Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 58

Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 58
Ég setti nálina aftur og aftur og aftur á þetta sama lag. Ég fríkaði út, ég var orðinn húkkt. Þetta fólk var búið að ná mér. The moment I wake up. Before I put on my makeup … dadada- dada. Öll uppáhalds lögin þín eru eftir Burt Bacharach var löngu orðinn goðsögn í lifanda lífi og lögin hans munu tryggja að svo verði áfram um aldir alda. Amen. Enda var maðurinn algert færiband sem dældi út melódískum smellum af fádæma öryggi. Fréttablaðið/Getty Dionne Warwick og Burt Bacharach alveg upp á sitt besta í gúddí fílíng í hljóðveri í London í nóvember 1964. Fréttablaðið/Getty Burt Bacharach „Burt Bacharach er búinn að semja öll uppáhalds lögin þín og þú hefur ekki hugmynd um það,“ segir Páll Óskar sem að öllum ólöstuðum hlýtur að mega teljast ákafasti og einlægasti aðdáandi meistara popp- melódíu 20. aldarinnar sem lést í vikunni. odduraevar@frettabladid.is toti@frettabladid.is Bandaríska tónskáldið Burt Bach- arach var 94 ára þegar hann lést á miðvikudaginn en engin hætta er á öðru en að minning hans muni lifa um ókomna tíð í þeirri löngu halarófu sígildra laga sem hann skilur eftir sig en 73 þeirra náðu inn á á topp 40 í Bandaríkjunum og 52 í Bretlandi. „Þeir sem þekkja til og hafa stúderað þetta vita alveg að við getum talað um stóru B-in þrjú; Bítlana, Beach Boys og Burt Bach- arach,“ segir tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson sem er sjálfsagt ákafasti aðdáandi Bach- arachs á landi hér og þótt víðar væri leitað. „Þetta fólk samdi, bjó til, gaf út og markaðssetti popptónlist eins og við hreinlega þekkjum hana í dag. Þetta var fólkið sem bjó til „blueprintið“ að poppi og bara kenndi okkur hinum hvernig á að gera þetta.“ Heilaga þríeykið Bacharach vann sex sinnum til Grammy-verðlauna og hampaði auk þess þremur Óskurum fyrir besta kvikmyndalagið en ferill hans tók flugið fyrir alvöru 1957 þegar leiðir hans og textaskáldsins Hal Davids lágu saman í New York. Þegar söngkonan Dionne Warwick kom síðan til sögunnar og gaf tón- smíðum þeirra vængi fór þríeykið beinlínis með himinskautum. „Þetta er uppáhalds lagahöf- undurinn minn í lífinu. Það kemur enginn annar lagahöfundur í stað- inn fyrir hann og það er enginn textahöfundur að fara að koma í staðinn fyrir Hal David, félaga hans. Hal er líka farinn þannig að núna er Dionne Warwick ein eftir af þessu heilaga þríeyki sem vann svona gríðarlega mikla vinnu, sér- staklega á árunum 1960 til 1970.“ Walk on By Flest þau sem komin eru til einhvers vits og ára eiga líklega sitt uppáhalds Bacharach-lag og þótt af nógu sé að taka vefst sú spurning ekki fyrir Palla. „Já. Walk on By stendur upp úr, einfaldlega vegna þess að þegar ég heyrði Dionne Warwick fyrst syngja þetta af vínylplötu gerist eitt- hvað innra með mér,“ segir Palli og hverfur á vit ljúfrar minningar. „Árið var 1989 og var klukkan fjögur að morgni á bjartri nóttu í júní þegar ég lá á stofugólfinu heima hjá mér, nýbúinn að kaupa Dionne Warwick Greatest Hits. Ég vissi ekk- ert hvað ég var að kaupa. Ég var bara forvitinn. Walk on By var lag númer fjögur og þarna gerist eitthvað innra með mér. Ég setti nálina aftur og aftur og aftur á þetta sama lag. Ég fríkaði út, ég var orðinn húkkt. Þetta fólk var búið að ná mér og ég er búinn að vera í liði með því síðan.