fjölda Íslendinga í golf- kennslu en aðstaðan á Mar Menor er glæsileg og nú getur hann útvegað kylfingum gistingu á La Torre Hilton hótelinu þar sem boðið er upp á fjóra velli, sem allir eru hannaðir af goðsögninni Jack Nicklaus. „Það hefur komið fólk í kennslu þrettán ár í röð en það má segja að í fyrra og í ár hafi verið að koma Guðmundur Hilmarsson gummih @frettabladid.is Ívar ásamt Önu sambýliskonu sinni og dætrunum Raquel og Melanie. MYNDIR/AÐSENDAR Mar Menor golfsvæðið er glæsilegt og hér má sjá La Torre Hilton hótelið sem nemendur Ívars geta dvalið á. til mín margt fólk sem hefur ekki komið áður. Ég hef alltaf lagt mikinn metnað í kennsluna og að gera hlutina vel og það spyrst út til fólks,“ segir Ívar, sem hefur frá unga aldri stundað íþróttir og það með góðum árangri. Hann varð Íslandsmeistari unglinga í golfi, vaxtarrækt og keilu. Veðrið gott eða mjög gott Það er ekki bara golfið sem Ívar einblínir á. Hann stundar hesta- mennsku ásamt tveimur dætrum sínum, Raquel, sem er 19 ára, og Melanie, sem er 14 ára. „Síðustu ár hef ég verið mikið í hestamennsku og stelpurnar okkar tvær eru að keppa á landsmótum og hafa unnið til verðlauna. Ég hef mjög gaman af þessu sporti,“ segir Ívar. Spurður hvernig sé að búa á Spáni segir Ívar: „Þetta er alveg draumur í dós. Hér er veðrið annað hvort gott eða mjög gott. Það auðveldar mjög lífið að ég tala tungumálið hundrað prósent og þar af leiðandi skil ég hlutina og er kominn inn í kerfið.“ Ívar segir að í desember og fram í janúar sé minna um að vera hjá sér í golfkennslunni sem og yfir heitustu mánuðina, júlí og ágúst. „Það eru svona þrír mánuðir á ári sem kennslan er minni. Hefð- bundinn dagur hjá mér er þannig að ég byrja að kenna á morgnana. Þegar kennslunni lýkur sný ég mér að hestunum og svo á kvöldin á milli 21–23 þá tekur líkamsræktin við hjá mér þar sem ég æfi sex daga vikunnar,“ segir Ívar. Hann segist spila golf sjálfur sam- hliða kennslunni. „Ég spila með fólki úti á velli og kenni því í leiðinni. Það er alveg rosalega vinsælt og það hefur aukist ár frá ári að fólk kemur til mín í spilakennslu. Þá spila ég með því og útskýri hluti úti á vellinum þegar fólk er í „action“. Yfirleitt er ég með einn eða tvo í einu og stundum læt ég þá spila níu holur og ég er þá á kantinum og keyri á eftir þeim. Eftir níu holurnar er ég búinn að taka út spilamennsku þeirra og bendi þeim á hvar veikleikarnir eru, hverjar er sterku hliðarnar og hvað þarf að leggja áherslu á. Þetta finnst mér nýtast mörgum vel.“ Ísland hálfgert bananalýðveldi Ívar á tvær aðrar dætur frá fyrra sambandi, Írisi Tönju, sem býr á Íslandi, og Ornellu, sem er búsett í Banda- ríkjunum. Hann segist halda góðu sambandi við þær. Ívar segist koma til Íslands á hverju ári yfir sumar- tímann. „Tíunda árið í röð kom ég heim síðastliðið sumar til að kenna í Básum í Grafarholtinu. Ég kenni þar frá 1. júní og er í fimm vikur. Þetta er mikil törn og það eru ansi margir sem fara á bið- lista. Ég kenni í Básum í tíu klukkutíma alla daga vik- unnar. Maður er búinn að kynnast mörgu fólki í gegnum ferðirnar til Spánar og það er gaman að geta haldið áfram að leið- beina því og hitta gamla vini og kunningja í leiðinni,“ segir Ívar. Hann segir að það sé ekki á stefnuskránni að flytja aftur til Íslands. „Það er ekkert fyrir mig að sækjast eftir á Íslandi miðað við lífs- gæðin sem við höfum hér á Spáni. Með fullri virðingu þá er Ísland hálfgert bananalýðveldi á mörgum sviðum. Til dæmis er matvaran á Íslandi hrikalega dýr og ég varð svo sannarlega var við það þegar ég kom heim síðastliðið sumar. Við höfum það virkilega ljúft hér og njótum lífsins í botn í afslöppuðu umhverfi.“ n Ívar sýnir „six- pakkinn“ en hann fer í ræktina sex sinnum í viku og er tvo klukktíma í senn. Ívar stundar líka hestamennsku og hér er hann á fáki sínum. 2 kynningarblað A L LT 11. febrúar 2023 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.