Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 8
Við þurfum að hafa
meira fyrir hverri
björgun.
Frið finnur F. Guð munds son,
að gerða stjórnandi íslenska
björgunarhópsins
Meiri streita og erfið-
leikar auka á valdníðsl-
una heima fyrir.
Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir,
talskona Stígamóta,
Óvíst er hvað þetta torg á Vífilsstaðavegi mun heita.
kristinnhaukur@frettabladid.is
garðabær Menningar- og safna-
nefnd Garðabæjar leggur til að
hringtorg bæjarins verði nefnd
eftir fyrrverandi forsetum lýð-
veldisins. Bæjarstjórn fól nefnd-
inni að að fjalla um tillögu sína
um að hringtorgin verði nefnd og
þau fegruð. Samkvæmt þessu verða
torgin nefnd Sveinstorg, Ásgeirs-
torg, Kristjánstorg, Vigdísartorg
og Ólafstorg. Verði merkingarnar
áberandi og útilistaverk sett upp
með innblæstri frá tíðaranda þess
tíma sem hver forseti gegndi emb-
ætti. Guðni Th. Jóhannesson forseti
verður hins vegar að bíða eftir sínu
torgi.
Í minnisblaði nefndarinnar
segir að horft sé til sögu Bessa-
staða sem sé samofin sjálfstæðis-
baráttu íslensku þjóðarinnar. „Að
hafa aðsetur forseta lýðveldisins
í bænum er nokkuð sem nefndin
telur bæjarsóma og full ástæða til
að minna á sögu forsetaembættis-
ins í bæjarlandinu og merkilega
áfanga í sjálfstæðisbaráttunni,“
segir enn fremur.
En torgin eru fleiri en forsetarnir.
Því leggur nefndin til að önnur torg
fái nöfn tengd merkum áföngum
í sjálfstæðisbaráttunni. Muni þau
heita Fullveldistorg, Heimastjórnar-
torg, Sjálfstæðistorg, Lýðveldistorg
og Forsetatorg. Hvað fegrun og
skreytingar varðar verði sóttur inn-
blástur í náttúru Íslands og þjóðlegar
áherslur. 80 ára afmæli lýðveldisins
sé á næsta ári og best væri að vígja
Lýðveldistorg þá um sumarið. n
Forsetar heiðraðir með hringtorgum
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
100,0%
90,0%
80,0%
70,0%
60,0%
50,0%
40,0%
30,0%
20,0%
10,0%
0,0%
2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021
n Ofbeldi n Heimilisofbeldi n Hlutfall
Fj
öl
di
b
ro
ta
Hlutfallsleg þróun heimilisofbeldis sem hluti af ofbeldisbrotum
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
sk
h
ön
nu
n
Auglýst er eftir umsóknum um árlega styrki úr Barna-
menningarsjóði Íslands.
Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði
barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka
þátttöku barna í menningarlífi. Verkefni sem stuðla að
lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka mið af inntaki
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi.
Áhersla er lögð á samstarf tveggja aðila eða fleiri, svo sem
menningarstofnana, skóla, listafólks og félagasamtaka og er
hvatt til þess að samstarfsverkefni séu unnin í samstarfi ólíkra
aðila, t.d. að stofnanir leiti samstarfs við skapandi fólk fremur
en við aðrar stofnanir.
Ef umsækjandi hefur þegar hlotið styrk úr sjóðnum kemur
ný umsókn ekki til álita nema að loka- eða áfangaskýrslu sé
skilað fyrir umsóknarfrest.
Umsóknarfrestur rennur út 3. apríl 2023 kl. 15.00.
Sjóðurinn var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldisins
á hátíðarfundi Alþingis 18. júlí 2018.
Reglur sjóðsins, umsóknargögn og skýrsluform er að finna
á barnamenningarsjodur.is.
Rannís, Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími 515 5800, barnamenningarsjodur@rannis.is
Styrkir úr
Barnamenningarsjóði
Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2023
Heimilisofbeldi var innan við
fjórðungur skráðra ofbeldis-
brota í bókum lögreglunnar
2014, en sjö árum seinna upp
undir helmingur af þeim.