“ Palli bætir við að taka þurfi skýrt fram að Dionne Warwick, sem er frænka Whitney Houston, sé hirð- söngkona Burt og Hals. „Í rauninni eru lögin oftar en ekki samin beint ofan í hana, eða þá að það er Dionne sem tekur upp bestu útgáfuna af hverju lagi fyrir sig.“ Óhræddar frænkur Palli minnir síðan á að það hafi tekið Bacharach mörg ár að hefja s ig til f lugs og það sé ekki á allra vitorði að hann var búinn að ströggla í áratug áður en hann fann Warwick. „Ég er búinn að stúd- era þennan katalóg hjá honum og hvað var í gangi þarna þessi tíu ár á undan. Þar kennir ýmissa grasa og hann gafst ekki upp. Hann er á hverjum einasta degi við píanóið að semja og reyna að koma lögunum út.“ Palli segir alls konar söngvara hafa sungið alls konar lög eftir hann á þessum árum. Jafnvel lög sem pössuðu þeim ekki beinlínis. „En svo mætir Dionne Warwick svona rosalega músíkölsk og það var eins og hún gæfi lögunum líf,“ segir Palli og bendir á að Dionne hafi, rétt eins og Whitney frænka hennar síðar, gefið lögum líf með góðu valdi á söngrödd sinni. „Þótt lagasmíðarnar væru flóknar þá var Dionne aldrei hrædd við þessi lög. Alveg eins og Whitney. Hún var aldrei hrædd við lögin, það voru lögin sem voru hrædd við hana. Báðar sungu þær lögin aldrei eins og gátu alltaf fundið einhverja nýja f leti á þessu þannig að það varð alltaf nýtt og nýtt listaverk til í hvert sinn sem lagið var f lutt. Og þetta elskaði Burt.“ LagahöfundurINN Palli telur í þessu sambandi einn- ig rétt að minna á að Bacharach hafi verið ofvirkur og haldinn full- komnunaráráttu. „Hann svaf bara í fjóra tíma á dag. En það er líka ástæðan fyrir því að hann kemur þetta mörgum lögum inn á topp 100 listann á þessu brjálaða tíu ára tímabili sem klárast sirka 1972. Ég held að Burt Bacharach sé lagahöfundurINN, sem átti metið í „chart entries“, hvernig svo sem maður segir það á íslensku.“ Palli segist telja sænska lagahöf- undinn Max Martin vera búinn að slá metið en hann hafi byrjað að saxa á Bacharach þegar hann by r jaði að v inna með Britney Spears. „ Og Back street Boys og öllu þessu. Núna er Max Martin búinn að semja lög fyrir gjörsamlega alla í heiminum, en Burt var eins og Max Martin og allir söngvarar biðu í biðröð eftir lögunum hans og rifust um að fá að syngja þau.“ Tékkið á Dionne Warwick Palli hvetur áhugasöm til þess að fara á Spotify og sökkva sér ofan í tónsmíðar Bacharachs og passa að slá nafn Dionne Warwick rétt í leitargluggann. „Tékkið á Dionne Warwick, tékkið á Dusty Spring- field, tékkið á Carpenters, tékkið á Elvis Costello og tékkið svo líka á honum sjálfum. Hann tók nefnilega upp oftar en ekki „instrumental“ útgáfur af öllum sínum lögum sjálfur, í eigin nafni, í eigin mætti og það er svo eins og við manninn mælt að hans útsetningar, hans upptökur og hans „pródúk- sjón“ voru alltaf bestar og flottastar. Margir hafa reynt en það toppar enginn þennan töffara. Þetta er svo brjálæðislega mikið og fólk kveikir ekki á því. Þetta er samtímamaður Bítlanna og Bítlarnir litu upp til hans. Þú getur í rauninni sagt að Burt Bacharach sé búinn að semja öll uppáhalds lögin þín og þú hefur ekki hugmynd um það,“ segir Palli og bætir við, áður en hann brestur í söng, að fólk átti sig ekki á þessu fyrr en hann byrji að syngja fyrir það: „The moment I wa ke u p. Before I put on my makeup  … dadadadada.“ n Burt og Hal með Óskarana fyrir Raindrops Keep Falling on my Head. Fréttablaðið/ Getty Páll Óskar er einn dyggasti aðdáandi Burts Bacharachs. Fréttablaðið/Valli 38 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 11. FeBRúAR 2023 lAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.