Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 31
Tæknimál og innri þjónusta Skattsins
Starf sérfræðings á tæknisviði sem sinnir innri tækniþjónustu og tölvuumhverfi Skattsins
er laust til umsóknar. Skatturinn rekur öflugt tæknisvið þar sem fjölbreyttum verkefnum er
sinnt til að tryggja hnökralaus stafræn samskipti milli viðskiptamanna og Skattsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstur og viðhald á vél- og hugbúnaði
Notendaaðstoð
Þátttaka í þróun tækniumhverfis
Umsjón og rekstur tölvukerfa Skattsins, þ.m.t. eftirlits-, aðgangs-og öryggismál
Þátttaka í vaktakerfi vélbúnaðardeildar
Menntun og reynsla
Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tölvunarfræði eða kerfisfræði
Reynsla af kerfisstjórn, netrekstri og notendaaðstoð er æskileg
Þekking á Microsoftlausnum þ.á m. 365
Reynsla af samskiptakerfum (s.s. símkerfi og fjarfundabúnaði)
Þekking á miðlægum búnaði er æskileg
Hæfni
Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Metnaður og framsækni
Geta til að vinna undir álagi
Önnur reynsla sem nýtist í starfi
Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jens Þór Svansson, sviðsstjóri, í síma 442-1000 eða á póstfangið
jens.th.svansson@skatturinn.is
Rekstur og viðhald tollakerfa
Starf sérfræðings á tæknisviði sem sinnir rekstri, viðhaldi og þróun tollakerfa Skattsins er
laust til umsóknar. Skatturinn rekur öflugt tæknisvið þar sem fjölbreyttum verkefnum er
sinnt til að tryggja hnökralaus stafræn samskipti milli viðskiptamanna og Skattsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
Notendaþjónusta
Verkefnastýring upplýsingatækniverkefna á sviði tollamála
Þátttaka í viðhaldi, þróun og breytingum á tollakerfum
Menntun og reynsla
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði, kerfisfræði eða verkfræði
(lágmarksmenntun er bakkalár gráða)
Þekking á rekstri hugbúnaðarkerfa, gerð þeirra og góð kunnátta á algengasta skrifstofuhugbúnaði
Hæfni
Gott vald á íslensku í töluðu og rituðu máli
Rík þjónustulund, jákvæðni og góðir samskiptahæfileikar
Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Metnaður og framsækni
Reynsla og færni af teymisvinnu
Geta til að vinna undir álagi
Önnur reynsla sem nýtist í starfi
Hreint sakavottorð
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðni Ólafsson, deildarstjóri, í síma 442-1000 eða á póstfangið
gudni.olafsson@skatturinn.is
———
Sótt er um störfin á skatturinn.is eða starfatorg.is. Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar
upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir, þarf að fylgja með svo
umsókn teljist fullnægjandi. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni
í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi
starfa. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi
stéttarfélag hafa gert.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. febrúar og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun hefur
verið tekin um ráðningu.
Laus störf á tæknisviði Skattsins
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
skatturinn.is
Gildi Skattsins eru fagmennska – framsækni – samvinna.
Við
leiðum
fólk
saman