Fréttablaðið - 18.02.2023, Qupperneq 40
Hver sem er ætti að
geta notið sín í
kynlífi og við viljum
bjóða upp á vörur sem
stuðla að því.
Ásdís Bjarkadóttir
Ásdís Bjarkadóttir og Katla
Sif Friðriksdóttir festu kaup
á netversluninni lovisa. is
undir lok síðasta árs en
verslunin sérhæfir sig í sölu
á hágæða unaðsvörum og
fatnaði.
Spurð hvernig það hafi komið til að
þær ákváðu að kaupa lovisa.is og
hvort þær hafi eitthvað þekkt til í
þessum bransa áður en að kaup-
unum varð segir Katla:
„Þetta féll svolítið upp í hend-
urnar á okkur. Við þekktum aðeins
til fyrri eigenda og fréttum af því
að til stæði að selja fyrirtækið. Við
ræddum aðeins okkar á milli hvort
þetta væri eitthvað sem við ættum
bara að kýla á. Hvorugri okkar
hefði getað dottið í hug að lífið tæki
þessa stefnu en lífið fer víst stund-
um út fyrir þægindarammann svo
við stukkum á tækifærið.“
Hvernig hafa þessir fyrstu mán-
uðir verið?
„Fyrstu mánuðirnir voru frekar
strembnir að því leytinu til að við
tökum við á annasamasta tíma net-
verslana, rétt fyrir Singles day, Black
Friday og jólatörnina en þetta var
mjög lærdómsríkur tími og búum
við klárlega að þeirri reynslu að
hafa stokkið svona beint út í djúpu
laugina,“ segir Katla.
Er lovisa.is eingöngu vefverslun?
„Já, við höfum ákveðið að vera
eingöngu með netverslun þar sem
okkur finnst framtíðin klárlega
liggja þar og fylgjumst spenntar
með stafrænni framþróun í
verslunargeiranum. Með
þessum hætti getum við
einnig boðið upp á frá-
bært verð til kúnnanna
okkar,“ segir Ásdís.
Hvernig ber fólk sig
að þegar það vill kaupa
vörur frá ykkur?
„Við mælum með því að
fólk komi sér bara vel fyrir
og fari inn á www.lovisa.is
og skoði vöruúrvalið okkar
því þar er úr nógu að velja og
reynum við að vera með vörur
sem henta öllum. Við bjóðum
upp á netspjall ef fólk hefur ein-
hverjar spurningar og þar er að
sjálfsögðu fyllsta trúnaði heitið.
Afhendingarmátar pakkanna
eru tvenns konar, annars vegar
póstsending með Póstinum og hins
vegar er hægt að
sækja vörurnar
í öllum versl-
unum Polo á höfuðborgarsvæðinu.
Það er sérstaklega hentugt fyrir þá
höfuðborgarbúa sem eru óþreyju-
fullir því afhending á þeim
pökkum er samdægurs sé pantað
fyrir kl. 15 á daginn,“ segir Ásdís.
Þær Katla og Ásdís segjast
reyna að bjóða upp á fjölbreytt
vöruúrval sem hentar fyrir
alla. „Þetta eru vörur fyrir
píkur, typpi, rassa, paratæki
og fatnaður ásamt úrvali af
bindibúnaði. Okkur finnst
mikilvægt að hafa úrval
af sleipiefni sem hentar
mismunandi þörfum og
smekk. Einnig höfum við
verið mjög opnar fyrir
því að bæta við þegar fólk
hefur samband með séróskir,“ segja
þær stöllur.
Gott sleipiefni ómissandi
Hvaða vörur eru vinsælastar?
„Sexy Secret eggið hefur verið
mjög vinsælt en það er hægt að
festa það í nærbuxur og með því
fylgir fjarstýring sem hægt er að
láta maka hafa og eiga skemmti-
lega stund hvar og hvenær sem
er. Flip Orb er sú múffa sem hefur
notið mestra vinsælda hjá okkur,
mjúkt sílikonið og litlu kúlurnar
sjá til þess að veita einstakan unað
og einnig er afskaplega auðvelt að
þrífa hana.
Gott sleipiefni finnst okkur vera
ómissandi og ID Glide skipar sér
í fyrsta sæti þar yfir mest seldu
sleipiefnin hjá okkur enda eitt
besta vatnsleysanlega sleipiefnið á
markaðnum en við mælum alltaf
með því að nota vatnsleysanleg
sleipiefni með öllum silíkontækj-
um til að tryggja endingu þeirra,“
segir Katla.
