Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 11.02.2023, Blaðsíða 11
Embætti dómara við Landsrétt laust til setningar Dómsmálaráðuneytinu, 10. febrúar 2023. Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til setningar embætti dómara við Landsrétt. Um er að ræða setningu til sex ára vegna leyfis dómara. Stefnt er að því að setja í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni um- sækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum, til og með 28. febrúar 2029. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra eða net- föng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækj- anda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 970/2020 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf landsréttardómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækj- anda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 27. febrúar nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með raf- rænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu liggur fyrir. Maðurinn sem réðst inn á heimili hjóna á Blönduósi var með haglabyssu skráða á gjaldþrota fyrirtæki. Nær hálftími leið uns lögregla kom á staðinn eftir að heimilis- fólkið hringdi eftir aðstoð. benediktarnar@frettabladid.is lögregla Í gær tilkynnti lögreglan á Norðurlandi eystra um lok rann- sóknar á skotárásinni á Blönduósi í ágúst í fyrra. Þar létust karl og kona og einn særðist alvarlega. Málið er nú komið á borð emb- ættis héraðssaksóknara sem tekur ákvörðun um framhaldið. Í ítarlegri færslu á Facebook greindi lögreglan frá því að rann- sókn hafi leitt í ljós að árásar- maðurinn, sem hét Brynjar Þór Guðmundsson, hafi farið inn um ólæstar dyr heimili á Blönduósi og gengið um með afsagaða haglabyssu og sjö haglaskot meðferðis. Árásarmaðurinn sá að gestir voru á heimilinu, fór út úr húsinu og hélt húsráðandi á eftir honum. Utandyra kom til orðaskipta og átaka sem endaði með því að Brynjar skaut karl, húsráðanda á heimilinu, í kvið og særði alvarlega. Fór Brynjar þá aftur inn í húsið og skaut eiginkonu karlsins í höfuðið þar sem hún stóð í stofu og lést hún samstundis. Náði karlinn sem særðist þá tökum á árásarmanninum þar sem hann var að hlaða vopnið inni í húsinu. Sonur húsráðenda kom til aðstoðar og náði byssunni af Brynj- ari og kom til mikilla átaka þeirra á milli, en Brynjar var með veiðihníf. Átökin enduðu með því að Brynj- ar lést. Réttarkrufning leiddi í ljós að dánarorsök var köfnun vegna þrýstings á háls og brjóst. Sonur húsráðenda hringdi í neyð- arlínuna og var lögreglan komin á vettvang um 26 mínútum síðar. Þá kom einnig fram að rannsókn- in hafi ekki leitt í ljós að eitt ákveðið atvik hafi orðið til þess að Brynjar mætti vopnaður á heimili fólksins. Að sögn lögreglu var Brynjar alls- gáður og átti vinsamleg samskipti við fórnarlömbin fyrir árásina. Lögreglu hafði áður verið tilkynnt um ferðir Brynjars við heimili hjónanna rúmum mánuði áður. Þar hafði hann verið vopnaður hagla- byssu og afhent lögreglu skotvopn sem voru skráð á hann. Hann hafi leitað lækninga en verið kominn aftur á Blönduós um miðjan ágúst. Brynjar hafði tvisvar verið í garði við hús fólksins í júlí og tekið upp myndbönd inn um glugga á húsinu. Byssa Brynjars var skráð í eigu fyrirtækis sem seldi skotvopn en varð gjaldþrota árið 2008. Á fyrir- tækið voru enn skráðar þrjár byssur, ein sem hann notaði, önnur sem var í fórum óviðkomandi einstaklings og þriðja sem er enn ófundinn. Málið er nú komið á borð héraðs- saksóknara, sem tekur ákvörðun um næstu skref í málinu. n Óljóst með ákæru í Blönduósmálinu Lögreglan greindi frá því í gær að rannsókn á skotárásinni á Blönduósi væri lokið. Málið er komið á borð héraðssaksóknara. Fréttablaðið/anton brink. Páley Borgþórs­ dóttir, lög reglu­ stjóri á Norður­ landi eystra kristinnhaukur@frettabladid.is atvinnulíf Alls 9.800 konur á Íslandi starfa í vísindum og verk- fræði en 8.800 karlar Þetta kemur fram í gögnum frá Eurostat, töl- fræðistofnun Evrópusambandsins. Alls starfa 7 prósent Íslendinga í vísindum og verkfræði, sem er tíunda hæsta hlutfallið í Evrópu. Ísland er meðal fárra landa þar sem konur eru í meirihluta. Hin eru Nor- egur, Danmörk og Litáen. Svíar eiga hlutfallslega mest af vísindafólki, 9,6 prósent, og þar á eftir koma Svisslendingar og Norð- menn. Ítalir eru á botninum með aðeins 2,6 prósent og aðeins 1,7 pró- sent kvenna. n Konur í vísindum fleiri en karlar Um þúsund fleiri konur starfa í vís­ indum en karlar. Fréttablaðið/Eyþór Fréttablaðið fréttir 1111. Febrúar 2023 LAUGArDAGUr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.