Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Síða 37

Veiðimaðurinn - 01.09.1953, Síða 37
Veiðin í sumar. EINS og flestir lesendur Veiðimanns- ins munn vita, sumpart af eigin raun, var veiðin allstaðar mikið rninni í ár en í fyrra. Þess skal þó gætt í þeim saman- hurði, að sumarið 1952 var eitt bezta veiðisumar, sem komið hefur lengi. Enn hefur eigi unnist tími til að vinna úr veiðiskýrslum þessa árs, enda ekki all- ar komnar til veiðimálaskrifstofunnar ennþá. Nákvæmar tölur eru því enn fáar fyrir hendi, en frá nokkrum ám er þó hægt að birta tölur, sem eru svo nærri hinu rétta, að ekki getur munað nema örfáum fiskurn til eða frá. Til saman- burðar eru tölur líka. frá 1952 teknar upp 1953 1952 Elliðaárnar 918 1511 Norðurá 470 1044 Laxá í Kjós 440 900 Korpa 287 519 Laxá á Ásum XT) CM 301 Ennfremur eru til tölur frá nokkrum ám þ. 25. ágúst, en nokkuð veiddist í þeim öllum eftir það. Skulu fáeinar tekn- ar liér upp til gamans. í Haukadalsd höfðu þá veiðst 351 lax, á háðum veiðisvæðunum. Á sama tíma í fyrra voru komnir þar á land 474 fiskar. Miðfjarðará. Þar höfðu veiðst 509 lax- ar, en 831 á sama tíma í fyrra. Alls komu úr ánni það ár 931. Ég þakka Krumma kærlega fyrir bréf- ið. Kvæðaþáttur er hugmynd, sem mér þykir góð. Og veiðimönnum, sem yfirleitt allt er gefið, ætti ekki að reynast vandi að smíða ljóð. Ritstj. Víðidalsá. 422, en 595 á sama tíma í fyrra. ★ Þann 11. ágúst voru komnir 823 fiskar á land úr Laxá í Þingeyjarsýslu, en 1007 á sarna tíma í fyrra. Veiðin 1952 var alls 1298 laxar. í Grimsá höfðu veiðst 173 laxar þ. 11. ágúst, en 328 á sanra tíma í íyrra. Alls veiddust þar 462 laxar 1952. ★ Af þessum tölum er ljóst, að árnar á Norðurlandi hafa verið miklum mun drýgri en Suðurlandsárnar, enda er veið- in norðanlands nokkurn veginn í meðal- lagi, víðast hvar, samkvæmt upplýsing- ingum veiðimálaskrifstofunnar. F.ftir eins gott veiðiár og í fyrra þykir okkur þetta sumar, að vonum, afar lé- legt, en við skulum ekki ímynda okkur að ekkert svipað hafi komið fyrir áður. Við erurn bara búnir að gleyma því, sam- kvæmt þeirri sjálfsögðu og góðu reglu, að muna aðeins það sem gott er frá liðnum veiðiárum.Sem dæmi má nefna, að við athugun á veiðiskýrslum frá Elliða- ánum árið 1951, kemur í ljós að þá veidd- ust þar aðeins 796 laxar, og árið 1950 var veiðin 960 liskar, eða örlítið meiri en núna. Ef við lítum á skýrslur frá Norðurá árið 1949, sjáum við að þar hafa veiðst 468 laxar, eða því senr næst sami fiska- fjöldi og í sumar; og árið 1950 veiddust þar ekki nema 622 laxar. Svona hefur þetta verið og verður alltaf — stundum ágæt veiðiár, stundum miðlungsár og stundum léleg og oft- ast nær ómögulegt að vita nokkuð fyrir- fram. Spár og útreikningar bregðast, eins og um síldina. Og er þetta ekki einmitt í samræmi við aðra háttu laxins og þá heillandi óvissu, sem honum fylgir, hvort sem hann er fastur á flugunni eða hul- inn í djúpum hafsins? VflÐIMAÐURINN 35

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.