Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Side 14
í Skandínavíu, en þrír stokkar voru til
fyrir. Þrærnar eru byggðar eftir amerískri
fyrirmynd, sem reynst hefur mjög vel
erlendis. Er full ástæða til þess að gera
Hringprecr af amerískri gerð.
sér góðar vonir um starfsemi stöðvar-
innar og að þaðan megi í framtíðinni
fá heppilega stofna í ár þær, sem verið er
að rækta liverju sinni.
RANNSÓKNIR.
FRÁ því að veiðimálaskrifstofan tók
til starfa hefur verið unnið að því m. a.,
að safna hreistri af laxi og einnig nokk-
uð af silungi, til þess að rannsaka aldur
og vöxt fiska. Að lang mestu leyti liefur
þurft að treysta á hjálp veiðimanna í
þessu efni, og hafa rnargir brugðist vel
við þeim óskum. Eru nú til hreisturssýn-
ishorn af 2500—3000 löxum, en söfnunin
hefur gengið nokkuð misjafnlega frá ári
til árs, og frá sumum veiðiám hefur lítið
sem ekkert borist, þrátt fyrir ítrekuð til-
mæli. Helst þyrftu að fást hreisturssýnis-
horn af 100 löxum úr liverri á, ár hvert,
og má þó ekki minna vera. Mun bráðlega
verða liægt að birta niðurstöður af þess-
um athugunum.
Niðurstöður af aldurs. og vaxtarrann-
sóknum koma að miklu gagni þegar
ákveða skal sleppingu seiða í hinar ýmsu
ár, því þar veltur á miklu að hægt sé að
fá bezta afbrigðið til þess að rækta upp.
Af þeim má einnig nokkuð sjá ástæð-
urnar fyrir því, að veiði hefur verið mikil
eða lítil á einhverjum stað. Og þegar frá
líður má einnig skyggnast eitthvað inn í
framtíðina með hliðsjón af þeim.
Loks skal þess getið, að safnað hefur
verið hreistri af urriða og bleikju á nokkr-
um stöðum, þar á meðal úr Fiskivötnum.
MERKINGAR.
ÖNNUR hlið rannsóknanna er nrerk-
ingarnar. í Korpu hafa niðurgönguseiði
verið merkt á hverju vori síðan 1947.
Alls rúml. 2000 laxaseiði og nær 600 sjó-
birtingsseiði. Af þessu hefur veiðst aftur
eftir eitt ár í sjó, nálægt 3%.
Skýrsla um þetta efni mun verða full-
gerð í haust.
Hoplaxamerkingar eru enn einn þátt-
ur rannsóknanna. Til þessa liafa verið
merktir um 800 hoplaxar, langflestir úr
Elliðaánum, en nokkrir í Borgarfirði og
Árnessýslu. Gönguseiðin hafa verið rnerkt
með uggaklippingum, en hoplaxinn
fyrst með plöturn, en síðar hylkjum, sem
fest er með silfurvír framan við bakugg-
ann.
Niðurstöður þessara rannsókna gefa
hugmynd um, hve mikið af seiðum ferst
í sjónum á l’yrsta og öðru ári og hvað
lifir af. Hoplaxamerkingarnar ættu að
sýna, hvað gengur í ána aftur að jafnaði
af laxi, sem hefur hryngt áður. Það, sem
endurveiðst hefur á stöng og í net er
eitthvað um 5%. f Elliðaánum hafa kom-
ið fram um 10%, en þess er að gæta, að
12
VllÐIMADURlNK