Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Síða 15

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Síða 15
þar er liægt að skoða alla laxa, sem í ána koma. Hoplaxamerkingum verður lialdið áfram enn um sinn, til þess að fá enn gleggri niðurstöður. Þess má og geta, að seiði, sem merkt eru í Korpu í ár, geta frætt okkur urn, hvort laxinn leitar aftur þangað eftir breytinguna eða lieldur á aðrar stöðvar. VATNARANNSÓKNIR. í 11/, ár hefur verið safnað gögnum og gerðar alhliða rannsóknir á Meðal- fellsvatni (sbr. grein í 23. hefti Veiði- mannsins). Er mjög bagalegt hve illa gengur að fá veiðimenn til að skila skýrsl- um um veiði sína þar. Merkingum hefur verið haldið áfrtjm í sumar. Enginn merktur fiskur hefur komið fram frá sumrinu í fyrra, og er það harla undar- legt. Auk þessa hafa verið gerðar merking- ar á rnurtu í Þingvallavatni, til þess að reyna að ganga úr skugga um, hvort þar er um sérstakan stofn að ræða, sem hvergi komi fram í veiði nema í murtu- veiðinni þar á haustin. Hafa 3 s.l. haust verið merktir um 400 fiskar samtals, og hafa 4 fengist aftur. Mest var merkt að austanverðu í vatninu, en einnig nokk- uð við Heiðarbæ. Ein þeirra, sem merkt var að austanverðu hefur veiðst vestan megin. Þrjár hafa veiðst á hinum venju- lega murtuveiðitíma að haustinu, en ein veiddist að vori til. Ætlunin er að merkja mikið af murtu í haust. Murtan er bleikjuættar, en hefur tek- ið upp sérstaka lifnaðarháttu, lifir aðal- lega í djúpu vatni, á svifi, eins og síldin, að því er talið er. Það eru dæmi þess annars staðar, að til eru fleiri en einn stofn af sörnu tegund, sem hegða sér ólíkt að því leyti, að þeir hrygna við mismun- andi hitastig. VEIÐILÖGGJÖFIN. VEIÐILÖGGJÖF okkar er að ýmsu leyti góð, þótt hún sé í meginatriðum yfir 20 ára gömul. Ýmsu þarf þó að breyta Eldisknssar i eldisstööinni við ElIiÖaár. samkvæmt íenginni reynslu. Þó er það svo, að væri farið eftir lögunum eins og þau eru, gætu þau verndað fiskistofnana í flestum tilfellum, enda er það tilgang- ur þeirra. En því miður eru nokkur brögð að því, að lögin séu brotin að ýmsu leyti. Sunnanlands og vestan, þar sem laxveiði- ár eru í leigu, hefur þeim verið hlýtt bet- ur, enda stöðugt eftirlit síðustu árin. En mikið skortir enn á að ákvæðum veiðilaganna sé hlýtt eins og vera ber, og er sérstaklega ábótavant í því efni sumstaðar norðanlands og á stöðum þar sem langt er til yfirvalda. T. d. eru ár sumstaðar þvergirtar á afviknum stöðum. Það er mikilvægt atriði, að veiðilög- gjöfinni sé hlýtt, því með þeim hætti er VEHHMAÐURINN 13

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.