Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 51
Þetta gerðist | | 1 1 . f e b r ú a r 1 9 7 3
Elsku mamma, tengdamamma, systir,
amma og langamma okkar,
Sif Aðils
lést á Landakotsspítala,
föstudaginn 27. janúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að hennar
ósk. Kærar þakkir færum við öllum sem
komu að umönnun hennar.
Þór Sigurjónsson Guðrún Gunnarsdóttir
Inga Aðils
Hrund Þórsdóttir Óskar Páll Elfarsson
Freyr Þórsson Eva Hlín Hermannsdóttir
Ísak, Bjarki, Sunna, Sölvi og Arnar
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýju vegna andláts og útfarar móður
okkar og tengdamóður,
Hallbjargar Gunnarsdóttur
Bebbu
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Bylgjuhrauns, Hrafnistu Hafnarfirði, fyrir góða umönnun
og hlýju í hennar garð.
Steinunn Ólafsdóttir
Gunnar Guðnason Guðrún Tryggvadóttir
Guðjón Guðnason Hafdís Ólafsdóttir
Grétar Guðnason
Guðni Guðnason Jenný Guðmundsdóttir
María Jóna Guðnadóttir Hallgrímur S. Þorvaldsson
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sólrún Guðmundsdóttir
Galtalind 12, Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 2. febrúar.
Útför hennar verður gerð frá
Kópavogskirkju mánudaginn 13. febrúar klukkan 13.00.
Innilegar þakkir til starfsfólks Líknardeildar Landspítalans
fyrir góða umönnun og hlýhug.
Guðfinnur Magnússon
Guðmundur Heiðar Guðfinnsson Enikő Bali
Guðrún Jóna Guðfinnsdóttir Helgi R. Magnússon
Magnús Grétar Guðfinnsson Júlía Hrönn Möller
Harpa Björg Guðfinnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Svanhildur Sigurðardóttir
lést á heimili sínu í Canach,
Lúxemborg, 31. desember.
Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju
þriðjudaginn 14. febrúar klukkan 13. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja MS-félagið.
Markús Ívar Magnússon
Guðrún Eva Markúsdóttir Aleš Guštin
Sigurður Bjarni Markússon Catherine Ziegler
Magnús Ívar Markússon
og barnabörn
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför elsku eiginmanns míns,
föður okkar og tengdaföður,
Gunnars Inga Ragnarssonar
verkfræðings,
áður til heimilis að Þverá, Laufásvegi 36,
sem andaðist þann 24. janúar 2023.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Parkinsonsamtakanna,
Hlíðabæjar og hjúkrunarheimilis Hrafnistu við Sléttuveg,
sem léttu honum lífið í löngum veikindum.
Valdís Bjarnadóttir
Orri Gunnarsson
Tinna Gunnarsdóttir Michel van Tol
Nanna Gunnarsdóttir Owen Hindley
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Óli Kristjánsson
húsasmíðameistari,
Strandvegi 17, Garðabæ,
lést á Líknardeild Landspítalans
föstudaginn 3. febrúar. Útförin fer fram frá
Vídalínskirkju fimmtudaginn 16. febrúar klukkan 13.
Soffía A. Haraldsdóttir
Haraldur Þór Ólason Þórunn Úlfarsdóttir
Kristján A. Ólason Þuríður Sigurðardóttir
Kristín V. Óladóttir
Stella Óladóttir Páll Halldórsson
Ingibjörg Óladóttir Garðar Ingþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Stjórnendur hjá rafeyri taka við verðlaunum í Hörpu. Mynd/VÍS
arnartomas@frettabladid.is
Rafverktakinn Rafeyri á Akureyri hlaut
í vikunni Forvarnarverðlaun VÍS sem
ætluð eru því fyrirtæki sem þykir skara
fram úr í öryggismálum og er öðrum
fyrirtækjum góð fyrirmynd.
„Við vinnum með stórfyrirtækjum
í landinu sem eru með reglur og við
fórum að fara eftir þessu. Starfsmenn
átta sig auðvitað á því að þetta er þeim
fyrir bestu,“ segir Kristinn Hreinsson,
framkvæmdastjóri hjá Rafeyri. „Við
höfum reynt að búa til samfélag þar
sem hver og einn hugsar um sjálfan sig
en líka um samstarfsmann sinn með það
að leiðarljósi að allir séu öryggir og öll
ætlum við að koma heil heim.“
Þannig segir Kristinn að öryggismálin
séu ekki seld fólki af ofstopa eða ofríki
heldur séu þau innleidd á skynsam-
legum nótum. Á mánaðarlegum starfs-
mannafundum og stjórnarfundum er
alltaf byrjað á öryggismálum með þeim
útgangspunkti að þar sé enginn afsláttur
gefinn.