Eru þið með einhvern sérstakan
markhóp?
„Í stuttu máli væri það í raun
bara fólk sem vill njóta kynlífsins
enn betur og á betra verði. Við
reynum að leggja upp úr því að hafa
fjölbreytileika kynjanna
í huga við innkaup og
markaðssetningu
því okkur er annt
um að öll geti verslað
eitthvað við sitt hæfi.
Hver sem er ætti að
geta notið sín í kynlífi
og við viljum bjóða
upp á vörur sem stuðla
að því. Og auðvitað
reynum við að gera
það á besta mögulega
verðinu,“ segir Ásdís.
Er það yngra fólk
frekar en eldra sem
verslar hjá ykkur og hvort
eru það fleiri konur eða
karlar sem versla?
„Jú, við sjáum töluvert meira af
yngra fólki þótt það sé fólk
á öllum aldri sem verslar
hjá okkur. Við fögnum
því þegar eldra fólk
verslar hjá okkur því það
er enginn of gamall til
að versla kynlífstæki.
Varðandi kynjahlutfall
þá höfum við ekki lagt
út í vinnu við að athuga
kyn viðskiptavina
okkar sérstaklega en
vonum að öll kyn finni vörur sem
henta hjá okkur,“ segir Ásdís.
Er mikið um að hjón séu saman í
ráðum varðandi kaupin?
„Já, miðað við pantanirnar þá
getum við dregið þá ályktun að þær
séu í mörgum tilfellum fyrir pör.
Enda getur það styrkt sambönd að
setjast niður og ræða saman og vera
opin um langanir og þrár. Eftir það
er kjörið tækifæri að kíkja saman
inn á heimasíðu Lovísu og finna
tæki sem geta hjálpað til við að gera
gott samband enn þá betra,“ segir
Katla.
Ekkert til að skammast sín fyrir
Þær Ásdís og Katla segja að fólk sé
orðið meira opið fyrir því að kaupa
kynlífstækjavörur og ræða þessi
mál almennt.
„Við sjáum alveg mun á því
hversu opið fólk er með þessi mál-
efni enda er notkun kynlífstækja
ekkert til að skammast sín fyrir eða
fara í felur með. Það ætti enginn
að líta á það sem áfellisdóm á sína
frammistöðu ef maki sýnir áhuga
á notkun tækja enda tölum við um
hjálpartæki ástarlífsins. Framþró-
un í vöruúrvali hefur líka valdið því
að nýjustu tækin í dag eru stílhrein,
falleg og löguleg og henta alls konar
fólki,“ segir Ásdís.
Spurðar hvort þær verði ekki
varar við mikla samkeppni í
þessum geira segja þær: „Jú, það
er ekki hægt að segja annað en
að samkeppnin á unaðstækja-
markaðnum sé þokkaleg og margir
að gera mjög flotta og góða hluti.
Við erum hins vegar bjartsýnar á
framtíðina og trúum að það sé pláss
fyrir margs konar hugsjónir og
sjónarmið á markaðinum.“
Á morgun er konudagurinn og í
tilefni hans býður lovisa.is upp á
tilboð.
„Að sjálfsögðu verðum við með
tilboð fyrir konudaginn. Það er
20% afsláttur af völdum vörum
hjá okkur út sunnudaginn. Einnig
útbjuggum við tilboðsbox sem í
eru vel valdar vörur sem seljast þá
saman á mjög góðu verði. Boxin
eru þrenns konar, það eru píku-
box, þorrabox og dekurbox svo
öll ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi hjá okkur í tilefni
dagsins,“ segir Katla. n
Hægt er að skoða úrvalið á lovisa.is
Enginn of gamall til að versla kynlífstæki
Ásdís Bjarka-
dóttir og Katla
Sif Friðriksdóttir
eru eigendur
kynlífsverslun-
arinnar lovisa.is.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Paratæki frá satisfyer.
Id glide og Id plesure – hágæða
vatnssleipiefni.
Hágæða nuddvöndur.
Gyllt loðin handjárn frá fetish.
Paratæki frá satisfyer.
Mini rabbit víbrator frá You2toys.
Einfaldur kraftmikill titrari.
8 kynningarblað 18. febrúar 2023 LAUGARDAGURUnaðsvörUr