Vitundarvakning hefur orðið
hvað málaflokkinn varðar,
segir talskona Stígamóta.
ser@frettabladid.is
LÖgregLumáL Fjöldi ofbeldisbrota
hefur aukist verulega hér á landi á
síðustu árum, að því er fram kemur
í samantekt ríkislögreglustjóra sem
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Sérstaka athygli vekur hvað
hlutur heimilisof beldis í þessum
brotaflokki hefur aukist hlutfalls-
lega mikið, en frá 2014 til ársins
2021, þegar nýjustu staðfestu tölur
eru teknar saman, hefur orðið meira
en þreföldun í skráðum brotum af
því tagi.
„Það hefur orðið vitundarvakn-
ing hvað heimilisof beldið varðar,“
segir Steinunn Gyðu og Guðjóns-
dóttir, talskona Stígamóta, mið-
stöðvar fyrir þolendur kynferðis-
of beldis, „en æ f leiri brotaþolar
átta sig á því að það sem er að gerast
heima hjá þeim er ekkert annað en
heimilisofbeldi,“ bætir hún við.
„Eftir því sem f leiri hafa stigið
fram og tjáð sig um heimilisofbeldi
eiga f leiri auðveldara með að taka
til máls og segja sína sögu,“ segir
Steinunn og bætir því við að opin
umræða geri það að verkum að
fleiri geta speglað sig í vandanum.
„Þá segir fólk: Þetta er ekki í lagi.“
Eins og meðfylgjandi tafla sýnir
var hlutur heimilisof beldis í til-
kynntum ofbeldisbrotum vel innan
við fjórðungur þeirra árið 2014, en
var kominn upp undir helming
þeirra sjö árum seinna, árið 2021.
Fjölg un tilk y nntra heimil-
isofbeldisbrota var veruleg í byrjun
þessa árabils, meira en tvöfaldaðist á
milli áranna 2014 og 2015, en athygli
vekur svo hvað skráðum ofbeldis-
brotum á heimilum landsmanna
fjölgaði að miklum mun eftir að
heimsfaraldurinn Covid-19 tók að
skekja samfélagið árin 2020 og 2021.
„Það liggur í hlutarins eðli að
ef allir eru fastir heima hjá sér þá
eykst heimilisof beldi,“ segir Stein-
unn. „Það er vel þekkt mynstur að
ofbeldi eykst þegar kreppir að. Það
er nú einu sinni svo að meiri streita
og erfiðleikar auka á valdníðsluna
heima fyrir,“ segir Steinunn Gyðu og
Guðjónsdóttir. n
Tilkynnt heimilisofbeldi
þrefaldast á tæpum áratug
Hlutur heimilisofbeldis í tilkynntum ofbeldisbrotum var minni en fjórðungur
2014, en var kominn upp undir helming sjö árum síðar. Fréttablaðið/Getty
Íslenski björgunarhópurinn dvelur í þessum búðum í Tyrklandi. Mynd/aðsend
benediktarnar@frettabladid.is
bjÖrgun Enn er verið að bjarga
fólki úr rústum í Tyrklandi og Sýr-
landi eftir jarðskjálfta sem reið
yfir á sunnudag. Tala látinna er
nú komin í yfir 22 þúsund manns,
flestir í Tyrklandi. Erfiðlega gengur
að koma björgunarstarfi í gang í
Sýrlandi enda innviðir í rústum eftir
borgarastyrjöld.
Atli Viðar Thorstensen, sviðs-
stjóri alþjóðasviðs hjá Rauða kross-
inum, segir að Rauði hálfmáninn í
Tyrk landi og Sýr landi hafi brugðist
hratt við með skipu lögðu neti sjálf-
boða liða og starfs manna sem fóru
strax og veittu lífs bjargandi að stoð.
„Að stæður í Sýr landi til björg-
unar- og upp byggingar starfs eru
án efa erfiðari heldur en í Tyrk landi
vegna þeirra vopnuðu á taka sem
lands menn í Sýr landi hafa búið við
í meira en ára tug og hafa að miklu
leyti lagt inn viði landsins í rúst,“
segir Atli.
Frið f innur F. Guð munds son,
að gerða stjórnandi íslenska björg-
unarhópsins, segir að það séu enn
lífsbjarganir í gangi, en þeim hefur
fækkað töluvert síðustu daga.
„Við þurfum að hafa meira fyrir
hverri björgun, en þær eru færri. Það
þarf að fara meira fyrir leitarfasa
þar sem er verið að nota mynda-
vélar, hljóð nema og hunda til að
leita í rústunum. Þannig við erum
að sjá fasabreytingu,“ segir Frið-
finnur. n
Björgunarfólkið er að renna út á tíma
8 FréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023
LAUGArDAGUr