Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 64

Fréttablaðið - 11.02.2023, Síða 64
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 Óttars Guðmundssonar bakþankar | Ég hef aldrei borið mikla virðingu fyrir Alþingi Íslendinga enda fylgst lengi með störfum þess. Einu sinni var ég reyndar í framboði til þings en náði ekki langt sem betur fer. Brennu Njáls saga er kennslubók í lögum og lagaflækjum. Í stærstu deilumálum sögunnar söfnuðu andstæðar fylkingar liði lögmanna sem barðist með lagakrókum. Fræg eru viðskipti þingmanna í eftir- málum brunans að Bergþórshvoli. Þórhallur Ásgrímsson hrl. (nemandi Njáls) fylgdist grannt með útúrsnúningum og óheiðar- leika lögspekinganna í því máli. Hann var ekki fótafær sakir ígerðar og veikinda. Þegar lögmannabullið náði hámarki spratt hann upp og stakk á ígerðinni og varð alheill. Hann hraðaði sér á þingstaðinn og batt enda á þvæluna með röggsemi og ákveðni. Síðustu viku hefur ríkt upp- lausnarástand á Alþingi við Austur- völl. Nokkrir þingmenn, uppfullir af eigin mikilvægi, hafa haldið uppi málþófi með endalausu ræðuhaldi. Hver mannvitsbrekkan á fætur annarri hefur haldið yfir 100 (!!) ræður. Aðrir þingmenn hafa sýnt þessu fjasi lítinn áhuga og ekki mætt á þingfundi. Þetta fólk er þó á ágætum launum frá almenningi í þessu leikhúsi fáránleikans. Á sama tíma og samfélagið ólgar af verk- föllum og málaferlum og vaxta- hækkunum rífast raunveruleika- firrtir þingmenn við sjálfa sig. Enginn Þórhallur Ásgrímsson er í sjónmáli til að stöðva þessa enda- leysu. Egill afi minn hefði kastað silfri yfir þingheim til að sjá þennan hégómlega hóp fara að slást. Hefðu kosningarnar 1987 farið öðru vísi hefði ég kannski orðið þessi maður sem bjargaði þinginu úr trölla- höndum. Maður á mínum aldri má láta sig dreyma. n Málþóf Sparaðu tíma og gerðu einfaldari innkaup á netto.is © Inter IKEA System s B.V. 2023 Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is Markaðstorg til sunnudags Komdu og upplifðu sannkallaða markaðsstemningu á sjálfsafgreiðslu- lagernum þar sem þú getur gert frábær kaup á fjölbreyttu úrvali af smávörum og húsgögnum! Sparaðu tímann og gerðu einfaldari innkaup á netto.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.