Fréttablaðið - 11.02.2023, Qupperneq 28
Skatturinn leitar að áhugasömu, jákvæðu og drífandi fólki til sumarstarfa
á starfsstöðvum sínum á höfuðborgarsvæðinu, í Keflavík, á Akureyri og á
Austurlandi á tímabilinu frá 1. júní – 31. ágúst 2023.
Um fjölbreytt störf er að ræða á hinum margþættu sviðum Skattsins.
Kynntu þér störfin sem eru í boði á:
skatturinn.is/um-rsk/laus-storf/ eða á starfatorg.is.
Fjölbreytt sumarstörf
hjá Skattinum
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Gildi Skattsins eru fagmennska – framsækni – samvinna.
Sérfræðingur við þjóðlendurannsóknir
Laust er til umsóknar starf 1-2 sérfræðinga við þjóðlendurannsóknir í fageininguna fræðsla og rannsóknir hjá Þjóðskjalasafni
Íslands. Starfið er tímabundið til tveggja ára, með möguleika á framlengingu.
Frekari upplýsingar um starfið
Umsókn um starfið þarf að fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Við ráðningu er tekið mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns og við hvetjum einstaklinga óháð kyni til að sækja um stafið.
Umsóknin gildir í 6 mánuði eftir að umsóknarfrestur rennur út. Þjóðskjalasafn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Starfshlutfall er 100%. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar nk. Æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Sótt er um starfið á starfatorg.is
Nánari upplýsingar veita Þuríður Árnadóttir framkvæmdastjóri rekstrar, thuridur.arnadottir@skjalasafn.is og
Ólafur Arnar Sveinsson fagstjóri olafur.a.sveinsson@skjalasafn.is – s. 590 3300.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst einkum í vinnu við gagnaöflun, skjalarannsóknir,
uppskriftir á skjölum með eldri skrift, efnisskráningu í gagna-
grunna, úrvinnslu heimilda, afgreiðslu fyrirspurna og öðrum
verkefnum sem tengjast jarðamálum.
Gagnaöflunin er háð starfi óbyggðanefndar, sjálfstæðrar
úrskurðanefndar á stjórnsýslustigi sem starfar á grundvelli III.
kafla þjóðlendulaga.
Hlutverk óbyggðanefndar er að skera úr um mörk þjóðlendna og
eignarlanda, mörk hluta þjóðlendna sem nýttar eru sem afréttir
og að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna.
Unnið er með teymi starfsfólks í verkefnum. Viðkomandi tekur
eftir atvikum þátt í öðrum verkefnum Þjóðskjalasafns.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Gerð er krafa um BA próf í sagnfræði eða skyldum greinum,
menntun í skjalfræði er æskileg.
• Þekking og reynsla af skjalasöfnum og rannsóknarvinnu er nauðsynleg.
• Þekking og reynsla í lestri og uppskrift skjala fyrri alda er
æskileg.
• Þekking og reynsla af frágangi og skráningu skjalasafna er æskileg.
• Góð kunnátta í algengum notendaforritum er brýn.
• Góð kunnátta í íslensku er nauðsynleg.
• Kunnátta í ensku er áskilin og færni í einu Norðurlandamáli er
æskileg.
• Hæfni og reynsla af að vinna í hópi og undir álagi.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi samskiptahæfni
er áskilin.
• Skipulögð vinnubrögð og frumkvæði.
Þjóðskjalasafn Íslands
Laugavegi 162
105 Reykjavík
S. 590-3300
www.skjalasafn.is
RITHÖFUNDASAMBAND ÍSLANDS
auglýsir starf verkefnastjóra
Rithöfundasamband Íslands auglýsir eftir verkefnastjóra
í hlutastarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Umsjón og stýring á verkefninu Skáld í skólum
• Umsjón með heimasíðu, samfélagsmiðlum, fjölpóstum og fleira
• Skipulag og vinna við margvísleg verkefni á vegum RSÍ, svo sem ýmis umsýsla og samskipti í þágu samtakanna.
• Almenn skrifstofustörf.
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Innsýn, þekking og áhugi á starfsumhverfi og réttinda-
málum höfunda og bókmenntum almennt
• Mjög góð íslenskukunnátta auk færni og góðrar kunnáttu
í ensku og einu Norðurlandamáli
• Mjög góð færni og þekking á ritvinnslu, töflureikni og
vefumsýslukerfum
• Þekking reynsla og hæfi í textaskrifum og miðlun upp-
lýsinga
• Skipulagshæfileikar, nákvæmni, frumkvæði og metnaður
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og framúrskarandi samskipta-
hæfni er áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Starfshlutfall er 70 – 80%. Verkefnastjóri heyrir undir
framkvæmdastjóra.
Starfsferilskrá og kynningarbréf (1 bls) þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni
viðkomandi í starfið, skal senda á netfangið rsi@rsi.is
merkt verkefnastjóri.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf á vormánuðum.
Umsóknarfrestur er til og með 21. febrúar 2023
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri rsi@rsi.is
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR