Fréttablaðið - 18.02.2023, Síða 18
Það sem ég
reyni að
gera er að
reyna að
nota þína
peninga
rétt, gera
flott brúð-
kaup úr
því „bud-
geti“ sem í
boði er.
Fólk er að
borga fyrir
það að
minnka
stress, að
hafa ein-
hvern til að
slökkva
þessa elda
sem geta
kviknað og
standa fyrir
þeirra
gildum.
Alina Vilhjálmsdóttir hefur
það að atvinnu að skipuleggja
brúðkaup. Hún segir að æ
fleiri séu tilbúnir til að greiða
fyrir aðstoð við brúðkaups
undirbúninginn og þannig
minnka þá streitu sem getur
fylgt stóra deginum.
Við erum ekki mörg hér
á Íslandi sem leggjum
áherslu á innlendan
markað,“ segir brúð
kaupsskipuleggjandinn
Alina Vilhjálmsdóttir.
„Það er algengt að fólk komi
hingað til Íslands til að gifta sig og
mörg þeirra hafa þá brúðkaups
planara en það hefur ekki verið eins
algengt með Íslendinga en nú er það
að breytast,“ segir hún.
Alina vann lengi í tölvuleikjaiðn
aðnum en þegar hún missti vinnuna
árið 2020 ákvað hún að snúa blað
inu við og gerast brúðkaupsskipu
leggjandi. „Þarna var ég sjálf frekar
nýbúin að gifta mig og ákvað að
stofna mitt eigið fyrirtæki og helga
mig þessu,“ segir hún en fyrirtækið
hennar ber heitið Og smáatriðin.
Nafnið segir hún hafa komið til
þegar hún skipulagði sitt eigið brúð
kaup og hugsaði út í hvert einasta
smáatriði. „Um leið og ég og maður
inn minn vorum trúlofuð fór ég að
hugsa um það hvernig ég vildi hafa
mitt eigið brúðkaup,“ segir Alina
en hún er gift Þorvarði Bergmann
Kjartanssyni.
„Við vorum frekar ung þegar við
giftum okkur en við höfðum verið
saman lengi, alveg frá því að ég var
18 ára og hann 19,“ segir Alina sem
verður þrítug eftir tvær vikur.
„Við vorum saman í bústað að
fagna fimm ára sambandsafmæl
inu okkar og sátum í sófanum að
gefa hvort öðru gjafir. Ég hafði verið
að reyna að grenna mig, sem fylgir
sögunni af því að ég gaf honum úr
en hann gaf mér fullan kassa af
nammi,“ segir Alina og hlær.
„Ég var þarna líka búin að ákveða
að hætta að kvarta og vera ánægð
með það sem ég fékk og ég nennti
alls ekki að rífast yfir þessu en svo
þegar ég leit upp úr nammikassan
um var hann með hringinn og bað
mín,“ segir hún.
„Ég sagði strax já en hann var
greinilega ekki búinn að hugsa þetta
til enda, veit ekki hvernig þetta hefði
farið ef ég hefði orðið brjáluð yfir
namminu,“ segir Alina og skellihlær.
Með mótaðar hugmyndir
Þorvarður og Alina giftu sig árið
2019 og líkt og hún segir einbeitti
hún sér að hverju einasta smáatriði.
„Ég var með mjög mótaðar hug
myndir um það sem ég vildi og ég
vildi að hvar sem einhver myndi
taka mynd þá væri umhverfið fal
legt, ég var mjög djúpt í svona pæl
ingum,“ segir Alina.
Hún segist hafa notið þess að
skipuleggja brúðkaupið sitt sjálf og
að þar hafi hún fengið áhuga á því að
aðstoða fólk í sömu sporum. „En það
var ekki bara það. Ég fékk aðstoð hjá
stelpu sem þarna rak Iðnó þar sem
við giftum okkur og ég hefði ekki
getað gert þetta án hennar, ég hefði
verið til í meiri aðstoð.“
Alina segist eftir brúðkaupið hafa
getað hugsað sér að vinna við að
aðstoða fólk við brúðkaupsplön.
„Það er svo gott fyrir fólk að geta
fengið aðstoð og að það sé einhver
sem grípur boltann ef það klikkar
eitthvað,“ segir hún og tekur dæmi
úr sínu eigin brúðkaupi.
Það var planið að athöfnin færi
fram utandyra í Heiðmörk. Þar átti
að setja upp stóla fyrir gestina og
píanó. „Svo kom bara rigning sem
varði allan daginn, eða þangað til
athöfnin átti að hefjast. Það var
ekkert hægt að setja neitt upp svo
við þurftum bara að breyta öllu,“
segir hún.
