Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 16
Þröstur Leó Gunnarsson er
einn ástsælasti leikari þjóðar-
innar. Hann hefur glímt við
mikinn kvíða eftir sjóslys sem
hann lenti í árið 2015 en í slys-
inu trúði hann því að hann
myndi deyja. Þröstur hefur
síðan þá lært að ná ákveðnum
tökum á kvíðanum.
Ég er frá Bíldudal og þar var
frábært að alast upp. Þetta
er góð stærð á stað og allir
þekkja alla. Við vorum átta
í mínum bekk, fjórar stelp-
ur og fjórir strákar, algjör draumur,“
segir leikarinn Þröstur Leó Gunn-
arsson.
„Fólk á mínum aldri sem ólst upp
í Reykjavík á minningar um nýbygg-
ingar þar sem þau klifruðu og léku
sér, við vorum skríðandi upp um
fjöll og lékum okkur í sjónum. Ýttum
okkur á ísjökum og stálum bátum til
að róa út,“ segir Þröstur.
„Mamma og pabbi voru bara í
vinnunni og við gerðum alls konar
svona hluti, það vissi enginn hvar
við vorum þegar við vorum lítil og
við vorum að róa út þegar það var
brjálað veður, þetta hefði vissulega
getað farið verr,“ segir hann og hlær.
Þröstur var ungur þegar hann fór
fyrst á sjóinn, síðan þá hefur sjó-
mennska átt stóran þátt í lífi hans
rétt eins og leiklistin. „Ég byrjaði á
sjónum þegar ég var unglingur. Var í
beitingum og svona og svo sumarið
þegar ég var sextán ára var ég í sigl-
ingum, ég sigldi til Hull.“
Hann segir að sér hafi liðið eins og
hann væri orðinn fullorðinn þegar
hann hóf að sigla. „Ég man að frændi
minn var um borð og hann var bara
fimmtán ára. Pabbi hans sagði við
mig: Þú passar Sævar fyrir mig. Ég
sagði bara já og gerði það eins og ekk-
ert væri eðlilegra,“ segir hann.
„Svo var svo geggjað að koma til
útlanda. Þarna gat maður bara farið
inn á bar og keypt sér bjór og fannst
maður svo fullorðinn.“
Nýtur sín fyrir vestan
Þröstur ólst upp með foreldrum
sínum og fimm systkinum, fjórum
bræðrum og einni systur. „Elsti bróð-
ir minn dó þegar hann var 58 ára,
hann fékk hrörnunarsjúkdóm svo
nú erum við fimm eftir,“ segir hann.
„Það var frábært að hafa eina
stelpu, hún hjálpaði mömmu mikið
að sjá um okkur strákana, það var svo
næs. Hún hjálpaði mömmu að svæfa
okkur á kvöldin og gefa okkur að
borða og allt það,“ bætir Þröstur við.
Móðir Þrastar var ljósmóðir og
þurfti því oft að hlaupa til þegar
konur voru að fæða á svæðinu.
„Hún var kölluð út á öllum tímum
sólarhringsins og var því ekki alltaf
heima,“ segir hann.
„Áður en hún lærði að vera ljós-
móðir var engin ljósmóðir á svæðinu.
Svo einn daginn kom einhver maður
til afa í sveitina og spurði hvort hann
ætti ekki stelpu sem gæti orðið ljós-
móðir. Afi sagðist eiga nokkrar en
benti manninum á að tala við þá
sem væri að taka á móti lambi úti í
fjárhúsi,“ rifjar hann upp.
„Það var mamma og hún var til í
þetta en var of ung til að fara í námið
og þurfti að fá undanþágu. Hún var
bara átján ára þegar hún kom úr
náminu og ég held að hún sé yngsta
ljósmóðir sem hefur útskrifast,“ segir
Þröstur og aðdáunin leynir sér ekki.
Hann lýsir því hvernig móðir hans
þurfti að fara bæja á milli í hvernig
veðri sem var. „Stundum þurfti hún
meira að segja að fara á báti og eitt
sinn strandaði báturinn í brjáluðu
veðri og miklu myrkri á Þorláks-
messu og það var ekkert víst að þau
kæmust á leiðarenda, hún lenti í alls
konar svona,“ segir hann.
