Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 51
Yndislegi sonur okkar, bróðir og mágur,
Pálmar Guðmundsson
Fjarðargötu 17,
Hafnarfirði,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 10. febrúar, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 13.00. Blóm og kransar
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Hrafnhildur Ingibergsdóttir Guðmundur R. Guðmunds.
Dagný Björk Guðmundsdóttir Björn Reynir Halldórsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Þórður Magnússon
frá Djúpavík,
Akurgerði 10, Akranesi,
lést sunnudaginn 12. febrúar á
Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn
23. febrúar klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef
Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is
Guðmunda Björg Þórðardóttir
Emelía Þórðardóttir Einar Ágúst Yngvason
Sæmunda Fjeldsted Sigurgeir Már Sigurðsson
afabörn og langafabörn
Okkar ástkæra eiginkona,
móðir, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
Anna Ingibjörg
Benediktsdóttir
Dúfnahólum 4, Reykjavík,
lést 28. janúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Útförin fór fram í kyrrþey að hennar ósk.
Sigbjörn Jón Bjarni Jóhannsson
Reynir Kristbjörnsson Anne Guðmunda Gíslad.
Hrönn Fonseca Kristbjörnsd. José Manuel Duarte Da Fonseca
Benedikt Á. Kristbjörnsson Sigríður María Eyþórsdóttir
Katrín G. Kristbjörnsdóttir Ragnar Þorláksson
Nói Jóhann Benediktsson Eygló Þorvaldsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir og tengdadóttir,
Tinna Ósk Grímarsdóttir
framkvæmdastjóri,
Skagabraut 6, Akranesi,
lést laugardaginn 11. febrúar á
Krabbameinsdeild Landspítalans. Útför hennar fer fram
frá Akraneskirkju föstudaginn 24. febrúar klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju:
www.akraneskirkja.is
Axel Freyr Gíslason
Díana Rós Axelsdóttir Grímar Dagur Axelsson
Petrún B. Sveinsdóttir Grímar Teitsson
Sveinn Rúnar Grímarsson Nanna Berglind Baldursd.
Hjördís Dögg Grímarsdóttir Dagur Þórisson
Steindór H. Grímarsson Margrét Rut Valdimarsd.
Jórunn Sigtryggsdóttir Gísli Árnason
Elskulegur faðir, afi, langafi og bróðir,
Sigurður Guðmann Ólafsson
sem lést sunnudaginn 12. febrúar að
heimili sínu verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju föstudaginn
24. febrúar kl. 11.00.
Að lokinni jarðarför verður boðið upp á
erfidrykkju í safnaðarheimili Kópavogskirkju.
Kl. 14.00 verður farið í Þykkvabæjarkirkjugarð þar sem
jarðsetning mun fara fram.
Halldóra Sigurðardóttir
Andrea Rún Jóhannesdóttir Sindri Snær Oddgeirsson
Soffía Fönn Sindradóttir
Ágústína Ólafsdóttir
Hugrún Ólafsdóttir Þorsteinn
Óli Ágúst Ólafsson Sigurveig Andersen
Ásmundur Þórir Ólafsson Súsanna Torfadóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Sigurðardóttir
Kolbeins
hjúkrunarfræðingur,
Nýbýlavegi 60, Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
fimmtudaginn 2. febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 15. febrúar.
Guðbjörg Hildur Kolbeins Hilmar Thor Bjarnason
Páll Kolbeins
Sigurður Örn Kolbeins
Aðalheiður Ingibjörg Kolbeins Hilmarsdóttir
Móðir okkar, amma og langamma,
Magnea Rósa Tómasdóttir
lyfjafræðingur,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
lést á Minni-Grund í Reykjavík
sunnudaginn 5. febrúar. Útför fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 24. febrúar kl. 13.00.
