Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 10
Það stefnir í gott ferða-
þjónustuár.
Jóhannes
Þór Skúlason,
framkvæmda-
stjóri SAF
Þeim finnst þetta
ótrúlega magnað.
Laufey Guð-
mundsdóttir,
sýningarstjóri
Jarðhitasýn-
ingarinnar
Erlendir ferðamenn, einkum
Bandaríkjamenn, eru hrifnir
af íslenskum virkjunum.
Jarðvarmavirkjanir njóta sér-
stakra vinsælda.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ferðaþjónusta Erlendir ferða-
menn sem hingað koma hafa ekki
aðeins áhuga á að sjá óbeislaða nátt-
úru eða upplifa menningarviðburði
á borð við íslenska djammið. Þeir
vilja líka sjá hvað það er sem knýr
heimilistækin og heldur á okkur
hita. Virkjanir eru orðnar vinsælir
ferðamannastaðir og þá einkum
jarðhitavirkjanir.
„Ferðamenn hafa áhuga á hvernig
við nýtum jarðvarmann í orku-
vinnslu. Bæði til að framleiða heitt
vatn og rafmagn. Þeim finnst þetta
ótrúlega magnað,“ segir Laufey Guð-
mundsdóttir, sýningarstjóri Jarð-
hitasýningarinnar hjá Orku nátt-
úrunnar við Hellisheiðarvirkjun.
Sýningin er opin alla daga, allt árið
um kring.
Samkvæmt Laufeyju koma um
100 þúsund manns á sýninguna í
meðalári. Langflestir, um 95 pró-
sent, eru erlendir gestir og Banda-
ríkjamenn í miklum meirihluta, eða
nærri helmingur allra gesta.
Laufey segir að jarðvarmavirkjan-
ir séu til annars staðar í heiminum,
til dæmis í Bandaríkjunum. En á
Íslandi er aðgengið gott. „Ég er ekki
viss um að fólk komist svona nálægt
orkuvinnslunni í Bandaríkjunum,“
segir hún.
Sumir ferðamenn koma á eigin
vegum og geta þá farið í gegnum
sýninguna með leiðsögn í hljóð-
appi. Einnig koma ferðaþjónustu- og
rútufyrirtæki með hópa og fá leið-
sögn hjá starfsfólki. Rukkað er inn
á sýninguna.
Hellisheiðarvirkjun nýtur þess
einnig að vera í Jarðhitagarðinum
ásamt öðrum fyrirtækjum. Þar
reka Climeworks og Carbfix loft-
sugur sem fanga kolefni og brenni-
stein úr virkjuninni og dæla niður í
bergið. Einnig VAXA Technologies
sem framleiðir smáþörunga fyrir
bætiefni. „Hérna eru fyrirtæki sem
tengjast auðlindastraumi virkjunar-
innar,“ segir Laufey.
Fleir i ork u f y r ir t æk i bjóða
ferðamönnum að koma til sín,
samkvæmt Samorku. Til dæmis
Svartsengi og Reykjanesvirkjun
hjá HS Orku á Reykjanesi, Tungu-
dalsvirkjun í Ísafirði hjá Orkubúi
Vestfjarða og Fjarðarselsvirkjun í
Seyðisfirði hjá RARIK sem er elsta
starfandi virkjun landsins. Sam-
kvæmt könnun frá árinu 2016 hafði
helmingur erlendra ferðamanna
áhuga á að sjá virkjanir.
Landsvirkjun býður líka gesti
velkomna. Tvær gestastofur eru
reknar Í Ljósafossstöð í Soginu og
við Kröflu. Samkvæmt Ragnhildi
Sverrisdóttur, upplýsingafulltrúa
Landsvirkjunar, komu 10 þúsund
gestir í Ljósafoss í fyrra og 57 pró-
sent þeirra voru erlendir ferða-
menn. Af 11 þúsund gestum Kröflu
var hins vegar yfirgnæfandi meiri-
hluti erlendir ferðamenn, eða 97
prósent.
„Af öryggisástæðum eru aflstöðv-
arnar okkar ekki opnar almenningi,
en margir ferðamenn nýta sér hins
vegar vegi sem lagðir hafa verið
vegna framkvæmda okkar, án þess
að við séum sérstaklega að skrá-
setja þau ferðalög sem gestakomur
til okkar,“ segir Ragnhildur.