„Tilhlýðandi klæðnaður skal notast
og önnur öryggistól skal nota þar sem
við á. Við höfum ekki verið að skera við
nögl að skaffa fólki góðar vörur,“ segir
Kristinn.
Þá hefur fyrirtækið þróað app sem
heldur utan um ástand á verkfærum og
tólum fyrirtækisins.
„Hvort sem það er fallvarnarbelti,
stór borvél eða hvað annað sem þarf
að nota þá er QR-kóði á hverju verkfæri
sem viðkomandi starfsmaður skannar
og skráir sig þannig fyrir verkfærinu,“
útskýrir Kristinn. „Sé vöntun á tilteknu
verkfæri þá er hægt að sjá hvort einhver
hafi gleymt að skila og þá er auðvelt að
hafa samband.“
Er þá hægt að melda með appinu ef
eitthvað er bilað eða slitið?
„Já, en við höfum líka þá reglu að það
fer ekkert verkfæri sem er bilað upp
í hillu,“ svarar Kristinn. „Við höfum
líka á skrá hversu gamlir hlutirnir eru
orðnir. Ég hef oft sagt það sem lokaat-
riði á starfsmannafundum að allir eigi
að vinna vel og koma heilir heim. Ég hef
gaman að því að koma í vinnuna en ef
það er eitthvað sem ég hræðist þá er það
að mæta á heimili fólks og bera þangað
vátíðindi.“ n
Öryggismál tekin föstum tökum
Starfsmenn átta sig auð-
vitað á því að þetta er
þeim fyrir bestu.
Kristinn Hreinsson,
framkvæmdastjóri hjá rafeyri
Kvikmyndin brekkukotsannáll var
frumsýnd í sjónvarpinu þann 11.
febrúar 1973. Hún var fjármögnuð
af rúV, Sambandi norræna ríkissjón-
varpsstöðva og Þýska sjónvarpinu og
var leikstýrt af Þjóðverjanum rolf Hä-
drich. framleiðslan var heldur vegleg
og var ekkert til sparað í búningum og
leikmyndum.
Myndin byggir á samnefndri bók
eftir Halldór Laxness, sem bregður
þar einmitt fyrir í mýflugumynd. Í
myndinni voru margir af stórleikurum
Íslands á borð við Jón Laxdal, Þorstein
Ö. Stephensen, regínu Þórðardóttur
og brynjólf Jóhannesson. Þá for Sigrún
Hjálmtýsdóttir, Diddú, með stórt hlut-
verk aðeins sautján ára gömul.
brekkukotsannáll var lengi vel
ósýningahæf þar sem engin filma var
með öllu óskemmd en frumeintaki
myndarinnar var óvart fargað. Myndin
var enduruppgerð 2015 þar sem leitað
var til Norðurlanda og Þýskalands eftir
völdum köflum og tókst til að púsla
henni saman í sýningarhæft eintak. n
Kvikmyndin Brekkukotsannáll frumsýnd
Þökkum samúð og vinarhug
við andlát og útför kærrar systur,
mágkonu og frænku,
Erlu Guðbjargar Jónsdóttur
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Mörkinni fyrir góða umönnun
og hlýju í hennar garð.
Fyrir hönd fjölskyldunnar og annarra aðstandenda,
Ómar G. Jónsson
Sigurður Jónsson Hrefna Jónsdóttir
Svanfríður Jónsdóttir Borgþór Magnússon
Ómar Ú. Eyþórsson
Elsku mamma okkar,
tengdamamma og amma,
Kolfinna Gunnarsdóttir
lést á Landspítalanum
föstudaginn 3. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 20. febrúar kl. 13.
Gunnar Már Ásgeirsson Sigrún Snorradóttir
Friðjón Ásgeirsson Birna Hrönn Bjarnadóttir
Kolfinna Mjöll Ásgeirsdóttir Bjarki Þór Eliasen
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Birgir Bjarnason
framkvæmdastjóri,
Holtagerði 76, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á líknardeild
Landspítalans þriðjudaginn 7. febrúar
síðastliðinn. Útför hans verður gerð frá Lindakirkju
miðvikudaginn 22. febrúar klukkan 13.00. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Ljósið. Innilegar þakkir til starfsfólks
líknardeildar Landspítalans fyrir góða umönnun og hlýhug.
Guðbjörg Sigmundsdóttir
Íris Björg Birgisdóttir Gunnþór Steinar Jónsson
Gísli Heiðar Bjarnason Anna Elín Kjartansdóttir
Ágústa Birgisdóttir Guðni Þórarinsson
Elías Halldór Bjarnason Helga Arnalds
barnabörn
FréttaBlaðið tímamót 3111. FeBrúar 2023
LaUGaRDaGUR