Móðir hans býr enn þá fyrir vestan
og er orðin 92 ára gömul. Þröstur
heimsækir hana reglulega og nýtur
þess að vera fyrir vestan. „Ég á lítið
hús þarna, alveg niðri í fjöru og ég er
mikið þar á sumrin, finnst það alveg
frábært,“ segir hann.
„Pabbi gaf mér þetta hús og þá
Þröstur Leó fór
með hlutverk
Mikka refs í Dýr-
unum í Hálsa-
skógi árið 2003.
Fréttablaðið/ÞÖK
Hafði á
tilfinningunni
að eitthvað
kæmi fyrir
var það bara lítill kofi, bróðir hans
málaði mikið af myndum þarna og
annar bróðir hans bjó svo í húsinu,
síðan stóð það autt þar til ég byggði
ofan á það og stækkaði. Nú er það
æðislegt.“
Slysaðist í leiklist
Þegar Þröstur var aðeins 19 ára
eignaðist hann sitt fyrsta barn, þá
stundaði hann nám í Leiklistar-
skólanum.
Hvernig kom það til að sjómaður
að vestan endaði í leiklist?
„Ég ætlaði fyrst að vera bif-
vélavirki og f lutti suður með vini
mínum og fór í Iðnskólann, við gáf-
umst þó upp eftir eina önn og flutt-
um aftur vestur og ég fór á sjóinn. En
mamma var alveg til í að losna við
mig þarna og hvatti mig til að fara
á leiklistarnámskeið,“ segir Þröstur.
Hann hlu st aði auðv it að á
mömmu sína og f lutti til Reykja-
víkur þar sem hann leigði með
bróður sínum og vann í skreið í
Hafnarfirði en var á leiklistarnám-
skeiðinu á kvöldin. „Þetta var nám-
skeið hjá Helga Skúlasyni leikara.
Allir hinir voru að fara að sækja um
í Leiklistarskólann, þarna vissi ég
ekki einu sinni að það væri til svo-
leiðis skóli en Helgi hvatti mig til að
sækja um og sagðist ætla að hjálpa
mér,“ segir Þröstur.
Í fyrstu leist honum ekkert á
það, sagði nei við Helga, en eftir
mikla hvatningu samþykkti hann
að sækja um. „Það voru einhvern
veginn allir að peppa mig í þetta
og aðstoða mig, vildu að ég myndi
prófa. Ég vissi ekkert hvað ég var að
gera, rataði ekki einu sinni á skrif-
stofuna til að skila umsókninni en
bróðir minn hjálpaði mér með það,“
segir hann og hristir hausinn.
Þrátt fyrir mikla aðstoð og leið-
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
sögn frá Helga og bróður sínum
bjóst Þröstur ekki við að komast
inn. „Það hvarf laði ekki að mér,“
segir hann.
Það fór þó þannig að hann komst
inn og útskrifaðist árið 1985. „Ég
eignaðist tvo góða vini í inntöku-
ferlinu og við vorum alltaf saman.
Fórum saman að sækja umslögin
með svörunum um það hvort við
kæmumst inn eða ekki. Það munaði
reyndar litlu að ég hefði klúðrað
því,“ segir Þröstur en þegar hann
kom á skrifstofu skólans að sækja
svarbréfið var ekkert bréf merkt
með nafninu hans.
„Ég skrifaði svo illa að ég klúðr-
aði því næstum að komast inn í
skólann. Það kom svo í ljós að það
var umslag sem á stóð Þórður Gunn-
arsson og það var mitt,“ segir hann.
Hræðilegt flugslys
Þremenningarnir opnuðu umslögin
saman á tröppum Alþingishússins,
Þröstur komst inn en vinir hans
ekki. Þeir fóru síðar til leiklistar-
náms í Bandaríkjunum en stuttu
síðar lést annar þeirra í f lugslysi.
„Það var alveg hræðilegt,“ segir
Þröstur. „Þeir fóru þarna út og komu
heim um sumarið. Hann hét Axel og
bróðir hans var að flytja til útlanda.
Fjölskyldan hans leigði flugvél til að
koma honum í Norrænu, svo verður
þetta slys þegar þau eru á leiðinni
heim og þau komust aldrei á leiðar-
enda. Þetta var virkilega sorglegt,“
segir Þröstur.
16 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
lAUgARDAgUR