Nefnir hún að mjög margir keyra
að Kárahnjúkum og Hálslóni á
hverju ári. „Þar höfum við átt sam-
starf við landverði Vatna jökuls-
þjóð garðs sem sinna fræðslu fyrir
gesti, en boðið er upp á þá leiðsögn
tvisvar sinnum í viku,“ segir hún.
Sumarið 2021 hafi 90 bílar farið
þangað að meðaltali á degi hverjum.
Einnig hafa verið gerðar vegabætur í
Mývatnssveit í tengslum við Þeista-
reykjavirkjun og líklegt sé að sá góði
vegur auki umferðina töluvert um
svæðið, þótt ekki fari allir til að sjá
virkjunina. n
Virkjanir orðnar vinsælir ferðamannastaðir
Nærri helmingur
gesta Hellis-
heiðarvirkjunar
eru Bandaríkja-
menn.
Mynd/Gunnar
SvanberG
ser@frettabladid.is
ferðaþjónusta Brottfarir Íslend-
inga frá Kef lavíkurf lugvelli voru
41.500 í síðastliðnum janúar og hafa
aldrei áður mælst svo margar í þeim
mánuði samkvæmt talningu Ferða-
málastofu.
Brottfarir erlendra farþega frá
landinu voru um 121 þúsund í sama
mánuði. Það eru álíka margar brott-
farir og í janúar árið 2020 og um 82
prósent af því sem þær voru í janúar
2018 þegar mest var.
„Við erum á réttri leið í eftir-
spurninni, það er engin spurning,“
segir Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón-
ustunnar. „Það stefnir í gott ferða-
þjónustuár,“ bætir hann við, „því
lágönnin núna um háveturinn lofar
góðu, enda virðist hún vera svipuð
og 2018, og svo er útlit fyrir mjög
gott sumar,“ segir Jóhannes.
Tæplega helmingur brottfara var
tilkominn vegna Breta og Banda-
ríkjamanna, en þessar þjóðir hafa
langoftast verið fjölmennustu þjóð-
ernin í janúar síðustu tvo áratugi,
eða frá því mælingar Ferðamála-
stofu hófust. n
Landinn aldrei ferðast meira í janúar
ser@frettabladid.is
samfélag Guðrún Erla Guðjóns-
dóttir í Mosfellsbakaríi reyndist
hlutskörpust í árlegri keppni Lands-
sambands bakarameistara um köku
ársins.
Það kom í hlut matvælaráðherra,
Svandísar Svavarsdóttur, að taka á
móti kræsingunum í ár sem eru með
Doré karamellumús með ástaraldin-
kremi og heslihnetumarengsbotni.
„Þetta er nú smá saga,“ segir Guð-
rún Erla. „Ég var með aðra köku í
huga, mánuði fyrir keppni, sem
raunar lenti svo í þriðja sæti, en viku
fyrir skilafrest langaði mig að gera
aðra köku, meira frískandi en hina,
og datt í huga að prófa ástaraldin
með karamellumúsinni – og viti
menn, hún vann.“
Sala á kökunni hófst í gær í bakarí-
um félagsmanna bakara um allt land
í tilefni af Valentínusardeginum. n
Bakarinn Guðrún Erla á köku ársins
Guðrún Erla ásamt matvælaráðherra og forkólfum iðnaðarins. Mynd/bIG
List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um
listviðburði eða verkefni á svið barnamenningar
fyrir grunnskólabörn
List fyrir alla er barnamenningarverkefni á vegum menningar - og
viðskiptaráðuneytis, sem ætlað er að miðla listviðburðum til barna og ungmenna um
land allt og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og
vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag.
Starfandi listamenn sem og stofnanir og aðrir lögaðilar er sinna barnamenningu
á einhvern hátt geta sótt um. Umsóknarfrestur er til 17. mars 2023.
MAT Á UMSÓKNUM
Valnefnd metur umsóknir og gildi þeirra með hliðsjón af því hvernig þær falla
að markmiðum verkefnisins List fyrir alla. Listviðburðir og verkefni skulu í
öllum tilvikum unnin af metnaði og af fagfólki. Við mat á umsóknum er valnefnd
heimilt að leita umsagnar, gerist þess þörf.
Ákvörðun úthlutunar mun liggja fyrir eigi síðar en 19. maí 2023.
Umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi á heimasíðu
List fyrir alla, www.listfyriralla.is
10 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023
LAUGArDAGUr