Sigríður Erla Gunnarsdóttir
Áslaug María Gunnarsdóttir
Darri Gunnarsson
Ívar Karl, Ægir Sindri, Óðinn Dagur, Iða Brá, Harpa Lind,
Gunnar Dagur, Rósa Líf, Hilda Sól, Gottskálk Darri
og fjölskyldur
Ástkær eiginkona mín, móðir,
amma og langamma,
Edda Bolladóttir
Rjúpnasölum 14, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
1. febrúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
krabbameinsdeildar og líknardeildar Landspítalans fyrir
góða umönnun og hlýhug.
Sigurður Ármannsson
Sigrún Sigurðardóttir Árni Geir Sigurðsson
Elva Björk Sigurðardóttir
Sif Steingrímsdóttir, Saga Steingrímsdóttir,
Sigurður Pétur Markússon, Hugrún Ósk Hákonardóttir
og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Jónsdóttir
Gógó frá Drangsnesi,
Þrastarási 73, Hafnarfirði,
lést þann 6. febrúar.
Hún verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn
20. febrúar kl. 15.
Guðrún Ólafsdóttir Loftur Ingólfsson
Jón Pétur Ólafsson Líney E. Jónsdóttir
Erlingur Ólafsson
Anna Björk Ólafsdóttir Snorri Dal
Fréttablaðið tímamót 2718. Febrúar 2023
LaUGaRDaGUR
arnartomas@frettabladid.is
„Konudagurinn er yngri en bóndadag-
urinn en hann er upphaf góu, rétt eins
og bóndadagurinn er upphaf þorra,“
segir Helga Vollertsen, sérfræðingur í
þjóðháttum við Þjóðminjasafn Íslands.
„Það er talað um hann í kringum miðja
nítjándu öld og hann hefur fylgt okkur
síðan.“
Það eru ýmsar hefðir sem tengjast
bóndadeginum, rétt eins og þegar
bóndinn átti að hoppa á öðrum fæti í
kringum bæinn til þess að bjóða þorr-
ann velkominn. Hefðirnar í kringum
konudaginn eru hins vegar eitthvað
færri fyrir utan kannski að þá sé konum
færð blóm í tilefni dagsins.
„Þetta með blómin er eitthvað sem
gerist á sjötta áratugnum eftir stríð á
síðustu öld,“ útskýrir Helga. „Þá fóru
blómasalar að auglýsa konudagsblóm
og þannig hefur sú hefð komið til. Þetta
var ansi góð markaðssetning.“
Helga segir að fyrr á öldum hafi verið
minna af því að fólk gæfi hvort öðru
gjafir en það hafi breyst upp úr alda-
mótunum 1900.
„Þegar trúlofanir fóru þá að vera
algengar þá trúlofaði fólk sig oft á merk-
isdögum, eins og afmæli og páskum
og þá kom konudagurinn alveg líka til
greina.“
Í tilefni dagsins verður Helga með leið-
sögn um grunnsýninguna á Þjóðminja-
safninu á morgun með áherslu á ástir og
rómantík landans í gegnum aldirnar.
„Við ætlum aðeins að þræða söguna
og fjalla um hvernig hjúskaparhefðum
er háttað, finna skemmtilega gripi þeim
tengdum og segja frá siðum og venjum
sem tengjast hjónaböndum,“ segir hún.
„Ég ætla að segja aðeins frá Jóni Ara-
syni biskup og fylgikonu hans, sem hét
Helga eins og ég. Við ætlum líka að skoða
drykkjarhorn, brúðarbekk, trúlofunar-
hringi og aðra gripi.“
Leiðsögnin hefst klukkan 15 á morgun
og fá allar konur rós í lok leiðsagnarinn-
ar á meðan birgðir endast. n
Markaðsdraumur blómasalans
Helga Vollertsen er sérfræðingur
hjá Þjóðminjasafninu.
Þetta með blómin er
eitthvað sem gerist á
sjötta áratugnum eftir
stríð á síðustu öld.
Trafaaskja frá
safninu þar sem má í
fyrsta skipti sjá orðin
„ég elska þig“ á grip.