Fréttablaðið - 18.02.2023, Blaðsíða 59
Benedikt, Diljá, Celebs,
Bragi og MÓA keyra Söngva-
keppnina 2023 í gang í kvöld
þegar þau mætast í fyrri und-
anúrslitum og syngja fimm
af þeim tíu lögum sem keppa
um eftirsóttan keppnisrétt-
inn fyrir Íslands hönd í Euro-
vision í vor.
toti@frettabladid.is
Öll segjast keppendur kvöldsins
vera æsispennt og í gúddí fíling
enda andinn í hópnum góður þótt
einhver þeirra muni þurfa frá að
hverfa að leik loknum í Söngva-
keppnishöllinni í Gufunesi.
RÚV sýnir að sjálfsögðu beint
frá keppninni þar sem Ragnhildur
Steinunn, Unnsteinn Manúel og
Siggi Gunnars verða kynnar og
veislustjórar fyrir fullum sal af
áhorfendum. Þau sem heima sitja
geta síðan að sjálfsögðu tekið virkan
þátt og reynt að hafa áhrif á úrslitin
með því að styðja við bakið á sínu
fólki í símakosningunni. n
Keppendur
byrja ballið í
góðum fíling
Tónlistin sameinar
MÓA - Glötuð ást (900 9905)
„Fílingurinn fyrir stóru stundina er fyrst og fremst
tilhlökkun!“ segir Móeiður Júníusdóttir, MÓA, sem
viðurkennir fúslega að hún er orðin mjög spennt
fyrir að stíga á sviðið á laugardaginn.
„Þetta ferli hefur sannarlega verið ævintýri af
bestu gerð hingað til. Að upplifa alla þessa litlu
þræði skríða saman, taka á sig mynd og vinna
með öllu þessu hæfileikafólki,“ segir hún og bætir
við að nóg sé af óvæntum uppákomum í kringum
undirbúninginn allan saman.
Hún nefnir sem dæmi að í vikunni hafi stór
hópur nemenda í Kársnesskóla æft lagið hennar
undir stjórn Þóru Marteinsdóttur og sungið það
svo fallega í söngstund á sal. „Slíkt gerir mann
meyran og minnir mann á aðalatriðið í þessu öllu
saman, það er tónlistina sjálfa og hvernig hún
sameinar fólk.
MÓA segir undirbúninginn hjá henni ekki síst
felast í því að vera dugleg að drekka vatn og anda
djúpt. „Ég hef reyndar þurft að huga vel að rödd-
inni vegna kvefs en hvítlaukur í nasir, innöndun
á gufu yfir potti, hófleg æfing í ræktinni og auð-
vitað göngutúr með hundinn gera gæfumuninn.
Á borðstofuborðinu eru stuðningsplaköt sem
yngri dóttir mín er að útbúa fyrir kvöldið, þannig
að öll fjölskyldan tekur þátt í þessu með mér sem
er lúxus. Síðast en ekki síst fæ ég nú loksins að
draga fram kjólinn, sem ég ætla að vera í á laugar-
daginn, úr fataskápnum og get ekki beðið eftir
því að smeygja mér í hann og telja í lagið mitt fyrir
þjóðina.“
Lag: Móeiður Júníusdóttir.
Íslenskur texti: Móeiður Júníusdóttir og Guðrún
Guðlaugsdóttir.
Enskur texti, Lose this dream: Móeiður Júníus-
dóttir.
Getur ekki beðið
4 Bragi - Stundum snýst heimurinn gegn þér
(900 9904)
„Ég er rosalega spenntur fyrir kvöldinu. Ég hef aldr-
ei komið fram á Íslandi þannig það verður gaman
fyrir ættingja og vini að sjá mig á sviðinu,“ segir
Bragi Bergsson.
„Síðast þegar ég kom fram þá var það í Svíþjóð
þegar ég keppti í Idolinu þar þannig að ég er smá
stressaður en hlakka líka mikið til. Æfingarnar hafa
gengið vel. Allt toppfólk sem er að vinna í þessu.
Hinir keppendurnir eru líka rosalega flottir og
góðir. Ég get bara ekki beðið eftir laugardeginum!“
Lag: Bragi Bergsson, Joy Deb, Rasmus Palmgren og
Aniela Eklund.
Íslenskur texti: Bragi Bergsson.
Enskur texti, Sometimes the World´s Against You:
Bragi Bergsson og Aniela Eklund.
Eðlilega smá stressuð
3 Celebs - Dómsdags dans (900 9903)
„Hvernig er fílingurinn fyrir stóru stundinni? Hann
er alveg svakalegur! Það er búið að vera brjálað að
gera við að undirbúa allt fyrir framkomuna,“ segja
þau í Celebs.
„Við erum hlaupandi frá æfingu yfir í fatamátun
eða sviðsmyndasmíði og inn á milli heimsækjum
við leik- og grunnskóla til þess að kynna lagið og
æfa flutninginn. Spennan er í hámarki og stressið
kannski smá líka, en það er í lagi að finna fyrir smá
stressi, annað væri bara furðulegt.“
Lag og texti: Celebs.
Enskur texti, Doomsday Dancing: Celebs.
Draumur að rætast
2 Diljá - Lifandi inni í mér (900 9902)
„Fílingurinn er góður! Það er allt að smella saman,
stemningin í teyminu er stórkostleg og ég get
eiginlega ekki beðið eftir deginum sjálfum.
Æfingarnar hafa gengið vel og ég er afar þakklát
teyminu frá RÚV,“ segir Diljá Pétursdóttir.
„Laugardagskvöldið verður stór dagur fyrir mig
vegna þess að það má í rauninni segja að þá rætist
margra ára draumur – að taka þátt í Söngvakeppn-
inni. Ég ætla að leggja allt sem ég á í flutninginn og
njóta ferðalagsins.“
Lag og texti: Pálmi Ragnar Ásgeirsson og Diljá
Pétursdóttir.
Enskur texti: Power.
Kemur vonandi á óvart
Benedikt - Þora (900 9901)
„Ég er virkilega spenntur og ég hlakka til að stíga á stóra sviðið og sýna atriðið mitt á
laugardaginn með frábæru dönsurunum mínum og vinum sem ég hef þekkt í mörg ár,“
segir Benedikt Gylfason sem hefur leika í fyrri undanúrslitunum í kvöld.
„Síðustu dagar og vikur hafa verið annasamar en mjög skemmtilegar. Ég hef sungið í
nokkrum leik- og grunnskólum og á balli í gamla menntaskólanum mínum, MH.
Ég og teymið mitt höfum einnig verið að klára búningana en minn búningur mun
vonandi koma mörgum á óvart. Þá höfum við líka verið að búa til myndbönd fyrir
samfélagsmiðla.
Ég hef passað mig að drekka nóg af vatni, dæla í mig C-vítamíni, borða hollt og anda
að mér heitri gufu.
Við keppendurnir hittumst formlega í fyrsta skipti við tökurnar á þættinum 12 stig
sem var sýndur á RÚV um síðustu helgi og fórum í kjölfarið út að borða saman og
áttum frábæra kvöldstund, enda mjög góð stemning í hópnum!“
Lag: Benedikt Gylfason og Hildur Kristín Stefánsdóttir.
Íslenskur texti: Benedikt Gylfason, Hildur Kristín Stefánsdóttir og Una Torfadóttir.
Enskur texti, Brave Face: Benedikt Gylfason og Hildur Kristín Stefánsdóttir.
Fréttablaðið lífið 3518. Febrúar 2023
lAUGARDAGUR