Langar að bæta brúðkaupsbransann
Alina segir
algengast að
fólk greiði sjálft
fyrir brúð-
kaupið sitt, hér
sé ekki algengt
að foreldrar
brúðarinnar eða
brúðgumans
greiði fyrir
brúðkaupið.
Fréttablaðið/
sigtryggur ari
Alina og Þorvarður giftu sig árið 2019. Mynd/El PhotograPhy
Alina leggur mikla áherslu á öll
smáatriði. Mynd/El PhotograPhy
Þarna segir Alina hafa verið mjög
gott að vera með aðstoðarmann
eskju. „Hún bara græjaði þetta. Ég
og vinkonur mínar vorum á efri
hæðinni í Iðnó að taka okkur til.
Hún fann bara annan stað fyrir
okkur, skellti upp stólum og græjaði
allt.“
Spurð að því hvort að fólk sé til
búið að greiða fyrir þá þjónustu
sem hún veiti segir Alina svo vera.
„Það er alltaf að verða algengara og
algengara,“ segir hún.
„Fólk er að borga fyrir það að
minnka stress, að hafa einhvern
til að slökkva þessa elda sem geta
kviknað og standa fyrir þeirra
gildum,“ segir hún.
„Á brúðkaupsdaginn sjálfan er ég
nánast bara klón af brúðhjónunum.
Ég geri það sem þarf að gera og tala
máli brúðhjónanna svo þau geti
bara mætt og skemmt sér, þurfi ekki
að vera gestgjafar í sínu eigin brúð
kaupi. Það er svo leiðinlegt að þurfa
að vera að huga að öllu sem getur
komið upp á af því þetta líður svo
hratt og brúðkaup kosta auðvitað
mikið,“ segir Alina.
Dýrt að gifta sig
Spurð að því hversu mikið brúð
kaup getur kostað segir Alina það
afar misjafnt. Kjörið væri þó fyrir
fólk að safna sér þremur millj
ónum fyrir deginum. Hún segir að
það dýrasta við brúðkaupið séu
gestirnir. „Það segir sig sjálft að ef
þú átt kannski milljón til að halda
brúðkaup þá munar mikið um hvort
hún deilist niður á 100 gesti eða 200
gesti,“ segir hún.
„Ég veit að mann langar að bjóða
öllum, en ef „budgetið“ er ekki
mikið þá mæli ég með því að fækka
gestunum,“ bætir hún við.
Hún segir töluna fljóta að hækka
með hverjum gesti. Áætla megi í það
minnsta tvo til fjóra drykki á mann,
matur kosti um 5.0007.000 kr. á
mann að meðaltali og bara blóma
skreytingar geti hæglega farið upp í
200400 þúsund.
„Ég veit um dæmi þar sem fólk var
með opinn bar og reikningurinn fór
upp í tvær milljónir,“ segir hún.
Alina segir þó hægt að skipuleggja
brúðkaup út frá fjárhag hvers og
eins. Hún bjóði upp á ólíka pakka
við skipulagninguna, allt frá því
að fylgja brúðhjónunum frá fyrsta
degi og sjá um allt frá aö til þess að
leiðbeina þeim sem vilja að mestu
skipuleggja brúðkaupið sjálf.
„Það sem ég reyni að gera er að
reyna að nota þína peninga rétt,
gera flott brúðkaup úr því „budgeti“
sem í boði er. Kannski leigja hluti í
stað þess að kaupa þá, nota kerti í
staðinn fyrir blóm eða hvað sem er.
Bara hjálpa þér að móta þína sýn og
uppfylla,“ segir hún.
„Svo er ég fljótlega að fara af stað
með brúðkaupsnámskeið þar sem
fólk getur komið og fengið tólin til
að gera þetta sjálft,“ segir Alina, sem
einnig er með hlaðvarp þar sem hún
ræðir við fjölbreytt fólk í brúðar
bransanum og hin ýmsu brúðhjón.
„Markmiðið mitt frá því að ég hóf
þetta ferðalag hefur alltaf verið að
lyfta upp þessum bransa og gera
hann eins geggjaðan og hann getur
verið og ég er spennt að fá tækifæri
til að gera það áfram,“ segir Alina.
„Mig langar að gera brúðkaups
bransann betri,“ segir hún að
lokum. n
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
18 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 18. FeBRúAR 2023
lAUgARDAgUR