Fréttablaðið - 11.02.2023, Side 25
Sama góða form-
úlan en nú fáanleg
með viðbættu melatón-
íni.
Melissa Dream + melatónín
er glæný blanda sem hefur
það að markmiði að hjálpa
þér að ná djúpri slökun
og værum nætursvefni
áhyggjulaus.
Svefn er ein af grunnreglunum
fjórum en nægur svefn er lykillinn
að góðri líkamlegri og andlegri
heilsu. Svefngæði eru forsenda
þess að við náum að sinna dag-
legum verkefnum og að okkur
líði vel í daglegu amstri. Góður
svefn gefur líkamanum jafnframt
tækifæri til að hvílast og endur-
nærast sem styrkir ónæmiskerfi
okkar og stuðlar að góðri heilsu
að viðbættu hollu og fjölbreyttu
mataræði ásamt reglulegri
hreyfingu.
Svefnleysi hefur áhrif á heilsuna
Langvarandi svefnleysi getur
haft margvíslegar afleiðingar á
heilsu okkar og líðan, hormóna-
framleiðsla fer meðal annars úr
jafnvægi sem og hormón sem stýra
hungri og seddu. Við förum því
að sækja meira í sykur og einföld
kolvetni. Að auki fer ónæmiskerfið
að bælast með verri svefngæðum
en í kjölfarið erum við líklegri til
að fá flensur og ýmsa kvilla. Ásamt
því getur svefnleysi einnig haft
víðtæk áhrif á andlegu hliðina sem
getur komið niður á líðan í daglegu
amstri og haft áhrif á verkefni
okkar. Gríðarlega mikilvægt er því
að huga að góðum nætursvefni og
vert er að huga að því hvernig hægt
sé að bæta svefninn.
Hvað getum við gert til að stuðla
að góðum svefngæðum?
Ýmislegt er hægt að gera til að
vinna bug á svefnleysi og öðlast
betri svefn. Eitt það allra mikil-
vægasta er að hafa góða reglu á
svefntímanum og rútínu í kringum
svefn.
Gott er að taka því rólega í tvo
tíma fyrir svefn, lágmarka alla
notkun rafmagnstækja í svefnher-
berginu sem á að vera vel loftað,
myrkvað og hljóðlátt. Að auki er
mikilvægt að takmarka alla sykur-
neyslu, ekki neyta koffíns eftir
klukkan 14 á daginn og stunda
reglulega hreyfingu.
Náttúruleg bætiefni reynast að
auki mörgum gríðarlega vel og er
ekki úr vegi að skoða einstök bæti-
efni frá New Nordic sem geta haft
jákvæð áhrif á svefn og daglegt
amstur, sem fást í tveimur mis-
munandi tegundum, annars vegar
Melissa Dream sem inniheldur
blöndu jurta sem hafa góð áhrif
á svefninn og hins vegar Melissa
Dream með viðbættu melatóníni.
Sofðu betur með Melissa Dream
Melissa Dream er náttúrulegt
bætiefni sem hefur það að mark-
miði að auka svefngæði til muna
en þetta vísindalega samsetta
bætiefni er hannað til að stuðla
að góðum nætursvefni þannig að
við vöknum endurnærð án þess
að finna fyrir sljóvgandi áhrifum
daginn eftir. Melissa Dream inni-
heldur sérvalin innihaldsefni og
er blandan sérstaklega hönnuð
til að veita huganum hvíld og ró
yfir nóttina. Melissa Dream inni-
heldur sítrónumelissu sem hefur
verið notuð í aldaraðir, L-theanine
amínósýru sem og fjölda víta-
mína, svo sem B6-vítamín sem
stuðlar að því að halda reglu á
hormónastarfsemi og B12-vítamín
sem stuðlar að eðlilegri starfsemi
taugakerfisins sem og eðlilegri
sálfræðilegri starfsemi ásamt B1-,
B2-, og B3-vítamínum auk magn-
esíums.
Melissa Dream með melatóníni
Melissa Dream er nú komin í
sömu góðu formúlunni en nú með
viðbættu melatóníni. Melatónín
er hormón sem framleitt er í heil-
anum en það er oft á tíðum kallað
svefnhormón. Melatónín á þátt
í að stilla hina eðlislægu klukku
í kerfinu okkar sem gerir það að
verkum að okkur syfjar þegar
dimma fer og við erum vakandi
þegar bjart er á daginn. Margir
hverjir eiga erfitt með svefn af
ýmsum ástæðum en ýmislegt getur
valdið því að melatónínbúskapur
líkamans fari úr skorðum en því
getur Melissa Dream + melatónín
sem inniheldur 1 mg af melatóníni
verið afar góður kostur og komið
sér vel. Fátt er mikilvægara heilsu
okkar en svefn en þó skal ávallt
hafa í huga að taka ekki stóra
skammta af melatóníni sem getur
haft skaðleg áhrif á heilsuna. n
Fæst í öllum helstu apótekum og
heilsuhillum stórmarkaða.
Betri svefn með Melissa Dream plús-melatóníni
Melissa Dream
með viðbættu
melatónini
gefur betri
svefn.
Kamilla er jurt sem hefur róandi
áhrif og góð áhrif á meltingu, auk
annarra heilsueflandi eiginleika.
Sítrónu melissa hefur einstaklega
róandi áhrif á bæði hug og hjarta,
sem getur stuðlað að betri svefni.
Melissa Dream + Melatónín er glæný
blanda sem hefur það að markmiði
að hjálpa þér að ná djúpri slökun og
værum nætursvefni, áhyggjulaus.
Melissa Dream er náttúrulegt
bætiefni sem hefur það að
markmiði að auka svefngæði
til muna með kamillu, grænu
tei, L-theanine, B-vítamínum
(B1, B2, B6 og B12) og magnesíumi.
Vegan Health
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem eiga erfitt með að
taka upp B12 og járn úr fæðunni og þá sem neyta ekki dýraafurða.
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð og mikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
• Vegan D3 • B12 • Járn & Joð
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 11. febrúar 2023