Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 16

Fréttablaðið - 11.02.2023, Page 16
Ég var búinn að pakka og kominn út í bíl þegar ég dró andann djúpt og fann að ég varð að vera áfram. Margir telja líklegt að Jay-Z komi fram með Rihönnu. Einnig þykir Kanye West líklegur. Um helgina | Við mælUm með | bjork@frettabladid.is Það þarf nefnilega sterkan einstakling til að standa í því einn, sem hann- að er sem verkefni fyrir tvo. Kjúklingavængjum Ofurskálin er á sunnudaginn og hinn fullkomna Super Bowl-mat segja margir vera kjúklingavængi. Á Just Wingin’it í Litlatúni í Garðabæ og á Snorrabraut eru í boði fjölmargar tegundir. Við mælum sérstaklega með Sticky Icky, Wing Tan Clan og Buffalo Cajun Ranch. Fyrir þau sem ekki vilja kjöt eru blómkálsvæng- irnir sérlega ljúffengir. birnadrofn@frettabladid.is Philadelphia Eagles og Kansas City Chiefs keppa um Ofurskálina eða Super Bowl í Arizona á sunnu- daginn. Um er að ræða einn stærsta íþróttaviðburð ársins sem sjón- varpað er um allan heim. Margir eru spenntir fyrir leiknum sjálfum en þau sem ekki hafa mik- inn áhuga á amerískum fótbolta bíða mörg spennt eftir tónlistarat- riðinu sem fer fram í hálfleik. Margt tónlistarfólk hefur sett á svið svaka- legar sýningar í hálfleik Ofurskálar- innar og muna líklega margir eftir því þegar Justin Timber lake sýndi heiminum brjóstið á Janet Jackson eða þegar Prince söng Purple Rain í grenjandi rigningu. Í ár kemur Rihanna fram í hálf- leik Ofurskálarinnar og bíða marg- Spennandi sýning í Ofurskálinni Sögkonan Rihanna kemur fram í hálfleik Ofurskálarinnar. Margir velta nú fyrir hverjir muni koma fram með henni. frétta- blaðið/Getty ir spenntir eftir því að sjá hvaða sýningu ofurstjarnan býður upp á. Ýmsar getgátur eru á lofti og telja margir líklegt að Jay-Z muni koma fram með Rihönnu en hann hefur verið kallaður lærifaðir hennar. Fari svo væri ekki ólíklegt að þau myndu taka lagið Umbrella. Kanye West þykir einnig líklegur til að koma fram með Rihönnu og að þau tækju lagið Run This Town eða jafnvel lagið FourFiveSeconds. Fari svo að þau tækju hið síðarnefnda gæti jafnvel Paul McCartney bæst í hópinn. Enn fleira listafólk hefur verið nefnt líklegt til að koma fram með Rihönnu og má þar til dæmis nefna Eminem, Shakiru, Kendrick Lamar og Coldplay. Segja má með vissu að Rihanna töfri fram geggjaða sýningu á sunnudaginn og verður gaman að sjá hverjir munu koma fram með henni. Ofurskálin er sýnd á Stöð 2 Sport2 og hefst upphitun klukkan 22 og leikurinn sjálfur klukkan 23.30. n Heitu súkkulaði Í veðri eins og því sem hefur verið undanfarið er kjörið að hafa það huggulegt heima. Í huggulegheit- unum er svo kjörið að fá sér heitt súkkulaði sem bæði er auðvelt að útbúa og ódýrt. Þú bræðir bara 200 grömm af súkkulaði í bolla af vatni og bætir svo við lítra af hvers kyns mjólk og örlitlu salti. Svo er frábært að setja rjóma út á. n Tónlistarmanninum Romain Collin fannst hann fastur í sköpuninni þegar hann bókaði fjögurra vikna dvöl í sumarhúsi á Íslandi. Hann er kominn aftur og heldur ferna tónleika í Hannesar- holti, þrenna með íslenskum gestum. bjork@frettabladid.is Romain sem er upphaflega frá Frakklandi, er búsett- ur í New York þangað sem hann fór til að mennta sig í tónlist fyrir 15 árum, hann segir borgina sem aldrei sefur óendanlega uppsprettu í tónlistar- og menningarlegum innblæstri. „Við undirbúning nýrrar plötu árið 2019 fannst mér einhvern veg- inn að mér þrengt í djasstónlistar- senunni sem ég var orðinn hluti af. Listsköpun krefst opins huga gagn- vart hinu óþekkta og ókannaða. Það lærði ég með því að spila með hinum mögnuðu Herbie Hancock og Wayne Shorter, sem eru sannir brautryðjendur í tónlist.“ Romain upplifði sig fastan á tón- listarsviðinu og fannst hann þurfa að yfirgefa New York til að nálgast sköpunina frá nýju sjónarhorni. „Ég stóð jafnframt í sambands- slitum og í f lugvél á leið til Los Angeles þar sem ég var að fara að halda píanótónleika, pantaði ég, í algjörri hvatvísi, fjögurra vikna dvöl í bústað rétt fyrir utan Selfoss,“ segir Romain sem vissi ekkert um Ísland en grunaði að það væri góður staður til að týna sjálfum sér um stund. „Þetta varð svo upphafið að epísku ævintýri, en án ævintýra verða engar sögur og án sagna verð- ur engin tónlist.“ Romain kom til landsins í febrúar 2020 í miðjum snjóbyl. „Það var brjálæðislega spennandi. Veturnir á Íslandi eru ótrúlega fallegir. Ég elska kuldann, myrkrið og allt þetta hráa.“ Romain hafði tekið með sér tölu- vert af búnaði til tónlistarsköpunar en hafði af ásettu ráði ekki aðgang að píanói, sínu aðalhljóðfæri. „Fyrsta kvöldið í bústaðnum var ég við tónsmíðar þegar ég fann fyrir löngun til að ganga út fyrir þar sem við mér blöstu rosaleg norður- ljós sem lýstu upp himininn,“ segir Romain en upplifunin varð inn- blástur að laginu Tell the Northern Lights. Hætti við að fara Ævintýrið hélt áfram þegar Covid skall á heimsbyggðina af fullum þunga. „Tveimur vikum eftir að ég kom hingað setti Trump á bann við ferðalögum til og frá Evrópusam- bandinu og gegn eigin vilja keypti ég mér miða til baka. Ég var búinn að pakka og kominn út í bíl þegar ég dró andann djúpt og fann að ég varð að vera áfram. Ég sneri við í bústað- inn og kom græjunum aftur fyrir. Ég tók áhættu enda vissi enginn hvað yrði eða hversu löng dvöl mín yrði hér,“ segir Romain sem var einn í bústaðnum fyrstu sex vikurnar og segir einangrunina hafa verið vissa áskorun. „Einn daginn keyrði ég svo til Víkur þar sem ég gekk inn á Black Sand Beach Suites og eigand- inn bauð mér glæsilega svítu á tómu hótelinu.“ Romain dvaldi þar næstu fjórar vikur en segir eigandann aðeins hafa rukkað sig um nokkrar nætur. „Ég verð ævinlega þakklátur honum fyrir örlætið og vinskapinn. Veran í Vík var dulúðleg reynsla.“ Hefðin í Hannesarholti Eftir veturinn hélt Romain aftur til New York og fór með verkin sem hann samdi hér á landi, í stúdíó. „Þegar því var lokið flaug ég aftur til Reykjavíkur. Í New York var enn mikið um Covid-lokanir en á Íslandi gekk allt nokkuð eðlilega og mig langaði að tengjast betur íslenskri menningu. Vinur minn tengdi mig við trompetleikarann Ara Kárason sem kynnti mig fyrir frábæru tón- listarfólki auk Ragnheiðar Jónsdótt- ur í Hannesarholti þar sem ég hélt nokkra tónleika með Ara, GDRN og Bergi Þórissyni. Tónleikasalurinn þar býr yfir djúpum og hreinum hljómi og Steinway-píanóið þeirra er glæsilegt. Það er alltaf gaman að spila í Hannesarholti og við höfum haldið þeirri hefð í hvert sinn sem ég kem til landsins,“ segir Romain sem nú dvelur í listamannaíbúð á vegum Hannesarholts og heldur þar eins og fyrr segir ferna tónleika í febrúar. Nú í kvöld eru það einleikstónleikar en þann 18. febrúar verður söng- konan GDRN með honum og Viktor Árnason þann 25. n Epískt ævintýri á Íslandi Romain Collin elskar kuldann og myrkrið á Íslandi. fréttablaðið/siGtryGGur ari Það hefur mögulega komið einhverjum áhorf- enda Napóleonsskjalanna sem nú eru sýnd í kvikmyndahúsum á óvart að aðalleikkonan, Vivian Ólafsdóttir, er fjögurra barna móðir. Persónulega varð ég hissa, enda vissi ég ekk- ert um þessa glæsilegu leikkonu sem nú hefur vakið mikla athygli, en viðurkenni alveg að sú staðreynd gerði hana enn meira spennandi í huga mér. Þegar ég svo komst að því að hún væri einstæð fjögurra barna móðir varð ég að vita enn meira. Í viðtali hér í blaðinu segist Vivian hafa fundið fyrir því í leit sinni að hlutverkum sem leikkona, að ein- hverjum finnist það fyrirstaða að hún eigi fjögur börn. Hún hafi aftur á móti tekið þann pól í hæðina að nýta aðstæðurnar sér til framdráttar. Amen, segi ég! Enda sýnir það að hún sé komin á þann stað sem hún nú er, þrátt fyrir aðstæður, magn- aða þrautseigju. Það vitum við öll sem berjumst við að halda lífi í starfsframanum og metnaðinum samhliða heimilishaldi og uppeldi næstu kynslóðar. Einstæðir foreldrar ættu að leggja áherslu á þann stimpil þegar þeir sækja um starf eða stöðuhækkun og atvinnurekendur einmitt að gefa þeim stig fyrir þá staðreynd. Það þarf nefnilega sterkan einstakling til að standa í því einn, sem hannað er sem verkefni fyrir tvo. n Einstæðar ofurhetjur 16 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 11. FEBRúAR 2023 lAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.